12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4289 í B-deild Alþingistíðinda. (3751)

82. mál, áfengislög

Einar Jónsson:

* Það lætur nærri, að jeg vildi óska, að hæstv. forseti tæki það, sem jeg ætla að segja, jafnt utan sem innan dagskrár — mjer blöskrar svo, að þingfundir skuli haldnir kvöld eftir kvöld. Jeg veit, að það er komið að þingslitum, en jeg hefi aldrei þekt slík vinnubrögð: Það er vakað nótt eftir nótt og mönnum haldið dauðþreyttum yfir nauðaómerkilegum málum. Það er dómur okkar þm. og þjóðarinnar, að þetta þing sje eitthvert hið ljelegasta þing, sem haldið hefir verið, enda ekki að undra, þar sem stj. var valin úr þeim flokki, sem ýmsir gátu ekki fundið nógu marga rjetta í valið innan. Reynslan hefir líka sýnt, að, stj. er ófær. Það nær ekki nokkurri átt að halda mönnum yfir „rövli“ kvöld eftir kvöld, þó að komið sje að þingslitum og búið að hrúga mýmörgum einskisverðum málum inn í þingið. Eitt þessara ómerkilegu mála álít jeg, að hjer sje nú á dagskrá. Jeg ætla að lýsa yfir því, að jeg verð ekki viðstaddur fram yfir þinglokin, ef svona á að vaka kvöld eftir kvöld. Jeg fer heim að sofa. Jeg er vanur að ráða mjer sjálfur. Jeg verð ekki með ykkur lengur. Verið þið sælir!

*Ræðuhandr. óyfirlesið.