30.03.1928
Efri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4310 í B-deild Alþingistíðinda. (3767)

129. mál, samstjórn tryggingastofnana landsins

forseti (GÓ):

Fyrir vangá deildarskrifara hefir sú villa komist inn í fundargerð 59. fundar hjer í deildinni, í fyrradag, í atkvæðagreiðslu um mál það, sem hjer er fyrst á dagskrá, frv. til laga um samstjórn tryggingastofnana landsins, að þar er talin samþykt 2. breytingartillaga á þskj. 583, um að 5. gr. frv. skuli orðuð svo sem þar segir, í stað þess, að sú tillaga var feld. Þó að fundarbókin hafi verið staðfest, þá er hjer vitanlega um villu að ræða, sem leiðrjetta verður í þingtíðindunum. Frv. var við 2. umr. samþykt óbreytt eins og það kom fram á þskj. 296. En nú hefir það verið prentað með breytingu þeirri, sem gerðabókin telur það hafa tekið við 2. umr., og er það þskj. 633 hjer á dagskránni. En tekið var eftir villunni áður en því skjali væri útbýtt, og verður nú annað mál látið hljóta það þingskjalsnúmer.

Frumvarpið liggur hjer fyrir til 3. umr. eins og það var flutt í upphafi á þskj. 296.