12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4311 í B-deild Alþingistíðinda. (3774)

129. mál, samstjórn tryggingastofnana landsins

Magnús Guðmundsson:

Það hefir enginn fundur verið haldinn í allshn. um þetta mál, en aftur á móti hefir verið farið þess á leit við mig, hvort jeg vildi skrifa undir nál. og samþykkja þetta frv. alveg óbreytt. Jeg hefi ekki getað orðið við þeirri ósk, vegna þess að gildandi lög frá 1915 um stofnun Brunabótafjelags Íslands kveða svo á, í 25. gr., að þegar fjelagið sje orðið svo stórt, að ársiðgjöldin nemi meiru en 75 þús. kr., skuli stjórnarráðið semja frv. til laga um breyting á stjórn þess í þá átt, að skipað sje fulltrúaráð til þess að gæta hags sveitarfjelaganna og vátryggjenda, og þegar fengnar sjeu umsagnir hlutaðeigandi sveitarstjórna, skuli þetta frv. lagt fyrir Alþingi. Þetta er af því að Brunabótafjelag Íslands er hugsað sem gagnkvæmt fjelag vátryggjenda, og er það gert til þess að þeim, sem eiga vátrygðar húseignir, sje trygður rjettur til þess að hafa áhrif á stjórn fjelagsins. Þetta er rjettur, sem þessir vátryggjendur hafa, og jeg tel ekki rjett að ganga framhjá þessu ákvæði, því að það er bert, að það getur haft talsvert mikla þýðingu fyrir þá, sem vátrygt hafa í fjelaginu, að þeim gefist kostur á að hafa áhrif á Stjórn fjelagsins. Jeg þarf ekki í þessu sambandi að nefna annað en rjettinn til að kveða á um upphæð iðgjaldanna, því að það er vitaskuld meginatriði í slíku fjelagi sem þessu, hver iðgjöldin eru, og það er ekki nema rjett, að þeir, sem tryggja, fái að eiga sinn hluta að málum þar, eins og ákveðið er í gildandi lögum. Þetta sagði jeg hv. frsm. meiri hl. (BSt) að væri mín ástæða, en það væri alls ekki svo, að jeg gæti ekki fallist á að hafa stjórn þessara fjelaga undir sama hatti, en hitt atriðið sýnist mjer vera svo veigamikið, að þingið eigi ekki að brigða gefið loforð við vátryggjendur, og mjer sýnist, að þeir hafi með þessu loforði öðlast rjett, sem ekki sje fært að ganga framhjá. Það er algeng tilhögun á fjelögum, að þau sjeu gagnkvæm, þannig að vátryggjendur sjeu í ábyrgð innbyrðis, og er því ekki nema rjett, að fjelagsmenn hafi sinn íhlutunar- og atkvæðisrjett um það, hvernig fjelögunum er stjórnað. En náttúrlega er það svo, að hugsað er þar um, að þeir, sem eiga vátrygðar eignir, geti komið frams sínum áhrifum um ákvörðun iðgjaldanna. Jeg tel æskilegt, að þeir, sem eiga eignir sínar trygðar í fjelaginu, fái að láta uppi álit sitt. Vil jeg því skjóta því til hæstv. atvmrh., hvort hann vilji ekki undirbúa þetta mál fyrir næsta þing á grundvelli 25. gr. gildandi laga. Mín till. er því, að málinu verði vísað til stjórnarinnar.