12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4318 í B-deild Alþingistíðinda. (3778)

129. mál, samstjórn tryggingastofnana landsins

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Mjer og hv. 1. þm. Skagf. ber í rauninni ekki mikið á milli. Hann telur smsteypuna eðlilega sparnaðarráðstöfun, en vill aðeins fresta henni um eitt ár. En honum, sem verið hefir í stjórn, ætti að vera kunnugt um, að stjórnin hefir jafnan nóg að gera og mörgu að sinna og getur því ekki ávalt rannsakað öll mál eins og æskilegt væri. Það er sameiginlegur erfiðleiki allra stjórna. Jeg held, að þetta mál fái meiri festu og meiri umbóta sje von þegar á næstunni, ef frv. þetta er samþ. nú þegar.

Hingað til hefir ríkisstjórnin ekki skift sjer af gangi tryggingarmálanna, heldur hefir hver stofnun gengið sínar eigin götur, og svo verður uns þeim málum öllum er beint í einn farveg. Það er gert með því að samþykkja frv. og jafnframt sköpuð skilyrði til þess, að frumkvæða til umbóta megi vænta frá tryggingarstofnununum sjálfum.

Aðalmótbára hv. 1. þm. Skagf. var sú, að gera þyrfti meiri breytingar á Brunabótafjelaginu. Þetta frv. spillir ekki fyrir því. Það gerir allar framkvæmdir auðveldari og ódýrari.

Þær stjórnir, er setið hafa að völdum undanfarið, hafa ekki sjeð sjer fært að taka upp breytingu á stjórn fjelagsins, enda þótt fjármagn þess sje orðið svo mikið, að lagakrafa sje til umbóta. Frv. stendur ekki í vegi fyrir þessum umbótum; það greiðir götu þeirra.