18.02.1928
Efri deild: 26. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4327 í B-deild Alþingistíðinda. (3788)
103. mál, Landsbanki Íslands
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Eins og getið er um í hinni stuttu greinargerð, sem þessu frv. fylgir, þá er það meiri hl. fjhn., sem flytur það eftir tilmælum ríkisstjórnarinnar. Breytingar þær, sem þetta frv. gerir ráð fyrir á lögum um Landsbanka Íslands, sem voru fyrir síðasta þingi, eru aðallega í tveim atriðum. Fyrra atriðið er það, að ákveða, að ríkissjóður skuli bera ábyrgð á skuldbindingum bankans innanlands. Um þetta atriði var töluvert deilt á síðastliðnu þingi, og það fóru svo leikar, að þeir, sem vildu hafa þetta ákvæði í lögunum, urðu í minni hluta, og þó að svo færi þá, sáu þeir sjer ekki annað fært en að vera með lögunum í heild, vegna þess hve málið hafði lengi verið fyrir þinginu, og þó að sá endir, sem há var bundinn á málið, væri ekki sem æskilegastur, þótti samt sem áður ótækt að fá ekki lög um þessa stofnun.
Hitt aðalatriðið, sem felst í þessu frv., er um fyrirkomulagið á stjórn bankans. Á síðasta þingi varð mikill ágreiningur um hetta atriði, og lyktaði honum svo, sem jeg hefi lýst um fyrra atriðið.
Að vísu eru nokkrar smærri breytingar, sem felast í þessu frv., en jeg sje ekki ástæðu til að koma að þeim nú, en þessar tvær breytingar eru þær höfuðbreytingar, sem á frv. eru gerðar, og þær afleiðingar af þeim, sem óhjákvæmilegar voru.
Jeg lít svo á, að það þurfi engan að undra, þótt þessar breytingar komi fram, og við, sem á þinginu í fyrra urðum að láta í minni pokann, gerum nú tilraun til að koma fram því fyrirkomulagi á stjórn bankans, sem við teljum heppilegra. Hinsvegar þykir mjer ekki ólíklegt, að nokkur ágreiningur verði enn um þessi atriði.
En af því að álíta má, að fyrirkomulagið á stjórn bankans skifti talsverðu máli, þá var álitið sjálfsagt að bera fram þessar brtt.
Jeg sje ekki ástæðu til að rifja upp að þessu sinni gang málsins á undanförnum þingum, enda mun flestum hv. þdm. hann kunnur. Ef til vill finnur einhver ástæðu til að andmæla frv. þegar í stað, og verður þá að taka því. Annars tel jeg rjettara, að það færi nú umræðulítið til yfirvegunar í nefnd, svo að þar sæist, hvort ekki mætti ná samkomulagi um ýms einstök atriði, sem nú er ágreiningur um. Tel jeg það heppilegra en að byrja nú þegar togstreitu um málið.
Jeg vænti þess, að frv. fái að ganga til fjhn. að umræðu lokinni.