06.02.1928
Efri deild: 15. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1363 í B-deild Alþingistíðinda. (382)

21. mál, lífeyrir starfsmanna Búnaðarfélags Íslands

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil aðeins beina því til fjhn., að það væri mjög æskilegt, að hún afgreiddi málið fljótt. Svo stendur á, að það er undir afgreiðslu þessa máls komið, hvort skólastjórastaðan á Hólum losnar, og vegna þeirrar ráðstöfunar væri æskilegt, að málinu væri flýtt.