26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4457 í B-deild Alþingistíðinda. (3825)

103. mál, Landsbanki Íslands

Magnús Jónsson:

Hæstv. forsrh. eru náttúrlega fengin mikil völd í hendur í landinu, en samt ekki yfir því, hvenær menn taka til máls hjer á þingi, og hæstv. ráðh. getur ekki gefið neinar fyrirskipanir um það, hvort það sje geymt til 2. umr., sem menn hafa ætlað að segja við fyrstu. Auk þess er það svo, að það er sjerstakt, sem á að ræða við 1. umr., og svo aftur annað, sem á að ræða við 2. umr., og til þess eru lögákveðnar þrjár umr. um hvert mál, að allur undirbúningur verði tryggari fyrir það, og hjer skiftir það mjög miklu máli, þar sem hjer á að gera grundvallarráðstafanir. Ef á hinn bóginn það er hald einhverra, að menn muni stytta ræður sínar af því að nótt fer í hönd, þá er það fullkominn misskilningur, og þó að það sje vilji hæstv. stjórnar, að þröngva okkur, andstæðingum hennar, til þess að þegja um þau vondu mál, sem hún er að bera hjer fram, þá skal henni ekki verða kápan úr því klæðinu. Á leti og sjerhlífni okkar skal stjórnin ekki vinna okkur, og mun jeg tala hjer eins og dagur væri.

Þegar maður lítur á það, að þessi lög, sem nú er farið fram á að breyta, voru sett hjer á þingi í fyrra, og því ekki nema ársgömul, og þegar það eru þar að auki lög um stofnun, sem ekki er þess eðlis, að hún þurfi tíðra breytinga við, heldur þvert á móti, þá skyldi maður ætla, að þessu máli hefði verið ákaflega flaustrað af eins og það var afgreitt í fyrra, úr því að nú kemur frumvarp um allvíðtæka breytingu á þeim. Þessu fer þó mjög fjarri; það er líklega ekkert mál hjer á landi, sem hefir verið afgreitt eftir öllu rækilegri undirbúning heldur en þau lög um Landsbanka Íslands, sem samþykt voru í fyrra. Frá því það var ákveðið 1921, að Íslandsbanki skyldi sleppa seðlaútgáfurjettinum, hefir þetta mál, ráðstöfun seðlaútgáfunnar, verið á döfinni, en er fyrst tekið verulega upp á þinginu 1924. Þá kom málið fram í Ed. Hafði stjórn Landsbankans undirbúið málið og gert frv., sem fjhn. Ed. svo flutti að tilhlutun stjórnarinnar. Á sama þingi kom fram frv. um aðra ráðstöfun seðlaútgáfunnar, og voru þessi mál tekin til meðferðar, en ekki afgreidd. Þá undirbjó stjórnin málið vandlega undir næsta þing, fjekk umsögn besta sjerfræðings Dana um málið, mjög ítarlegt skjal (eða rjettara sagt tvö álitsskjöl alllöng) og auk þess umsögn Jóns Krabbe, sem er maður mjög vel að sjer á þessu sviði. Var málið svo tekið til rækilegrar meðferðar af þinginu. Fjhn. Ed. fjórklofnaði, að mig minnir, og voru skrifaðar um málið heilar bækur af nefndarhlutunum. — En samt þótti málið ekki nógu vel athugað og var hví skipuð milliþinganefnd til þess að rannsaka það. Hún fjekk meðal annars umsagnir allra þjóðbankastjóra á Norðurlöndum og vann málið út í æsar. Þá tók stjórnin við málinu og vann mikið að því og lagði það síðan fyrir þingið. En samt þótti enn of fljótt að afgreiða málið, og var það fyrst gert á þingi í fyrra. Þannig hefir þetta mál verið undirbúið af 2 stjórnum, sætt meðferð milliþinganefndar og fjögurra þinga og um það verið fjallað bæði af innlendum og erlendum sjerfræðingum; þar að auki hefir það verið rætt á fundum og í blöðum. Nefndir um það klofnuðu að jafnaði, svo að málið fjekk meðferð frá öllum hliðum. Jeg veit ekki, hverja meðferð rækilegri en þessa það gat fengið. En þessi löggjöf fær ekki að standa nema eitt ár. Það er áreiðanlegt, að hjer liggur einhversstaðar fiskur undir steini.

Þetta frv. um breytingar á lögum um Landsbankann er ekkert smásmíði, því að það er í 31 gr. Það eru margvíslegar breytingar á lögunum, þótt auðvitað sjeu þær margar smávægilegar. Það liggur ekki fyrir nú að ræða einstök atriði málsins. Því mun jeg ekki taka fyrir hinar smávægilegu breytingar. En það get jeg sagt, að jeg álít sumar þeirra beinlínis til skaða, t. d. að taka burt það ákvæði, að einn skuli vera aðalbankastjóri og hafa sjerrekkingu og reynslu í viðskiftamálum. Jeg legg mikið upp úr þessu atriði. Annað er aftur á móti þýðingarminna, svo sem t. d. það, að aðeins skuli vera einn gjaldkeri. Eins er um hið daglega eftirlit, að enda þótt jeg fyrir mitt leyti leggi ekki mjög mikið upp úr gagnsemi þess, þá er það bæði óþarft og einkennilegt að gera lagabreytingar til þess að afnema það og sýna, að verið er að minka eftirlitið. Auk þess eru ýms smáatriði, sem mjer persónulega hefði þótt til bóta, en ekki dottið í hug að bera fram brtt. um.

Þá eru enn nokkur smáatriði, sem hafa verið smíðagallar á frv. upphaflega; en út í það fer jeg ekki. Þetta frv. er annars yfirleitt sú aumasta hroðasmíð, svo að hverri stjórn mætti vera minkun að því að hafa látið bera fram fyrir sína hönd annað eins, og það um slíkt stórmál, sem hjer er á ferð. En því hefir verið yfirlýst, að það væri flutt að tilhlutun stjórnarinnar. Þar sem nú á að fella þetta frv. inn í texta laganna, þá er dálítið leitt að alt annað skuli standa í 41. gr. heldur en í 21. gr. og eitt reki sig á annars horn. En það eru ekki þessi smáatriði, sem valda því, að jeg tek til máls, heldur stóratriðin, sem farið er fram á að breyta.

Það er þá fyrst þetta, sem jeg verð að finna að: að verið er að breyta lögunum nú þegar, ári eftir að þau eru sett. Jeg álít það óheppilegt í meira lagi að vera að hringla með löggjöf um slíka stofnun sem þjóðbankinn er. Það er ekkert eins nauðsynlegt fyrir hana eins og það, að um hana sje friður á allar lundir sem unt er. Það má að vísu ekki kaupa þann frið of dýru verði. En þar sem slíkar stofnanir eru algerlega bygðar upp á trausti þeirra, sem á einhvern hátt trúa þeim fyrir fje sínu, sem innstæðufje eða sem lánsfje, þá er auðsjeð, að þær má setja á heljarþröm með því að vekja um þær ófrið, sem jafnan skapar tortrygni. En þannig er það æfinlega, að þegar ný löggjöf er á döfinni, skanast um þær meiri og minni ófriður. Í fám orðum sagt eru það erfiðleikatímar fyrir slíka stofnun meðan verið er að komast á fastan grundvöll um löggjöf hennar. Það er sett nefnd til þess að rannsaka hag hennar og bankinn kemst á dagskrá í daglegum viðræðum og er í hvers manns munni. Við það skapast oft óheppilegir og miður rökfastir dómar. Alt er þetta mjög óheppilegt, og því óheppilegra, ef aldrei er hægt að treysta því, að föst niðurstaða sje fengin, heldur má altaf búast við nýjum breytingum og nýju hringli. Menn þurfa að vita alt um bankann með vissu; annars missa menn traust á stofnuninni. Einmitt til þess að forðast slíkt er það, að í nágrannalöndunum er sem minst hróflað við löggjöf um bankana. Það eru aðeins smáfyrirkomulagsbreytingar, sem gerðar eru eftir því sem viðskiftalífið breytist. Þar er reynt að búa svo um hnútana hvað snertir eftirlit með bönkum, að ekki þurfi að vekja eftirtekt almennings, þótt þeir sjeu rannsakaðir niður í kjölinn. Það eru einstakir eftirlitsmenn, sem annast þá rannsókn, til þess að stj. þurfi ekki að gera neitt veður, þótt þær vilji vita um hag einhverrar peningastofnunar. Þetta fyrirkomulag skapar frið og öryggi. En full ástæða er til að halda, að sá leikur, sem hjer á sjer stað, að breyta bankalögunum ári eftir að þau eru sett, geti gert bankanum ekki alllítinn óleik. Það er ótækt, ef haldið verður áfram á þessari braut, að hver meiri hluti, eftir því sem flokkaskifting breytist á þingi, noti tækifærið til að breyta til eftir geðþótta, og þannig verði hringlað fram og aftur með löggjöf helstu peningastofnunar landsins. sjerstaklega er það óheppilegt gagnvart erlendum viðskiftamönnum bankans. Nú mun þegar búið að þýða lög bankans á útlend mál og þau eru orðin kunn helstu viðskiftasamböndum hans úti um heim. Það er því gefinn hlutur, að þeir gæta að því, hvað hjer er á ferðinni, og veita því sjerstaka athygli, sem dregur á einhvern hátt úr öryggi bankans. Þetta er sjerstaklega óheppilegt fyrir okkur, sem erum svo fáir og smáir og ekki mikið þektir út á við. Við eigum svo ákaflega erfitt með að fá menn til þess að trúa á okkur; heimurinn á svo bágt með að komast í skilning um, að við höfum nokkra fjárhagslega getu. Við bíðum árlega stórtjón af því, hve erfitt er að fá aðrar þjóðir til þess að fá trú á því, að við getum lifað hjer sem sjerstök þjóð. Þær treysta okkur ekki, þora ekki að reiða sig á okkur. Það er t. d. ekki af því, að ekki sjeu nógir ódýrir peningar til úti í löndum, að við þurfum að vinna og starfrækja okkar atvinnufyrirtæki með rándýru fjármagni, heldur af því, að þeir, sem ráða yfir peningunum, hafa ekki nóga þekkingu og ekki nógu mikið traust á þjóðinni og fjármálum hennar til þess að þeir sjeu fúsir til þess að láta fje sitt hingað að láni. Þegar því bankinn hefir unnið sig upp í áliti erlendra fjármálamanna og fengið góð sambönd til viðskifta, þá er verulega ilt og óheppilegt að kasta skugga á það traust, því að mikið kostar að vinna það aftur, ef það tapast, en rýrnun á trausti kostar landið óhemjufje í hækkuðum vöxtum.

Eitt meðal annars, sem sýnir, hve óheppilegt og óþægilegt þetta hringl er, kemur fram í aðgerðum hæstv. stjórnar gagnvart bankanum. — Það er annars einkennilegt, að þessi hæstv. stjórn, sem leggur mikið kapp á að neyða þingmenn til næturfunda, skuli ekki nenna að vera sjálf viðstödd, þegar slík stórmál eru rædd sem þetta. Mig furðar á, að hæstv. fjmrh. skuli ekki einu sinni láta sjá sig hjer og forsvara handaverk sín. Jeg þyrfti þó að víkja ýmsu að honum. — Það er öldungis óforsvaranlegt, hvernig hæstv. fjmrh. hefir orðið að koma fram gagnvart bankanum. Meðal annars hefir ekki fengist staðfest reglugerð bankans. Það hefir ekki verið hægt að gefa starfsmönnum við bankann erindisbrjef, ekki verið hægt að prenta viðskiftabækur o. s. frv., vegna þess að ómögulegt hefir verið að toga reglugerðina út úr hæstv. fjmrh. Bankaráðið hefir lokið við reglugerðina fyrir löngu og hún beðið fullprentuð. En staðfesting hefir ekki fengist. Nú fyrst er það vitað, af hverju þetta tómlæti hæstv. ráðh. stafaði. Hæstv. stjórn hafði sem sje hugsað sjer að breyta löggjöf bankans og vildi því fresta að gefa út reglugerðina, þar til sú breyting væri komin í kring.

Nú fyrst er það líka vitað, af hverju hæstv. stjórn þumbaðist við að greiða bankanum eitthvað af því stofnfje, sem honum bar að lögum, svo að seðlaútgáfan hefir fyrir þær sakir verið í ólagi alt til þessa. Þessi dæmi nægja til þess að sýna, hve óheppilegt slíkt hringl er, að ekki skuli vera hægt að gera bráðnauðsynlegar ráðstafanir. Ef gera á breytingar á löggjöf bankans, verða að liggja til þess ríkar ástæður, sem vegi upp á móti þeim skaða og óþægindum, er af hljótast meðan á breytingunum stendur.

En svo er fjarri því, að um slíkar mikilvægar umbætur sje að ræða, að breytingarnar eru í öllum aðalatriðum til stórskemda.

Eitt aðalatriðið í frv. hæstv. stjórnar var það, að bankanum skyldi ekki greitt neitt viðbótarstofnfje fram yfir það, sem honum var fengið með lögum 1913, 2 milj. kr. Eins og menn muna, var svo ákveðið í bankalögunum frá í fyrra, að stofnsjóður bankans skyldi teljast 5 milj. kr. sú grein laganna, sem þetta stendur í, er ekki ljóst orðuð, svo að gerð var fyrirspurn til stjórnarinnar um það, hvernig bæri að skilja ákvæði hennar. Fyrirspurninni var svarað á þá leið, að greinina bæri að skilja svo, að þegar lögin gengju í gildi, skyldi bankinn eiga þetta fje óskert, 3 miljónir króna umfram þær 2 milj., sem ríkissjóður lagði bankanum til sem innskotsfje samkvæmt lögum 1913. Ef bankinn hefði beðið töp, sem meiru næmu en varasjóði, ætti að bæta honum það upp, svo að hann byrjaði raunverulega með 5 milj. króna stofnfje. Þetta var ekki nema alveg eðlilegt, ef hann átti að geta haft nauðsynlegt traust og hafa hemil og ábyrgð á „valútunni.“ Það var lítið vit í að ákveða, að bankinn skyldi hafa þessar 5 milj. óskertar, ef hann hefði verið búinn að tapa einhverju af sínu upphaflega stofnfje.

Nú fór hæstv. stjórn fram á það, að bankinn skyldi ekki einasta sviftur þessum 3 miljónum, heldur skuli honum ekki heldur bætt upp þau töp, sem hann kann að hafa orðið fyrir, svo að það má hugsa sjer, að bankinn byrjaði með minna en ekki neitt. Efri deild bætti að vísu inn í frv. heimild til þess fyrir ríkisstjórnina að greiða bankanum 3 milj. kr. „viðbótarstofnfje“. En engin trygging er fyrir, að bankinn eigi raunverulega það fje, þótt hann fengi það. Í háttv. Ed. komu fram fyrirspurnir um, hvað skoðun sú, sem fram fór á bankanum í vetur samkvæmt ákvæðum laganna í fyrra, hefði leitt í ljós um ástand bankans. Við þeim fyrirspurnum fjekst ekkert svar. Enginn hefir hugmynd um, hvernig bankinn er raunverulega stæður, er hann á að taka upp sitt seðlabankahlutverk. Svo er sá mikli munur á, hvort ákveðið er í lögum, að bankanum skuli greitt viðbótarstofnfje eða til þess er aðeins heimild. Í fyrra var það eftir lögunum skylda að greiða bankanum þetta fje og þar með trygt, að hann fengi það, þótt það hafi dregist vegna þess, sem til stóð. Nú eftir frv. er það aðeins heimild, og mjer finst líklegt, að meðan forsjónin refsar okkur með þeirri hæstv. stjórn, sem nú situr, þá sjeu litlar líkur til þess, að bankinn fái nokkurntíma þá heimild notaða. Stjórnin sýndi hug sinn í þessu máli með því að ætla bankanum ekkert slíkt „viðbótarstofnfje“ í frv., og heimild, sem neytt er upp á þráa og skilningslitla stjórn, er ekki mikils virði.

Fjeð fer í Síldarverksmiðju, letigarð o. s. frv. Hinsvegar sjest ekki, að það eigi að ljetta neitt á bankanum af gulltryggingu seðlanna. Enda er þess enginn kostur. Það er því augljóst, að bankinn hefir ekkert annað ráð til þess að koma seðlatryggingunni í lag en það, að kalla inn harðvítuglega það fje, sem hann á útistandandi, til þess að safna erlendum innieignum ellegar kaupa gullforða. Þessi möguleiki er vitaskuld fyrir hendi. En þá verður að líta á hitt, hvort það sje fært vegna atvinnuveganna að draga inn útistandandi lán í stórum stíl. Sannast sagt heyrist oftar yfir öðru kvartað hjer en því, að lánsfje fljóti of ört til atvinnuveganna.

Jeg álít því, að með ákvæðum frv. sje stefnt út í hreinustu ófæru. Það getur ekki komið til mála að láta bankann hefja seðlabankastarfsemi sína með engu. Það er meira að segja hæpið, hvort 3 milj. væru nóg viðbótarstofnfje. Og bankinn á auk þess undir högg að sækja, hvort hann fær nokkuð af því greitt.

Í 1. gr. laganna stendur það ákvæði, að ríkissjóður beri ábyrgð á skuldbindingum bankans. Í frv. var það dálítið vægar orðað, en því er nú breytt í það, að ríkið beri ábyrgð á öllum skuldbindingum bankans. Jafnframt er tekið fram, að sjerstaka lagaheimild þurfi í hvert sinn til þess að taka lán erlendis.

Það liggur í augum uppi, að þessi ábyrgðarheimild getur ómögulega komið í stað stofnfjár. Bankinn getur ekki keypt gullforða eða öðlast innieign fyrir ábyrgð ríkissjóðs, þegar ábyrgðin nær ekki til erlendra lána, nema sjerstök lagaheimild komi til í hvert sinn. Og þó að ríkið vildi ábyrgjast bankanum lán í þessu skyni, sjá allir, hver er munurinn. Það mundi þýða, að bankinn yrði að tryggja seðlana upp í topp með gulli. En eftir lögunum er heimilt að tryggja með innieign umfram skuldir erlendis. Og það er að öllu leyti heppilegra fyrir bankann að geta notað meðfram innieign erlendis í þessu skyni. Bæði getur hann fengið lága vexti af því fje, sem svo er bundið, auk þess sem það er hentug eign fyrir bankann. Þar að auki er það ljóst, að aðstaða bankans verður alt önnur, ef hann getur starfað með sínu eigin fje, sem hann þarf þá ekki að greiða vexti af, heldur en ef hann þarf að nota lánsfje. Seðlabankann má ekki neyða til þess að starfa eins og gróðafyrirtæki; heldur verður hann að haga „dispositionum“ sínum eftir því, sem tryggast er fyrir þjóðina og peningamálin í landinu í heild sinni. En ef hann þarf að nota eingöngu lánsfje, þá er það óhjákvæmilegt, að starfsemi hans mótast af þeirri þörf, að gera sjer fjeð arðberandi. Það er því hreint og beint að gefa bankanum steina fyrir brauð að svifta hann stofnfjenu, en láta hann hafa ríkisábyrgð í staðinn.

Svo er önnur hlið á þessu máli, sem er óviðkomandi seðlatryggingunni, og það er, hvort heppilegt sje fyrir peningamálin í landinu, að bankinn sje þannig á örmum ríkissjóðsins. Því það er bersýnilegt, að þetta ákvæði hlýtur að leiða til þess, að fjeð streymir úr sparisjóðum og öðrum bönkum að Landsbankanum. Gegn þessu hefir það verið borið fram, að bankinn gæti altaf varist of miklu aðstreymi með því að lækka innlánsvextina. En jeg er hræddur um, að á hættulegum tímum hætti menn að spyrja um það, hvað vextirnir sjeu háir, heldur verði spurt að því einu, hvar tryggasti geymslustaðurinn sje. Og það þarf meira en litla árvekni, ef ekki á að taka á móti of miklu fje, fyrir nú utan það, hvað það er meinlegt að draga fyrst fjeð að sjer með ríkisábyrgð úr sparisjóðum og bönkum úti um land og ætla svo jafnframt að halda því frá sjer með óeðlilegum ráðstöfunum. Auk þess er þetta mjög óheppilegt fyrir bankann sjálfan. Það var rætt um það í milliþinganefndinni, hvort heppilegt væri að taka þetta ákvæði inn í bankalögin. Var jeg sá eini, er gerði þetta beinlínis að ágreiningsatriði, en öllum í nefndinni var það ljóst, að ekki væri heppilegt fyrir bankann sjálfan, að ofvöxtur hlypi í sparisjóð hans. Það er líka dálítil freisting fyrir bankastjórnina að leggja ekki á móti þessu. Því jafnvel þó henni sje það ljóst, að þetta er í raun og veru ekki heppilegt, þá er það freistandi að banda ekki hendinni á móti slíku starfsfje, þar sem bankinn yrði annars að nota erlent lánsfje, sem ekki er heppilegt fyrir hann sem seðlabanka.

En svo er önnur hlið á þessu, er veit að sparisjóðunum, og hún er sú, að þetta er hreint banatilræði við þá. Og ef það verður ekki til þess að sálga þeim, þá byggist það ekki á öðru en þroskaleysi þeirra, er peningana eiga. Ef slíkt ætti sjer stað erlendis, þá mundi það verða til þess, að fjeð streymdi óðfluga í svo trygga stofnun. Það er meðal annars þess vegna, að seðlabankar þora ekki að taka við sparisjóðsfje. Bankastjórn Frakklandsbanka var einu sinni spurð að því, hvort hún vildi ekki taka við sparisjóðsfje gegn því að greiða einhverja, mjög lága, vexti. En hún neitaði því eindregið, því þá mundi fjeð streyma að, svo að til stórtjóns myndi leiða og erfiðleika. Þar skilja menn, hvers virði það er að setja fje sitt þar, sem tryggingin er best. Frá Danmörku er til skemtileg saga, sem sýnir, hvernig á þessi mál er sumstaðar litið. Bicuben, annar stóri sparisjóðurinn í Kaupmannahöfn, hækkaði einu sinni vextina um ½%. Kom þá öldruð kona ein til sparisjóðsins og tók út fje sitt af þeim ástæðum, því hún sagðist ekki vilja hafa fje sitt í svoleiðis „svindilforretningu“.

Eftir því sem þjóðin er þroskaðri í þessum efnum, því næmari eru menn fyrir þessum atriðum. Hjer hefir það tíðkast, að menn spyrðu aðeins um það, hvar vextirnir væru hæstir, en þetta eldist af þjóðinni eins og hver annar barnasjúkdómur. Menn fara að sjá, að margt getur komið fyrir sparisjóðina og þeir á ýmsan hátt tapað því fje, er þeir hafa með höndum, og afleiðingin verður vitanlega sú, að peningarnir dragast með ómótstæðilegum krafti þangað, sem ríkistryggingin er og ekki er hætta á, að þeir tapist.

Vitanlega verður enginn herbrestur, þó þetta ákvæði verði samþ., heldur þokast þetta smátt og smátt í þessa átt. Það er með þetta eins og mann, sem smitast af holdsveiki. Hann dettur ekki strax dauður niður. Hann gengur ef til vill með veikina árum saman án þess að hann viti af því, en svo fer hún smátt og smátt að koma í ljós og endirinn verður sá, að hún gerir út af við hann. Sama verður tilfellið með sparisjóðina. Það er ekki hætta á því, að þeir detti strax dauðir niður, heldur verkar þetta hægt og hægt. Með þessu ákvæði er búið að leggja einskonar sogpípu úr öllum sparisjóðum og peningastofnunum landsins yfir í Landsbankann. Þessa skoðun mína byggi jeg ekki á neinu öðru en því, að Íslendingar sjeu ekki vitlausari í fjármálum en aðrar þjóðir, þegar þeir aukast að aldri og reynslu. Þetta ábyrgðarákvæði kann að líta vel út gagnvart bankanum, og getur vel verið, að ýmsir sjeu svo grunnhygnir, að þeir taki þetta fyrir umhyggjusemi fyrir landsins stofnun. En það er misskilin umhyggja, líkt og þegar hrædd móðir dúðar barn sitt í treflum og sjölum, hvenær sem það kemur út fyrir húsdyr, og þetta verður svo til þess eins, að barnið er með sífelt kvef og kvilla. Það heppilegasta er að fá bankanum öflugan sjóð, svo hann geti notað sitt eigið fje. Með því vinnum við honum gagn, en alt annað er honum miður í hag. Það er því svo langt frá því, að jeg álíti, að þessi ábyrgð bæti honum upp stofnfjármissinn, að jeg er viss um, að bankinn verður ver stæður, ef þessi breyting nær að ganga fram. Enda kemur það skýrt fram í brjefi bankastjórnarinnar, sem þó er mjög vingjarnlegt gagnvart þessum breytingum og reynir að færa þeim alt til bóta, sem mögulegt er, að hún sjer sig knúða til þess að mæla á móti þeim. Bankaráðið lagði líka á móti þeim, af því að það taldi óheppilegt að vera altaf að breyta lögum bankans.

Þó jeg gæti þreytt hv. þdm. á því að tala um þetta mál margt og mikið enn, þá skal jeg nú samt ekki gera það, því jeg kæri mig ekki um að vera bendlaður við neitt málþóf. En jeg vil aðeins óska þess, ef þetta frv. á að fara til nefndar, að hún taki til rækilegrar athugunar þá hrákasmíði, sem hjer er á ferðinni. Og það er ótrúlegt, að hæstv. stjórn og hv. flm. og hv. meiri hl. nefndarinnar í Ed. skyldu geta orðið samtaka um það að láta það fara frá sjer í þessum búningi. En hreinsunareldurinn sýnist hafa verið eitthvað daufur meðan þetta mál fór í gegnum hann, og mun þörf á, að nefndin hjer í þessari hv. deild blási í glæðurnar.