26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4488 í B-deild Alþingistíðinda. (3833)

103. mál, Landsbanki Íslands

Ásgeir Ásgeirsson:

Hv. þm. N.-Ísf. játaði, að ríkið bæri ábyrgð á bankanum eins og er, en hún gæti fallið niður, ef honum væri ekki lagt aukið starfsfje. Þetta má að vísu vera rjett, en hefir enga þýðingu, því að núgildandi ákvæði falla ekki niður fyr en á sömu stundu og ný lög eru staðfest. Breytingin, sem þetta frv. gerir, er aðeins sú, að í staðinn fyrir núgildandi ábyrgð á stofnfje bankans kemur almenn ábyrgð. En sú ábyrgð er ekki meiri nje hættulegri en ábyrgðin á stofnfjenu er nú. Hjer er ekki um breytingu að ræða, sem breyti í neinu núverandi afstöðu ríkissjóðs til bankans. Það kemur ekki þessu máli við, hvernig bankinn stendur sig nú. Ábyrgð á núverandi ástandi er nú í lögum. Þess vegna þarf engar upplýsingar að heimta um hag bankans nú sjerstaklega vegna ábyrgðarákvæðisins. Í fyrra mátti miklu fremur telja ástæðu til að spyrja um hag bankans. Jeg bar þá fram fyrirspurn til stjórnarflokksins um það, hvort hann væri ekki hræddur við að taka ábyrgð á stofn fje bankans, og fjekk það svar hjá hæstv. forsrh., að hans flokkur kviði engu í því sambandi. Jeg sje enga ástæðu til að óttast nú það ákvæði, sem raunverulega felur í sjer sömu fjárhagsskuldbindingu og það, sem hjer var samþykt í fyrra, athugasemdalaust af þeim, sem nú eru hræddastir.