26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4492 í B-deild Alþingistíðinda. (3837)
103. mál, Landsbanki Íslands
Sigurður Eggerz:
Hv. 1. þm. Reykv. var að líkja tillögunum um sjerstakan seðlabanka við það, að við fengjum okkur 15 þús. smálesta línuskip til milliferða. En þetta er mikill misskilningur. Því að þótt við sjeum lítið þjóðfjelag, hefir það sýnt sig, að enginn aukinn kostnaður er að því að taka upp hið nýja fyrirkomulag á seðlabönkum. Gallarnir á gamla fyrirkomulaginu hafa alstaðar verið skornir burt með því að hafa seðlabankann banka bankanna. Til þess að þetta geti átt sjer stað, þarf ekki fjölbreytt þjóðfjelag. — Þó að einhver verslun sje lítil, er það engin sönnun þess, að hún eigi að nota gamaldags bókhald. Nei, vitanlega á hún að hafa nýtísku bókhald. Eins á þjóðin að hegða sjer í bankamálum. Hún á að taka upp það fyrirkomulag, sem er óbrotnast og öruggast. Í því liggur dauðasynd okkar, að við höfum tekið hið úrelta fyrirkomulag og skipað því til hásætis. Ef farin hefði verið sú leið, sem minni hl. bankanefndarinnar lagði til 1926, væri nú ekki verið að hræra í því, sem búið er að gera. Þó að þetta frv. verði að lögum, hlýtur óróinn að halda áfram, því að hinn rjetta grundvöll undir seðlabankann vantar eftir sem áður.
Það er engin röksemd fyrir því, sem samþykt var, að það væri í miklum meiri hluta í fyrra. Minni hlutinn hefir oft rjettara fyrir sjer, og við það verður hann með tímanum að meiri hluta.
Jeg þarf lítið meira að segja. En jeg vil að lokum skjóta til hv. 1. þm. Reykv. einni athugasemd, sem jeg vil biðja hann að sofna á, — því að einhverntíma hlýtur að koma að því, að hv. deild fái að ganga til hvíldar. Jeg vildi segja hv. þm., að hann fær áreiðanlega oftar en nú að súpa seyðið af því að hafa tekið þátt í að afgreiða þessi mál á ramvitlausum grundvelli.