27.03.1928
Neðri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4496 í B-deild Alþingistíðinda. (3845)
103. mál, Landsbanki Íslands
Halldór Stefánsson:
Það er stungið upp á því að fjölga mönnum í nefndinni. Jeg fæ ekki sjeð, hvaða virðingarauki henni er ger í því, ef hún fær ekki tíma til starfa eftir sem áður. Það er mitt álit, að afgreiðsla mála í nefndinni gangi ekki greiðlegar, þótt nefndin sje mannfleiri, heldur þvert á móti. Lít jeg svo á, að það yrði aðeins til þess að tefja framgang mála, ef mönnum yrði fjölgað í nefndinni. Legg jeg þess vegna algerlega á móti því, því að mig langar til þess — og sama hygg jeg megi segja um aðra nefndarmenn —, að þau mál geti orðið afgreidd, sem nú þegar liggja fyrir nefndinni.