07.04.1928
Neðri deild: 66. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4504 í B-deild Alþingistíðinda. (3855)

103. mál, Landsbanki Íslands

Frsm. annara minni hl. (Ólafur Thors):

Jeg vil byrja með að vekja eftirtekt hv. þdm. á því, að þegar við erum kvaddir saman á fund hjer í hv. deild, og það á óvenjulegum tíma, þá sjást ekki ráðherrarnir, og ekki einu sinni sá hæstv. ráðherrann (MK), sem þetta mál heyrir undir. Hæstv. stj. hlutast til um, að þingmenn mæti á þingfundum, hvort sem heldur er á nótt eða degi, en sjálf fer hún í felur eða hirðir ekki um að láta sjá sig. Og þó að við stjórnarandstæðingar viljum ræða málin og bera fram rök, sem ekki verða hrakin, þá er það virt að vettugi og hnefarjetturinn látinn ráða.

Hæstv. forsrh. hefir að vísu sýnt sig alloft í þessari hv. deild, enda á hann sæti hjer sem þm. En það verð jeg að segja, að hv. þm. Str. hefir stundum verið fyrirferðarmeiri hjer heldur en í vetur.

Jeg finn ástæðu til að víta hæstv. stj. fyrir það alvöruleysi, sem lýsir sjer í því að sækja ekki þingfundi og hlusta á rök þau, sem andstæðingar hennar hafa fram að færa í jafnstóru máli sem þessu. Og jeg heimta skýr svör við því, hvers vegna hæstv. stj. gengur svo hart eftir, að hæstv. forseti kemst ekki hjá að kalla þm. á fund á jafnóvenjulegum degi og í dag.

Að svo mæltu skal jeg snúa mjer að máli því, er fyrir liggur.

Jeg hefi lagt til í nál. mínu, sem ekki er búið að útbýta, að frv. þetta verði felt, og til þess liggja mörg rök, sem jeg skal nú víkja að í höfuðdráttunum.

Lögin um Landsbanka Íslands, þau er sett voru á Alþingi í fyrra og nú er farið fram á að breyta, voru ekki það flaustursverk, að þess væri að vænta, að svo bráðlega þyrfti að breyta þeim. Að vísu voru ekki allir sammála um þá lagasetning og þá niðurstöðu, sem komist var að endanlega, en um hitt getur ekki leikið á tveim tungum, að málið var mjög rækilega undirbúið. Lágu frumvörp um þetta mál fyrir öllum þingum frá 1924, og stundum fleiri en eitt, og voru rædd vel og vandlega. Bankastjórn Landsbankans hafði samið fyrsta frumvarpið og jafnan verið í ráðum með, erlendir sjerfræðingar, bæði fræðimenn á sviði bankamála og bankastjórar allra þjóðbanka Norðurlanda, höfðu rannsakað málið og gefið umsagnir sínar, og tvennar ríkisstjórnir höfðu búið málið undir þing. Auk þess hafði málið verið rætt í blöðum og á fundum. Það mun því leitun á því, að mál hafi fengið rækilegri undirbúning.

Það verður að teljast mjög varhugavert að vera oft að breyta löggjöfinni um slíka stofnun sem Landsbankinn er, í nokkru því, er verulegu máli skiftir. Með lögunum frá 1927 var bundinn endir á ýms deilumál, sem bankanum er óhagstætt, að ófriður sje um, en vita má, að gjósa upp í hvert sinn, sem verið er að hrófla við löggjöfinni um bankann. Og yfirleitt er það eitt af meginskilyrðunum fyrir því, að banki geti þrifist, að um hann sje sem mestur friður, sem mest rjettaröryggi og sem öruggust vissa um alt, sem honum viðkemur. Allur ófriður, öll óvissa og hringl með slíka stofnun, sem fyrst og fremst lifir á trausti manna hjer og erlendis, hlýtur að baka bankanum meira tjón beint og óbeint en svo, að tölum verði talið.

Breyting á lögum Landsbankans, sem ekki hafa enn verið í gildi í fult ár, hlýtur að vekja þær grunsemdir, sem þó eru rakalausar, eins og áður hefir verið sýnt, að löggjöfin um hann hafi verið óvönduð og gölluð. Svo fljót breyting og stórfeld hlýtur og að vekja þann óhug hjá mönnum, að þessu eða því líku eigi fram að fara eftirleiðis, að hringlað verði með löggjöfina um bankann, hvenær sem nýr meiri hluti í þinginu sjer leik á borði að hafa sinn vilja fram. Veit þá enginn, hvað hann má eiga víst, að því er bankann snertir, til langframa.

Ástæður til breytinga á lögum bankans þurfa því að vera mjög brýnar og hafa í för með sjer ótvíræða hagsmuni fyrir bankann, til þess að til mála geti komið að fallast á þær, en því fer fjarri, að hjer sje slíku til að dreifa. Þvert á móti verður að telja breytingar frumvarpsins flestar til hins lakara, og stærstu breytingarnar til stórmikils ógagns bæði fyrir bankann sjálfan og peningamálin í landinu. En öryggi peningamálanna í landinu yfirleitt er höfuðatriði í skipulagi seðlabankans og þjóðbankans, og jafnvel stærra atriði en sjálfur hagur bankans, ef þetta tvent gæti á annað borð verið aðskilið.

Fyrsta breytingin, sem farið er fram á að gera, er sú, að ríkið taki fulla ábyrgð á öllum skuldbindingum bankans, í stað þess að nú tekur ríkið ábyrgð á seðlabankanum með stofnfje því, sem það leggur honum, og frekar ekki, og á skuldbindingum sparisjóðsdeildar ber svo seðlabankinn ábyrgð með upphæð, sem nemur innstæðufje ríkissjóðs samkvæmt lögunum frá 1913, þar til er varasjóður sparisjóðsdeildar nær 10% af innstæðum í sparisjóði.

Það er þegar augljóst, hver munur er á þessu tvennu. Eftir lögunum ber ríkissjóður að vísu óbeinlínis ábyrgð á því, að ekkert tapist hjá bankanura af því, sem þar er, þegar lögin ganga í gildi. Fram til 1927 ljek sem sje nokkur vafi á því, hvort ríkisábyrgð væri á sparisjóðsinnstæðum og öðrum skuldbindingum bankans, og var því ekki rjett, að neinn þyrfti að óttast um sitt fje, sem slíkri ríkisábyrgð hafði treyst. En upp frá því nær ábyrgð ríkissjóðs ekki lengra en til stofnfjárins. Hann gerir bankann svo vel úr garði sem þörf er talin til þess að hann megi heita vel tryggur og sterkur banki, en lætur hann að öðru leyti sigla sinn sjó.

Þetta er jafnnauðsynlegt fyrir Landsbankann og aðrar peningastofnanir í landinu. Bankanum sem seðlabanka er ekki sjerlega hentugt, að í hann sogist megnið af sparifje landsmanna. Það er erfitt fyrir hann að ávaxta það svo trygt sje, og gæti m. a. lent í því, að hann yrði að gefa lægri vexti af því en smærri peningastofnanir gætu gefið. En sjeu tímarnir á hinn bóginn varasamir og tortrygni innstæðueigenda vöknuð, fara þeir með peningana þangað, sem þeir telja þá studda af ábyrgð ríkisins, jafnvel þó að þeim sje annars skaði að því.

Á hinn bóginn hlýtur ríkisábyrgð á einum sparisjóði í landinu að gera öðrum sparisjóðum ómögulegt að halda innstæðum manna, nema þá með því að fara að bjóða óeðlilega háa innlánsvexti, en það verður bæði þeim háskalegt og hjeruðum þeim, sem njóta eiga útlána úr þeim, til afarmikilla örðugleika. En það verður að teljast eitt hið nauðsynlegasta í okkar fjármálum, að peningastofnanir geti þrifist sem víðast úti um landið, og ætti ekkert að gera, sem getur komið í veg fyrir stofnun nýrra sparisjóða eða dregið úr krafti þeirra, sem fyrir eru.

Í þessu máli mun best að forðast báðar öfgarnar: Of mikinn ótta við það, að sparisjóður sje starfræktur með gætni við hlið seðlabankans, og á hinn bóginn óeðlilegar ráðstafanir til þess að draga sem allra mest sparisjóðsfje að bankanum.

Þá var í frv., eins og það var upprunalega borið fram, að tilhlutun ríkisstjórnarinnar farið fram á það, að svifta bankann stofnsjóði þeim, sem honum er ætlaður eftir lögunum frá 1927 og sem á bæði að efla bankann alment, gera honum mögulegra að starfa án stórfeldra erlendra lána og einkum gera honum kleift að hafa seðla sína fulltrygða. — Þessu hefir nú verið breytt þannig, að ríkisstjórninni er heimilt að leggja bankanum til „viðbótarstofnfje“, alt að 3 miljónum króna.

Þetta bætir að vísu allmikið úr skák, er til þess kemur fyrir bankann að gulltryggja seðlana. Eftir brjefi Landsbankastjóranna, dags. 28. febr. þ. á., mundu 3 miljónir sennilega endast til þess, að hægt væri að koma gulltryggingunni í rjett horf án þess að grípa þurfi til þess óyndisúrræðis að draga fje úr viðskiftaveltunni að mun, til þess að ná innieign erlendis.

En hjer er sá munur á, að þessi stofnfjárauki á að vera kominn undir geðþótta stjórnarinnar, í stað þess að vera skýlaus krafa, sem bankinn á, og er þetta tvent ólíkt.

Eins og kunnugt er, hefir nú alveg nýlega farið fram gagnger skoðun á öllum bankanum og mat á hag hans. En þótt einkennilegt megi virðast, hefir ekki fengist nein skýrsla frá ráðherra um niðurstöðuna af þessari skoðun. Ef svo er, sem vonandi er, að skoðunin hafi ekki leitt í ljós eignatjón af töpum, sem skerði innskotsfje ríkissjóðs í bankanum, og ef ríkisstjórnin notar heimildina til þess að greiða bankanum „viðbótarstofnfjeð“ að fullu, þá fær bankinn þann stofnsjóð, sem honum var ætlaður með lögunum frá 1927. En sje misbrestur á öðruhvoru þessu, er bersýnileg skerðing á styrkleika bankans fólgin í þessari breytingu, og bankinn gerður að sama skapi ómáttugri til þess að inna af hendi aðalhlutverk sitt, „að stuðla að tryggri skipun á peningamálum landsins“. Þessa tvíþættu óvissu í svo mikilsvarðandi máli teljum við einn höfuðókost frumvarpsins, þegar það er borið saman við núgildandi lög bankans.

Þá er farið fram á það, að breyta í ýmsum atriðum stjórn bankans og starfstilhögun. Má að vísu segja, að flest af því hafi fremur litla þýðingu fyrir hag bankans alment. En bæði má segja um þetta það sama, sem hjer hefir áður verið sagt um löggjöfina um bankann alment, að óheppilegt sje að gera á þessu tíðar og tilefnislitlar breytingar, og svo sýnist sumt af þessum breytingum miða að því helst að láta nýjan meiri hluta í þinginu, sem nú er kominn að völdum síðan lögin voru sett í fyrra, ná þegar í stað yfirhönd í stjórn bankans. En það verður að teljast eitthvað það skaðlegasta, sem hugsast getur fyrir peningastofnanir, að þær verði augljóslega að leiksoppi stjórnmálaflokkanna. Kemur það ekki heldur sem best heim við það, sem á að vera tilgangurinn með einni aðalbreytingu frumvarpsins, kosningu landsbankanefndarinnar, sem sagt er, að eigi að verða skjólgarður fyrir bankann gegn sviftivindum þeim, sem ráða aflsmun flokkanna í þinginu. Slíkir skjólgarðar, sem að vísu gætu verið gagnlegir, verða að litlu haldi, ef hver nýr meirihlutaflokkur neytir aflsmunar til þess að láta yfirstjórn bankans víkja og kjósa eða skipa þar nýja menn.

Breytingarnar eru þessar helst: Kjósa á landsbankanefnd, 15 menn, sem svo kýs aftur 4 menn í bankaráð, setur reglugerð fyrir bankann, kýs endurskoðendur, úrskurðar reikninga bankans og tekur ákvarðanir um önnur mál, sem fyrir hana verða lögð.

Þessi tilhögun er tekin eftir tillögum milliþinganefndar í bankamálum, og átti að vera til þess, að síður gætti í stjórn bankans þeirra snöggu breytinga, sem stundum geta orðið í þinginu. En áhersla mun aldrei hafa verið á það lögð af nefndinni, þó að hún vildi leggja þessa uppástungu fyrir þingið. En hafi það þótt álitamál á sínum tíma, hvort rjett væri að skipa þetta mikla nefndarbákn, sem vitanlega er nokkuð þungt í vöfum, þá sýnist engin minsta ástæða vera til þess að vera nú að hringla með þetta mál frá því, sem einu sinni var ákveðið. Dálítinn kostnað getur þetta líka haft í för með sjer.

Athygli skal vakin á því, að störf landsbankanefndarinnar eru talin í grein þeirri, sem á að verða 41. gr., en jafnframt hefir láðst að fella niður ákvæðin um skipun sömu mála annarsstaðar í lögunum. T. d. er ekki feldur niður n-liður 38. gr., þar sem bankaráðinu og ráðherra er ætlað að setja reglugerð um bankann, ekki ákvæði 21. gr. um það, að ráðherra skipi endurskoðendur bankans eftir tillögum bankaráðs til 3 ára, og ekki síðasta málsgrein 22. greinar um það, að ráðherra úrskurði ársreikninga bankans. Öll þessi störf eru ætluð landsbankanefndinni eftir frv., og á sumum þessum störfum er breytt tilhögun. Má vera, að fleira sje af líku tægi í frv., en þar sem jeg legg það til, að frv. verði ekki afgreitt, hefi jeg ekki hirt að leita það uppi.

Feld er niður sú tilhögun, að einn af bankastjórunum sje aðalbankastjóri, og látið vera svo rúmt um ákvæðin um laun hans, að bankaráðið geti svo að segja tekið í þá stöðu hvaða mann á landinu, sem það treystir best. — Þetta verður að telja tvímælalaust til hins lakara. Er jafnan sterkast, að höfuðábyrgðin sje á eins manns herðum, en hæfileikar og kunnugleiki allra bankastjóranna gátu jafnt notið sín fyrir því.

Daglegt eftirlit bankaráðsmannanna er felt niður í frv. Þetta daglega eftirlit getur verið mikils virði. Og hvað sem því líður, er það ófært afspurnar, að verið sje að draga úr því eftirliti með bankarekstrinum, sem eitt sinn hefir verið sett. Stofnanir, sem eru jafnmikið reistar á trausti allra út á við eins og bankar eru, mega ekki við því, að verið sje að leika sjer að því að veikja það traust með neinu. Er eðlilegt, að þeir, sem nokkuð eiga í húfi viðvíkjandi bankanum, spyrji, hverju það sæti, að nú sje þegar verið að ómaka sig að gera lagabreytingu um þetta atriði, og getur það á þann hátt vaxið í hugum manna, jafnvel langt fram yfir það, sem það á skilið.

Loks má nefna ýms smávægilegri atriði, sem feld eru burtu, svo sem skylduna að skýra fráviknum bankastjóra skriflega frá frávikningarsökinni. Sýnist þó varla minna mega vera, þegar starfsmaður verður fyrir svo stóru áfalli sem frávikning er. Feld er niður sú sjálfsagða starfsregla, að meiri háttar ráðstafanir sjeu ekki framkvæmdar nema allir bankastjórar samþykki. Feld er og niður skyldan að halda ýmsar fundabækur og dagbækur og ýms önnur ákvæði, sem miða til þess að tryggja góða afgreiðslu mála og annað slíkt. Þótt í smáu sje, vekur það ekki þá tilfinningu, nema síður sje, að verið sje að hlynna að þessari stofnun og auka henni traust.

Af því, sem nú hefir sagt verið, má það verða ljóst, að breyting sú á Landsbankalögunum, sem hjer er farið fram á, verður ekki til þess að bæta fyrir bankanum eða skipa peningamálum landsins betur en verið hefir. Sjálf breytingin hlýtur að vekja eftirtekt og undrun þeirra viðskiftamanna erlendis, sem hafa fengið lög bankans frá því í fyrra í hendur og eru óvanir slíkum stökkbreytingum á löggjöf aðalbankanna. — Þessi skaðlegu áhrif af breytingunni verða þó auðvitað meiri við það, að nálega allar breytingarnar miða að því að gera bankann veikari fjárhagslega og að því er snertir stjórn og eftirlit. Þess þarf ekki að geta, að háskalegast fyrir traust manna á bankanum og álit á þeim, sem um mál hans fjalla, væri þó það, ef tækifærið væri nú tekið til þess að skifta um menn í yfirstjórn bankans vegna þess að breyting hefir orðið á í stjórnmálunum. Ef menn úti í löndum ættu að sjá það, að hjer á Íslandi væri skift um yfirstjórn seðlabankans eftir því, hver stjórnmálaflokkur hefir yfirhöndina, mundi vera rothögg á það traust, sem þeir nú bera til fjármála okkar.

Reynt hefir verið að ná samkomulagi við meiri hl. fjhn. og leitað hófanna hjá ráðandi mönnum í stjórnarfl. um 3 breytingar:

1. Ábyrgðarákvæðið gildi aðeins seðlabankann.

2. breytingar á bankaráðinu komi ekki til framkvæmda fyr en kjörtímabil núverandi bankaráðs er útrunnið.

3. heimildin um viðbótarstofnfje verði skylda.

En þetta hefir reynst árangurslaust, og teljum við því vonlaust að bera fram brtt. um þetta.

Jeg vil segja það í sem fæstum orðum, að jeg álít frv. skaðlegt fyrir Landsbankann. Jeg álít, að það sje fram komið til minkunar fyrir löggjöfina, þar sem nú á að fara að breyta því, sem samþ. var í fyrra og búið var að fá þann undirbúning, sem þurfa þótti. Jeg álít, að frv. lýsi pólitískum vanþroska og hlutdrægni og verði til spillingar. Auk þess, sem frv. er stórskaðlegt, hefir það þann ágalla, að með því er stefnt að því að breyta einni höfuðlöggjöf landsins, eftir að búið er að ganga frá henni fyrir ári síðan, Jeg verð að segja það, að jeg álít yfirleitt betra, að löggjafarnir vandi starf sitt og að færri frv. sjeu borin fram, svo að ekki þurfi að breyta því árinu á eftir, sem gengið var frá árinu á undan. Jeg þekki ekki víða annarsstaðar til, en jeg er þess fullviss, að við þolum engan samanburð í þessu efni. Eins og þessu þingi er farið, er ekki von, að það afgreiði nokkurt mál skammlaust. Fyrir því liggur meiri málafjöldi en nokkru sinni áður, þingtíminn á að vera skemri en venjulega er og þingfundirnir standa lengur en áður hefir verið. Stj. rekur hart á eftir, svo að lítill tími vinst til að athuga málin, enda er afgreiðsla margra þeirra til skammar. Sömu mennirnir, sem flytja málin, eru látnir athuga þau í nefnd. Jeg hefi sjeð frv. frá Ed. með broslegum formgöllum, en þó eðlilegum, þegar þess e. gætt, hve lítill tími vinst til að athuga málin. Jeg endurtek það, að það er auðvelt fyrir hæstv. stj, að heimta fundi, þegar hún mætir ekki sjálf á þeim til þess að gefa skýringar og svara því, sem að henni er beint. Starf okkar stjórnarandstæðinganna, sem engu fáum ráðið, er fyrst og fremst það, að gagnrýna málin, og þetta starf okkar er gert erfitt með því að halda okkur á fundum fram á nótt og meina okkur jafnvel að vinna á nefndafundum.