07.04.1928
Neðri deild: 66. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4526 í B-deild Alþingistíðinda. (3857)
103. mál, Landsbanki Íslands
Gunnar Sigurðsson:
Jeg skal taka undir það, sem hjer hefir verið sagt, að þetta er stórmál, sem nú er á ferð undir þinglokin, eins og oft er um stórmálin; þau eru afgreidd síðust og stundum í flaustri.
Þetta er að mínu áliti mesta stórmálið, sem fyrir þessu þingi liggur. Svo er um þau mál, er að einhverju leyti snúast um peningastofnanir hvers lands. Bankamálin hljóta ávalt að vera mál málanna, ekki síst hjer. Jeg ætla að fullyrða, að hvergi í mentuðum heimi ríki önnur eins óreiða og óregla á sviði bankamálanna og hjer á landi. Umræður um þetta mál virðast mjer hafa farið nokkuð á svig við aðalkjarna þess og meira snúist um formshlið þess en góðu hófi gegnir. Og skal jeg reyna, eftir því sem jeg get, að koma nokkru nær kjarna málsins. Sá er munurinn hjer heima og annarsstaðar í mentuðum heimi, að eftir stríðið, sem olli stórkostlegu hruni í bankamálum yfirleitt, hafa aðrar þjóðir skorið fyrir meinið, strax er tími gafst til, og svo, að það er nú í nálægum löndum læknað, en það hefir okkur ekki tekist.
Fyrri þing hafa verið ákveðin í því að láta rannsaka Íslandsbanka og „rekonstruera“ hann eftir því sem hægt væri. En jeg sagði, er jeg átti hjer sæti á Alþingi hið fyrra sinn, og jeg ætla jeg væri einn um þá skoðun, að það væri alveg eins mikil þörf á að rannsaka sjálfan þjóðbankann, ef ekki miklu meiri. Það hefir líka komið á daginn, að jeg hafði rjett fyrir mjer. Sú virðingargerð, sem fram fór á bankanum í vetur, sýnir það ljóslega. Jeg vil taka það fram, að jeg tel það misráðið að leggja launung á þessa rannsókn. Jeg veit, að álit slíkrar rannsóknar berst út meðal fólksins hvort sem er, og þá oftast ýkt, og er það illa farið. Og engin ástæða er til að ætla, að öðruvísi fari erlendis.
Það hefir verið tekið fram hjer og er rjett, að það er aldrei hægt að fá nákvæma virðingu á hag bankans. Jeg vona, að sú virðing, sem nú hefir farið fram á bankanum, og jeg veit vel um, þótt jeg vilji ekki rjúfa þögnina, reynist ekki of há. Það hefir hvergi komið í ljós í næstu löndum, þar sem slík rannsókn sem þessi hefir farið fram, að hún reyndist of bjartsýn, heldur þvert á móti.
Erlendir fjárgróðamenn skilja ekki, að neinu þurfi að leyna í sambandi við virðingargerð bankans. Þeir heimta skýlaust að vita, hvernig hag hans er komið, ef þeir eiga að fást til að lána honum fje. Hitt má ekki vaxa okkur í augum, þótt bankinn hafi orðið fyrir nokkurra milj. kr. tapi. Við verðum að muna, að þjóðin framleiðir fyrir ca. 80 milj. árlega, svo að tapið er ekki svo mikið á erlendan mælikvarða. Það fyrsta, sem lánveitandi spyr um, ef beðið er um lán, er það, hvernig fjárhagurinn sje. Þegar hann veit það, er hann kannske tilleiðanlegur, en alls ekki, ef hann fær ekkert að vita.
Jeg sagði áðan, að jeg mundi koma nær kjarna málsins um stjórn Landsbankans.
Jeg er mjög tilleiðanlegur til þess að gera þessar breytingar á lögun. bankans. En mjer skilst, að til þess að haldi komi þurfi að fara fram alger stefnubreyting um stjórn bankans. En þá þarf að stíga stærra spor en gert er með þessu frv. Það þarf að skifta algerlega um stjórn í bankanum eða setja honum yfirstjórn, er taki í taumana. Það þarf að verða grundvallarbreyting á stjórn bankans á einhvern hátt. Það er vitanlegt öllum, að ýmislegt við lánafyrirkomulagið er öðruvísi en í öllum öðrum menningarlöndum. Fjenu hefir verið ausið út fyrirhyggjulítið í einstaka menn og peningastofnanir án þess hægt væri að fá góðar tryggingar. Afleiðingin er sú, að bankinn hefir orðið fyrir allstórum töpum, stórum á okkar mælikvarða. Á það hefir verið minst áður, hve ýmislegt annað hefir setið á hakanum, sjerstaklega að því er fasteignaveð snertir. Hefir aldrei fengist lán út á fasteignir nema gegn 1. veðrjetti. Um tíma var jafnvel svo, að fasteignir voru alls ekki veðhæfar; það var alls ekki lánað út á þær. Hjer hefir mest ranglætið verið framið í því, hve misgreiðan aðgang menn hafa átt að bankanum. Ef til vill stafar það af því, að bankinn hefir haft of lítið veltufje. En það er þá landsstjórnarinnar að bæta úr því. Og það er í trausti til þess, að hæstv. stjórn reyni að stíga spor í þá átt að lagfæra þetta, að jeg greiði atkvæði með þessum breytingum. Mjer er ekki sárt um bankalögin frá í fyrra, því að jeg er á móti þeim að .,principinu“ til. Jeg get því verið með breytingum, og það sem víðtækustum breytingum. Jeg hefi verið og er enn því fylgjandi, að stofna öflugan fasteignaveðbanka, sem yrði banki bændanna, en þó svo að hann tæki húseignir og lóðir í bæjum sem tryggingar fyrir lánum. Því verður ekki neitað, að landið sjálft er tryggasti grundvöllur undir banka. Fasteignabankinn ætti að hafa seðlaútgáfuna með höndum, en ekki sparisjóðsstarfsemi. Það var aðallega þess vegna, að mjer þótti Framsóknarflokkurinn hafa hvikað frá þessari stefnu, að jeg var ekki í kjöri fyrir þann flokk við síðustu kosningar. En það gleður mig, að hæstv. atvmrh. gefur í skyn, að seðlaútgáfan verði sett í samband við þennan banka, er hann verður stofnaður. Og jeg skora á hæstv. stjórn að gera þá breyting á, að seðlaútgáfan verði lögð við þennan banka, er hann verður settur á stofn.
Jeg skal taka það fram, að jeg tel nauðsyn á, ef ríkissjóður á að taka ábyrgð á bankanum, að þingmenn viti, hvað þeir eru að ábyrgjast fyrir landsins hönd. Það kann að vera, að margir hv. þingmenn viti um matið á bankanum, en þeir eru ekki allir, sem vita um niðurstöðu þess. Og það er alls ekki rjett að ætlast til þess af mönnum, að þeir gangi að ábyrgð á því, sem þeir vita ekki neitt um.
Hagur Landsbankans og landsins í heild sinni er svo samfljettað og nátengt, að vart verður aðskilið. Þess vegna er svo mikilsvert og nauðsynlegt að bankanum sje vel stjórnað, eins og jeg mintist á og hefi lagt áherslu á í þessu sambandi, en mun nú ekki fara frekar út í.
Ef jeg greiði atkvæði með þessum breytingum, sem jeg býst við að gera, því að mjer er sem sagt ósárt um fyrirkomulagið eins og það er og vildi helst gerbreyta því, þá er það í trausti þess, að hæstv. landsstjórn láti hendur standa fram úr ermum og undirbúi fyrir næsta þing löggjöf um að „rekonstruera“ bankann og gera hann sem sterkastan. Þá fyrst er mögulegt, að hann taki að sjer seðlaútgáfuna. fyrir alvöru, ef honum er sjeð fyrir meira rekstrarfje. En það er tæplega hægt eins og er að leggja honum slíkan vanda á herðar, og lítt verjandi því vitanlega er bankinn „insolvent“. En jeg teldi þó æskilegt og vænti þess, að hæstv. stjórn taki það til athugunar að koma á fót fasteignaveðbanka, banka sveitanna og þeirra allra, sem eiga fasteignir við sjó, og seðlaútgáfan verði sett í samband við hann og jafnframt gerð gangskör að því að láta verða straumhvörf í stjórn Landsbankans, svo að það geti ekki komið fyrir, að sumir menn fái margar miljónir, en aðrir ekki neitt og bankinn þurfi ár frá ári að afskrifa stórupphæðir fyrir töpum af þeim sökum.