10.04.1928
Neðri deild: 67. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4578 í B-deild Alþingistíðinda. (3862)

103. mál, Landsbanki Íslands

Jón Auðunn Jónsson:

Þegar hefir verið farið um það nokkrum orðum, hvað felst í þeim breytingum, sem frv. mundi gera á Landsbankalögunum, ef það yrði samþ. Hefir verið margsýnt fram á það, að ábyrgð ríkisins á innlánsfje bankans er í fyrsta lagi viðsjárverð og í öðru lagi ýmist óþörf eða beinlínis skaðleg fyrir bankann sjálfan. Út í þá áhættu, sem af ábyrgðinni getur stafað fyrir ríkið, ætla jeg ekki að fara. En um hitt ætla jeg að bæta við nokkrum orðum, hver þörf sje ábyrgðarinnar eins og gert er ráð fyrir henni samkv. frv., og hver styrkur hún muni verða bankanum.

Það er öllum vitanlegt, sem skyn bera á þessi mál, að þau rúm 40 ár, sem bankinn hefir nú starfað, hefir hann fengið eins mikið af innlánsfje frá landsmönnum og honum hefir verið affarasælt að nota. En nú lítur út fyrir, að fylgismenn þessa frv., og þar á meðal hæstv. stjórn, álíti heppilegt, að alt innlánsfje landsmanna sje á einum stað — hjá seðlabankanum. Hæstv. fjmrh. sagði, að hann sæi ekki, að sparifje landsmanna væri betur komið annarsstaðar en í Landsbankanum. Í öðrum löndum þykir áhætta, að seðlabankar taki svo mikið sparifje, að þeir verði að lána það svo um muni út í daglegum viðskiftalánum. Í Englandi gengur varúðin svo langt, að jafnvel „prívat“-bankar taka ekki við sparifje, nema þeir viti, hve lengi það á að standa inni; ennfremur spyrjast þeir vandlega fyrir um ástæður sparifjáreigandans, til hvers hann muni þurfa að nota fjeð o. s. frv. Jeg veit, að hjer í hv. deild eru nokkrir menn, sem eru því kunnugir, að sje fje lagt inn í enska banka, er aflað þessara upplýsinga og gengið ríkt eftir þeim, og það er af því, að bankarnir telja sparifje, sem lagt er inn til skamms tíma, hættulegt, nema þá óverulega lítið sje, samanborið við veltufje viðkomandi stofnunar. Er það þá ekki enn hættulegra fyrir seðlabanka að binda sig við sparifje? Svo mun farið um alla seðlabanka Evrópu, að þeir setja ákveðin takmörk fyrir því, hve miklu sparifje þeir veita viðtöku árlega.

Af þessum orsökum er ábyrgð sú, sem farið er fram á, að ríkið veiti, bankanum hættuleg, svo framarlega, sem stjórn hans takmarkar ekki innlánsfje. Sje meiningin sú, að Landsbankinn eigi ekki að veita innlánsfje viðtöku takmarkalaust, er háskalegt að ýta undir hann að gera það. Jeg vona, að hv. flm. þessa frv. líti svo á, eins og allir aðrir, sem skynbærir eru um þetta mál, að stórhættulegt sje fyrir bankann að láta hann hafa ótakmarkað innlánsfje. Því óskiljanlegra er, að þeir skuli vilja veita honum þessa ábyrgð. Hættan fyrir seðlabanka er í því fólgin, að ef þeir hafa mikið sparifje, sem þeir þá neyðast til að lána út til almennings, þá verður þetta fje fast og bankinn getur ekki náð því inn þegar fjárkreppu ber að höndum; en einmitt þá er það, að seðlabankinn þarf að hafa fje sínu svo fyrir komið, að hann með litlum fyrirvara geti heimt það heim, því einmitt þá — þegar fjárkreppa skellur yfir — er áríðandi, að seðlabankinn hafi mikið af handbæru fje, bæði innlendu og erlendu, til þess að geta hindrað fjárhagslegt hrun. Eignarfje hans verður því að vera tiltölulega meira en annara banka. Enginn efi er á því, að hún getur á ýmsum tímum skert lánstraust ríkisins út á við.

Samkv. frv. er ekki tekin ábyrgð fyrir ríkisins hönd á fje, sem fengið er frá útlöndum, nema til komi samþykki þingsins í hvert sinn. En eins og hv. þm. Dal. benti á, er auðvelt að fara kringum þetta ákvæði. Og ekki er annað sýnilegt en það muni verða gert. Svo hefir farið erlendis, og mun einnig fara hjer, þegar fjármál landsins eru komin í það horf, sem ætla má, að þau komist í, að umboðsmenn erlends fjármagns taka sjer aðsetur í landinu, og fyrir milligöngu þeirra eru lánin tekin. Með því móti gætu lánin orðið íslensk að nafninu, þó að fjeð væri erlent. Í Danmörku og öðrum löndum, sem þurfa á erlendu fje að halda, eru lánin venjulega fengin hjá víxlarafjelögum, sem hafa umboð erlendra lánveitenda. Svo mundi hjer fara. En samkv. frv. mundi eigi þurfa samþykki Alþingis til slíkrar lántöku.

Hjer hefir verið mikið deilt um hina siðferðislegu og fjárhagslegu ábyrgð. Ekki þætti mjer óhugandi, að það gæti komið fyrir, að Alþingi skifti um skoðun í þessu atriði og vildi eigi láta ríkið bera ábyrgðina. Því fremur er ástæða til að búast við þessu, sem sjáanlegt er, að breyting bankalaganna er nú knúin fram með flokksfylgi og til þess eins að reyna að sjá flokkshagsmunum borgið. Engin sæmileg ástæða hefir verið færð fyrir nauðsyn þessara breytinga að því er hagsmuni bankans snertir. Jeg veit ekki, hvort allir hv. þdm. hafa gert sjer grein fyrir, hver hnekkir þetta yrði bankanum.

Það var fyrrum álitið, að sænski ríkisbankinn hefði ábyrgð ríkisins að baki sjer. Þó hefir komið fyrir, að hann hafi innleyst seðla sína fyrir neðan nafnverð. Þetta hefir honum liðist, og jeg hygg, að sama mundi verða hjer.

Það hefir verið gert svo mikið úr þessari ábyrgð ríkissjóðs á bankanum, að sumir þm. í Ed. hafa látið sjer það um munn fara, að ríkisábyrgðin væri eins mikils virði og gulltrygging. Þetta er mælt af fullkomnum ókunnugleik. Þessi ábyrgð kemur ekki að haldi, þar sem mest á ríður, nefnilega gagnvart erlendum lánardrotnum. Gulltrygging er miklu nauðsynlegri en margir vilja viðurkenna. Þrátt fyrir ýmsar raddir um að fella niður gulltryggingu og setja t. d. fasteignatryggingar í staðinn, hefir engin þjóð sjeð sjer fært að breyta þannig um. Þær raddir, sem voru uppi um þetta í ófriðarlokin, hafa ekki látið bæra á sjer síðustu árin. Eitt af því, sem sýnir, að mönnum finst sjálfsagt og traustvekjandi, að gulltrygging banka sje í lagi, er það, að erlendis gefa seðlabankar skýrslur um gullforða sinn á viku-, hálfsmánaðar- eða mánaðarfresti. Á stríðsárunum var það talið sjerstakt merki um góðan fjárhag ríkja, að hafa ekki of mikið af seðlum í umferð og góða gulltryggingu. Og þegar við fáum Landsbankanum seðlaútgáfuna í hendur, þá er það skylda okkar að sjá um, að gulltryggingin sje ekki í lakara horfi en hjá nágrannaríkjunum, þar sem þessum málum er vel fyrir komið.

Þá eru þær breytingar í frv. frá núgildandi lögum, að kipt er burtu ákvæðinu um, að ríkissjóður leggi bankanum til 3 milj. kr. stofnfje til viðbótar þeim 2 milj., sem bankanum voru lagðar með lögum nr. 50, 10. nóv. 1913. Sumir hafa viljað segja, að þetta væri bætt upp með ríkisábyrgðinni, en slíkt er hin mesta fjarstæða. Það hefir þegar verið auglýst út um allan þann fjármálaheim, sem við höfum viðskifti við, að ríkissjóður leggi bankanum til 5 milj. kr. stofnfje. Hafa menn gert sjer ljóst, hve mikil traustspjöll kunna af því að leiða fyrir bankann, að hann verður nú, ef frv. nær samþykki, að tilkynna viðskiftamönnum sínum erlendis og öllum, sem um það spyrja, að óákveðið sje, hvort bankinn eigi nokkra sjálfseign, og að ríkissjóður hafi ekki viljað leggja þetta fje fram, er á herti? Jeg hygg, að allar þær stofnanir og einstaklingar í útlöndum, sem nokkuð skifta að ráði við bankann, spyrji um, hve fyrirkomulagi hans sje háttað. Jeg hefi fengið fyrirspurnir um þetta frá góðu firma erlendis, og hefi auðvitað svarað eins og lögin frá í fyrra gáfu tilefni til, að ákveðið væri, að Landsbankinn tæki seðlaútgáfuna í sínar hendur og ríkissjóður legði bankanum fje, svo að bankinn hefði 5 milj. kr. stofnfje. Allir, sem slíkar upplýsingar hafa gefið, neyðast nú til að skýra frá þeim breytingum, sem á þessu verða samkv. frv. Það er ekki þægilegt að verða að skýra frá þeim, en það er skylda þeirra, sem áður hafa gefið upplýsingar, sem bygðar voru á lögunum frá í fyrra. Hafa menn athugað, hvílík traustspjöll þessar nýju upplýsingar kunna að hafa í för með sjer fyrir bankann?

Auk þess er vitanlegt, að seðlabanki, sem byrjar starfsemi sína án þess að hafa yfir eigin fje að ráða, er illa staddur, jafnvel þótt ríkið taki ábyrgð á honum, ef hann á að inna starf sitt af hendi á þann hátt, að heppilegt sje fyrir þjóðfjelagið.

Seðlabankar hafa ekki sömu aðstöðu til að græða fje og aðrir viðskiftabankar, og liggja til þess margar ástæður. Þeir liggja með mikið fje, sem er umfram vanalega veltufjárþörf landsmanna og því óarðberandi tímum saman. Þeir eru skyldir að hafa handbært æðimikið af erlendum gjaldeyri, hvenær sem er, en hans er eigi jafnmikil þörf hjer allan tíma árs, og þótt þeir aðeins útvegi erlend lán, kostar það þá mikið í lántökugjald (provision). Það er líka venja seðlabanka að reyna að halda niðri vöxtum, og hefir það auðvitað kostnað í för með sjer. Útlánsvextir seðlabanka eru ávalt 1–2% lægri en útlánsvextir „prívat“-banka.

Af öllu þessu leiðir, að seðlabankar hafa verri aðstöðu til að græða en aðrir bankar, og því lítil von um, að þeir græði fje, sem nokkru nemur. Ákvæði 3. gr. um varasjóð eru því harla lítils virði, því að enginn vafi er á því, að ef gróða bankans er skift eðlilega, lendir mestur hluti gróðans hjá sparisjóðsdeild, eða hinni almennu viðskiftadeild bankans, enda þarf svo að vera, því að þar lenda stærstu skellirnir, sem óhjákvæmilega hljóta ávalt að vera nokkrir, eins og atvinnuvegum okkar er háttað.

Auk þess þarf seðlabankinn að liggja með mikið af gulli til að tryggja seðla sína. Auðvitað fær hann vexti af seðlum, sem í umferð eru, en hann verður einnig að liggja með mikið af óarðberandi seðlum á ýmsum tímum, ef bankalífið á að vera heilbrigt fyrir þjóðina. Vonandi kemur ekki fyrir aftur, að við gefum út seðla umfram viðskiftaþörf, aðeins til að komast hjá bankahruni. Hin óeðlilega mikla seðlaútgáfa Íslandsbanka var ein af orsökum til óáranarinnar í peningamálum landsins árin 1921–1924. Eina tryggingin, sem ríkið getur gefið fyrir því, að peningamálin standi á heilbrigðum grundvelli, er sú, að það sjái seðlabankanum fyrir sæmilega miklu eigin fje í byrjun. Það þætti lítið fje, þótt bankinn byrjaði með 5 milj. kr., í samanburði við það, sem heimtað er af seðlabönkum, að þeir eigi af eigin fje nokkru meira en nemur gullforða þeim, er þeir verða að hafa til tryggingar seðlunum. Jeg skil ekki í, að ríkisvaldið vilji leika Landsbankann svo hart að svifta hann þessu nauðsynlega stofnfje, og jeg trúi því ekki, að ábyrgðarleysi hv. þm. sje svo mikið, að þeir vilji stofna til þeirra vandræða, sem af því kynni að leiða. Jeg tel það með öllu óviðeigandi, ef Alþingi ætlar að tala upp gerólíka stefnu í bankamálunum við það, sem tíðkast hjá öllum seðlabönkum Norðurálfunnar, að undanskildu Rússlandi (hæstv. landsstjórn virðist í þessu sem öðru þræða götu kommúnista) og láta þann banka, sem hefir seðlaútgáfu ríkisins með höndum, byrja ver en allslausan, enda þótt hann sje bundinn við stærra og áhættumeira verksvið en nokkur annar seðlabanki.

Þá kem jeg að þriðju aðalbreytingunni, sem frv. fer fram á og er í því fólgin að setja þetta innantóma höfuð, landsbankanefndina, eins og einn greindur og gegn þm. komst að orði, á bankann. Engin skynsamleg ástæða hefir verið færð fyrir því, að rjett sje eða nauðsynlegt að setja þetta bákn á laggirnar, enda virðist mjer, sem meðmælendur frv. viðurkenni, að það sje nafnið tómt og ekkert annað. Hv. frsm. meiri hl. sagði, að sjálfsagt væri, að allir, sem við bankann störfuðu, væru þagnarskyldir um hag bankans, en hinsvegar væri þetta ákvæði ekki nauðsynlegt um landsbankanefndina, því að ekki væri líklegt, að hún fengi vitneskju um þau einstök atriði í starfi bankans, sem helst ætti að vera þagnarskylda um. Þetta er að mínum dómi alveg rjett hjá honum. Eins og stofnað er til landsbankanefndarinnar, hygg jeg, að hún geti ekki orðið fær um að kynna sjer svo hag bankans, að hún geti borið neina ábyrgð á honum. Starf hennar yrði lítið annað en að koma saman og samþykkja það, sem til væri lagt af bankaráði og framkvæmdarstjórn, gefa skýrslur, sem nefndin gæti ekki vitað af eigin þekkingu, hvort rjettar væru eða ekki, og — ef til vill — reyna að hafa pólitísk áhrif á framkvæmdir bankans. Þessi nefnd, sem hv. frsm. og sumir hv. þm. í Ed. álíta, að muni ekki fá þá vitneskju um hag bankans, að ástæða sje til, að á henni hvíli þagnarskylda, henni á að fela að úrskurða reikninga bankans. Jeg held, að ekki hafi verið hægt að sýna fram á það á nokkurn hátt, að þörf sje á þvílíku nefndarbákni, og því er eðlilegt, að meðmælendum frv. fipist í röksemdum sínum.

Þá er einnig vert að athuga það, að stjórn Landsbankans hefir skýlaust látið í ljós, að hana langi ekki til að fá þessa óstarfhæfu og þekkingarsnauðu yfirmenn, sem ekki er heldur von. Er því eins líklegt, að fyrirkomulag þetta yrði afnumið eftir nokkur ár, þótt á kæmist, Mun því heppilegast að stíga ekki þetta óþarfa spor.

Þótt svo sje ákveðið í frv., að nefndin taki ekki laun fyrir starf sitt, að frátöldum ferðakostnaði og uppihaldi, þá uggir mig, að ekki muni mörg ár líða þangað til farið verður fram á, að þessir menn fái einhverja þóknun.

Jeg fæ ekki sjeð, að nefnd þessi hafi neitt starfsvið í bankanum, enda mun það vera skoðun margra, að nefndin eigi að vera nokkurskonar pólitískt Damoklesarsverð yfir höfðum bankastjórnarinnar. Og þar sem ekki er sjáanlegt, að nefndin eigi að hafa, eða geti haft, annað en pólitísk áhrif, þá mætti svo verða, ef hún beitir þeim áhrifum, að hún verði bankanum hættulegt sverð. Ef nefndin er kosin með þetta fyrir augum, þá er verið að fremja hjer hreina og beina óhæfu.

Eitt er víst, og það er það, að með þessu margbrotna fyrirkomulagi verður ekki eins auðvelt og ella að aðskilja seðlabankadeildina frá þeim deildum, sem bankinn starfar nú í, og stofna sjerstakan seðlabanka. Einmitt með það fyrir augum, að landsbankanefndin var tekin út úr bankafrv. í fyrra og bankanum skift í ákveðnar deildir með sjerstöku starfsviði og bókhaldi, gátum jeg og fleiri sem vildum sjerstakan seðlabanka, fallist á að samþykkja bankalögin í fyrra. Með þeim hætti töldum við, að sú breyting ætti sjer ekki eins erfitt uppdráttar, að skilja seðlabankann frá hinum almenna viðskiftabanka. En hjer er gengið í þá átt, að binda þetta fastar en áður og gera það miklu erfiðara, að seðlabanki ríkisins geti orðið sjerstök og sjálfstæð stofnun í framtíðinni.

Það, sem menn höfðu á móti sjerstökum seðlabanka, var það, að þeir álitu, að sá banki yrði ekki nógu sterkur í upphafi til að hafa nægileg áhrif á peningamálin í landinu. En hitt held jeg, að allir hafi verið sammála um, enda er fengin fyrir því margra alda reynsla annara þjóða, að heppilegra væri að hafa sjerstakan seðlabanka, er hafi viðskifti við útlönd og sjái um, að nægilegur erlendur gjaldeyrir sje ávalt til og endurkaupi víxla af öðrum lánsstofnunum í landinu.

Hv. 1. þm. Reykv. kvaðst ekki hafa skilið þá deilu, sem reis út af því, hvort seðlabankinn ætti að vera sjerstök stofnun eða hvort fela ætti Landsbankanum seðlaútgáfuna. Jeg hygg, að hann muni rök mín og fleiri fyrir því, að fyrirkomulagið ætti að vera það, að seðlabankinn ætti að vera sjerstök stofnun, og að vegna þessarar deilu varð úr, að gengið var á móts við okkur í mikilvægum atriðum. Bankanum var skift í deildir, seðlabanka og viðskiftabanka, með aðskildum fjárhag og bókfærslu. Það fyrirkomulag, sem samþ. var á síðasta þingi, var miklu tryggara og heppilegra en það, sem milliþinganefndin í bankamálum stakk upp á.

Þó tillögur mínar og nokkurra annara þm. hafi á síðari árum ekki verið teknar til greina, þá hefir andstaða okkar borið nokkurn árangur. Ýmsar verulegar breytingar hafa fengist á hinu upphaflega frv. bankanefndarinnar, svo sem skifting bankans í deildir með aðskildum fjárhag og aðskildu bókhaldi, og að mörgu öðru leyti varð andstaða okkar til þess, að fyrirkomulag bankans varð betra og tryggilegra en orðið hefði, ef allir hefðu lagst á eina sveif með meiri hl. bankanefndarinnar. Eins og jeg gat um, þá munu flestir hafa það á meðvitundinni, að með þessu frv. Sje verið að skapa háskalegt fordæmi, að hjer sje verið að breyta Landsbankalögunum til þess eins, að hægara verði að koma honum undir flokkspólitísk yfirráð. Slíkt fordæmi hlýtur að leiða til þess, að menn verða ekki ugglausir um, að þessum breytingum verði ekki svift burt innan skamms. En alt slíkt los á löggjöf bankans er háskalegt fjármálalífi þjóðarinnar.

Af smærri atriðum í frv. þessu mætti nefna það, að fella á niður ákvæði laganna um aðalbankastjórann. Það er óhætt að segja, að reynsla annara þjóða bendir í gagnstæða átt við það, sem hjer er farið fram á að gera. Englendingar telja nauðsynlegt að hafa einn aðalbankastjóra við Seðlabanka sinn, Bank of England. Þeir ráða aðalbankastjórann einungis til 4 ára í senn, og það mun ekki hafa komið fyrir nema í tvö skifti, að aðalbankastjóri hafi setið lengur en eitt tímabil. Er venjulega einn af bankastjórum hinna stærri banka fenginn til að hafa starfa þann á hendi. Aðalbankastjórinn ræður mestu um höfuðviðfangsefni bankans. Á stríðsárunum kom það jafnvel fyrir, að stjórnin skoraði á aðalbankastjórann að breyta um stefnu (taktik) í fjármálum. Hann neitaði að verða við þeirri ósk. Stjórnin reyndi ekki að bola honum frá stöðunni, og er nú alment talið, að aðstaða bankastjórans hafi haft heppileg og góð áhrif á fjármálalíf Englendinga. Það er ekki hægt að neita því, að það er mikill styrkur fyrir seðlabankann að hafa einn slíkan mann, sem gera má ráð fyrir, að verði ávalt einn af hæfustu fjármálamönnum þjóðarinnar.

Af þessu má einnig sjá það, að Englendingar — elsta og fremsta fjármálaþjóð Norðurálfunnar — beitir ekki pólitísku valdi til þess að hafa áhrif á fjármálastefnu seðlabanka síns. Enskir fjármálamenn, hvaða flokki sem þeir tilheyra, eru svo þroskaðir, að þeim kemur ekki til hugar að setja pólitískar þarfir yfir fjármálaþarfir þjóðarinnar. Hvað er verið að gera hjer? Er ekki verið að kasta seðlabankanum fyrir fætur flokkspólitíkurinnar?

Þá má minna á annað atriði, sem að vísu er ekki mjög stórvægilegt, en varpar þó skíru ljósi yfir það, sem á bak við liggur. Samkvæmt 36. gr. bankalaganna, þá er ráðherra og bankaráði skylt að tilgreina skriflega ástæður fyrir því, ef þeir víkja bankastjóra frá. En svo undarlega bregður við, að með frv. á að nema þetta ákvæði, um „skriflegar“ ástæður fyrir frávikningu, burt. Jeg er meir en hissa á því, að þetta skuli hafa komið fram. Jeg hjelt, að þetta ákvæði væri ekki síður í þágu ráðherra og bankaráðs en í þágu bankastjórnar. Öllum er það ljóst, að það verða heimtaðar ástæður fyrir því, að bankastjóra er vikið frá stöðunni. Hvers vegna má ekki tilgreina skriflega þær ástæður, sem til frávikningar liggja? Sumir segja, að með þessu verði flokkspólitískum ráðherra auðveldara í bili að víkja bankastjóra frá. Það kann að vera þægilegra í bili, en verður miklum mun óþægilegra síðar. Það má vera, að einhverjum flokkspólitískum ráðherra þyki það þægilegra í bili að segja bankastjóra munnlega frá ástæðum, sem hann þorir ekki seinna að standa við skriflega. Jeg er hissa á því, að nokkur stjórn skuli fást til að ganga inn á aðra eins fjarstæðu og þetta er, því síður bera þetta fram.

Það, sem gert er við bankann, ef frv. verður að lögum, er í fyrsta lagi það, að brigðað er loforð það, sem hann fjekk í fyrra um 3 milj. kr. framlag auk þeirra 2 milj. kr., sem honum ber samkvæmt eldri lögum. Í öðru lagi verður bankinn meira háður pólitískum dutlungum þingflokkanna. Í þriðja lagi á flokkspólitískur ráðherra hægara með að beita bankastjórana ofbeldi en áður. En hvað fær bankinn í staðinn? Hann fær ábyrgð ríkissjóðs fyrir innlendu lánsfje sínu, ábyrgð, sem er honum ónauðsynleg og getur orðið til ills, ef ekki er farið því varlegar. Honum eru gefnir steinar fyrir brauð. Jeg er sannfærður um það, að bankanum er, vegna viðskifta sinna erlendis, meira áríðandi en flesta grunar, að ekki verði brigðað loforð það um eignarfje, sem honum var gefið í fyrra. Öllum er það vitanlegt, að traust bankans erlendis byggist á því fyrst og fremst, að hann eigi sjálfseignarfje. Um þetta atriði voru allir sammála á síðasta þingi. Við, sem aðra skoðun höfðum um seðlabankann en þá, sem ofan á varð, við fengum viðurkendar tillögur okkar um, að nauðsynlegt væri að hækka eignarfje bankans frá því, sem áður hafði verið ráð fyrir gert. Það var orsökin til þess, að við gátum verið með í því að samþykkja frv. það, sem að lögum varð í fyrra. En jeg get sagt það fyrir mig, og að jeg hygg fyrir marga fleiri, að við hefðum aldrei samþykt frv. þá, ef okkur hefði órað fyrir því, að brigða ætti það loforð þegar á næsta þingi.

Einn hv. þm. — jeg hygg hæstv. fjmrh., en skal þó ekki fullyrða það — sagði, að Íhaldsflokkurinn hefði drifið lögin í gegnum þingið í fyrra. Mátti skilja þau ummæli svo, að það hefði verið gert með litlum meiri hluta og af flokksfylgi. Íhaldsflokkurinn var ekki í meiri hluta í þessari hv. deild í fyrra, og æðimargir framsóknarmenn stóðu fastar við hlið íhaldsstjórnarinnar í þessu máli en jeg og ýmsir aðrir íhaldsmenn. Málið var ekki flokksmál, að minsta kosti ekki frá hálfu Íhaldsflokksins. Margir íhaldsmenn voru á andstæðri skoðun við þáverandi stjórn í þessu máli. Frv. var samþykt í fyrra með 19:3 atkv. í þessari hv. deild og með 12:2 atkv. í Ed. Þetta bendir ekki á, að það hafi verið Íhaldsflokkurinn, sem fastast beitti sjer fyrir frv.; það var Framsókn, sem stóð nær stjórninni í málinu og hjálpaði henni til að koma frv. í gegn, eins og sjest af atkvgr. þeirri, sem jeg nefndi. Það er því undarlegt, ef Framsóknarflokkurinn sem heild ætlar nú að keyra í gegn breytingar á þessum lögum. Að vísu voru framsóknarmenn því fylgjandi, að stóra innantóma höfuðið — landsbankanefndin — yrði sett á bankann, en það atriði var ekki stórvægilegt. En um aukningu þess fjár, sem ríkissjóður skyldi leggja fram, var ekki ágreiningur. Tillagan um þá hækkun var komin frá þeim mönnum, sem vildu hafa sjerstakan seðlabanka og voru andstæðir því fyrirkomulagi, sem ofan á varð, vegna þess, að þeir álitu það ekki nægjanlega trygt. Til þess að bæta úr því vildum við láta bankann hafa meira sjálfseignarfje, því það var sú besta trygging, sem bankanum varð gefin, að því fráskildu, að fylgt hefði verið okkar tillögum um sjerstakan seðlabanka.