12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4647 í B-deild Alþingistíðinda. (3877)
103. mál, Landsbanki Íslands
Frsm. annars minni hl. (Ólafur Thors):
Er þetta fram borið af því að hæstv. stjórn getur ekki varið málstað sinn? (Forsrh. TrÞ: Það er fram borið af því að hv. 2. þm. G.-K. og flokksbræður hans hafa beitt mállþófi!). Annars vildi jeg spyrja hæstv. forseta, hvort leyfilegt er að ræða um þessa tillögu.