12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4673 í B-deild Alþingistíðinda. (3910)

103. mál, Landsbanki Íslands

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg held, að nú sje farið að lygna aftur eftir þann hvassa gust, sem hjer lagði um deildina fyrir stundu. Það hefir verið talað um, að jeg hafi beitt ofríki í þessu máli, og margt hefir verið um það sagt og sumt skemtilegt, en jeg held, að ekki hafi enn verið sagt eitt einasta orð viðvíkjandi málinu sjálfu, heldur hefir aðeins verið rætt um formleg atriði út af synjun minni. (HK: Er það óviðkomandi málinu að ræða um það, sem af henni hefir hlotist?). Annað dálítið skemtilegt hefir komið fyrir á sama tíma, sem menn í þessari hv. deild hafa hneykslast svo mjög á synjun minni. Jeg hygg, að það hafi einmitt verið á sömu mínútunum, sem jeg synjaði um afbrigði við skriflega brtt. hjer í deildinni, að íhaldsmenn í hv. Ed. synjuðu um afbrigði til þess að taka þar til umræðu frv., sem búið er að liggja fyrir mörgum undanförnum þingum og orðið er þrautrætt. Þetta gerðu þeir þrátt fyrir það, að þetta frv. lá nú fyrir Ed. óbreytt eins og það hafði farið þaðan.