14.04.1928
Efri deild: 71. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4678 í B-deild Alþingistíðinda. (3916)

103. mál, Landsbanki Íslands

Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinsson):

Frv. þetta hefir nú gengið í gegnum hv. Nd. og verið samþ. þar með lítilsháttar breytingum frá því, sem það var, er það fór hjeðan, án þess þó að haggað væri við þeim aðalbreytingum, sem gerðar voru á frv. í þessari hv. deild.

Þó vil jeg geta um eina breytingu, sem hv. Nd. hefir gert við breytingar þær, sem hjer voru samþ., en það er um kjörtíma bankaformannsins. Í hinu upphaflega frv. stóð, að formaður bankaráðsins skuli skipaður til 5 ára, en því var breytt hjer og fært niður í 3 ár. Nú hefir hv. Nd. fallist á að færa kjörtíma formannsins í sama horf og upphaflega var í frv., og getur meiri hl. fjhn. fyrir sitt leyti fallist á, að það ákvæði standi. Auk þess hefir hv. Nd. þótt rjett, að bankaráðsmennirnir skiftist á um daglegt eftirlit í bankanum ásamt formanni.

Aðrar breytingar hv. Nd. eru leiðrjettingar, eins og t. d. um skipun endurskoðenda bankareikninganna. Í frv. stóð, að bankaráðið skipaði endurskoðendur, en það liggur í augum uppi, að það er landsbankanefndin, sem á að gera það, þótt þessari hv. deild hafi skotist yfir að leiðrjetta það. En nú er þetta leiðrjett, og er því ekkert frekar um það að segja.

Þá hefir og verið leiðrjett undarleg villa, sem staðið hefir í 53. gr. bankalaganna. Þar er gert ráð fyrir hlutabrjefum bankans og arði af þeim, sem vitanlega er vitleysa. Bankinn er eign ríkisins, og því getur ekki verið um nein hlutabrjef að ræða nje arð af þeim. Mun þetta hafa staðið síðan 1925, er gert var ráð fyrir hlutabanka. En þetta atriði er nú leiðrjett eða felt niður.

Fleira hefi jeg ekki um sjálft frv. að segja eða breytingar þær, sem hv. Nd. gerði á því. En svo hafa komið hjer fram tvær brtt., og get jeg fyrir hönd meiri hl. fjhn. lýst því yfir, að hann er á móti þeim báðum.

Brtt. á þskj. 764, frá hv. þm. Seyðf., um að fjehirðir haldi stöðu sinni áfram, eins og aðalfjehirðir og bókari, var að vísu samþ. áður hjer í háttv. deild, en þetta feldi hv. Nd. niður. Meiri hl. fjhn. lítur svo á, að verði þessi brtt. samþ. nú, geri hún ekki annað en að tefja málið, og geti jafnvel orðið þess valdandi, að frv. komist ekki í gegnum þingið.

Sama er og um brtt. hv. 3. landsk. að segja, um að hinir nýkosnu bankaráðsmenn taki sæti í bankaráðinu jafnóðum og sæti losna. Meiri hl. fjhn. lítur svo á, að þessi brtt. eigi heldur ekki að ná fram að ganga, enda væri þýðingarlaust að vera að samþ. nú breytingar á lögunum, ef ekki ættu þær að koma til framkvæmda fyr en eftir 3 ár.

Það er till. meiri hl. fjhn., að frv. verði samþykt óbreytt.