09.03.1928
Efri deild: 43. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4702 í B-deild Alþingistíðinda. (3932)

72. mál, dómsmálastarf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík

Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):

Svo hefir farið hjer sem oftar, að allshn. hefir klofnað um þetta mál. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ. með nokkrum breytingum. Eru 3 brtt. á þskj. 337 frá meiri hl. allshn. Tvær fyrstu brtt. hafa verið bornar undir lögfræðing, og taldi hann þær til bóta, 1. brtt. er eiginlega aðeins orðabreyting, til að gera ákvæði 2. gr. skýrari. — 2. brtt., við 7. gr., er borin fram í því skyni, að ákveðið sje, að embættismenn þessir hafi ekki neinar aukatekjur, nema ákveðnar sjeu með reglugerð, einkum með tilliti til innheimtulauna af uppboðsandvirði.

3. brtt., við 8. gr., er um launakjör þessara embættismanna. Meiri hl. nefndarinnar telur, að þessum mönnum verði að launa sómasamlega, þótt hún telji ekki ástæðu til, að laun þeirra byggist á aukatekjum, sem út af fyrir sig eru hærri en laun allra annara starfsmanna ríkisins. Lítur meiri hl. svo á, að tilgangur þessa frv. sje sá, að færa launin niður í samræmi við önnur embættislaun í landinu, og teljum við þeim tilgangi náð á þennan hátt. Meiri hl. vill láta launa þessi embætti sem virðulegustu embætti landsins, og leggur því til, að launin verði færð upp, svo sem til er tekið í 3. brtt. — c-liður 3. brtt. er settur í því skyni, að skýrt sje tekið fram um það, að fje það, sem þessir embættismenn hafa undir höndum vegna embættis síns, verði ávaxtað til hagnaðar fyrir eigendur þess. Ef miklar upphæðir eru í vörslum embættismanna þessara um mörg ár, er tapið, sem af drætti þeim leiðir, ærið nóg fyrir eigendur fjárins, þótt ekki standi það vaxtalaust þennan tíma, jafnvel þótt embættismenn ávaxti það ekki til hagsbóta sjer. Má ekki skilja þetta svo, að hjer í Reykjavík hafi átt sjer stað óviðurkvæmilegt athæfi í þessum efnum, en þvílíkt hefir komið fyrir úti um land. Hjer er því aðeins varnagli sleginn.

Þá vildi jeg fara nokkrum orðum um nál. minni hl. Tel jeg það heimilt að taka hið prentaða álit hans nokkuð til meðferðar, enda þótt framsögumaður hans hafi ekki enn tekið til máls. — Í fám orðum sagt má segja um tölur þær, sem þar eru tilfærðar, að eitt reki sig á annars horn. Í nál. minni hl. eru laun þessara manna, er nú gegna bæjarfógeta- og lögreglustjóraembætti í Reykjavík, talin 13– 800 kr. Jeg býst við, að þetta sje á vissan hátt rjett, og ríkissjóður greiði ekki meira beinlínis. En það er játað, að árslaun þessara embættismanna eru að minsta kosti 22 þús. kr. hjá öðrum þeirra og ekki minna hjá hinum. Mjer dettur nú í hug að spyrja, hver greiði þennan mismun. Er það kannske eitthvert góðgerðafjelag? Nei, það er ríkissjóður, sem gerir það, og tekjur hans rýrna um þessa upphæð. Hjer er farið svo mjög á svig við sannleikann, sem frekast er unt í opinberu skjali. Hitt er náttúrlega satt og rjett, að þessar tekjur hafa aldrei komist í hendur ríkisfjehirðis.

Í nál. minni hl. er gert ráð fyrir, að það verði 33700 kr. aukin útgjöld fyrir ríkissjóð, ef þessi breyting kemst á. Jeg sje ekki, að þetta geti verið rjett. Ef litið er á frv. og gengið út frá því, að þeir, sem nú gegna embættunum, geri það ekki áfram, þá koma nýir menn, sem fá byrjunarlaun samkv. frv. Þau eiga eftir till. meiri hl. að vera 8 þús. kr., en með núverandi dýrtíðaruppbót verða það 9500 kr. 3 sinnum 9 þús. eru 27 þús., og 3 sinnum 500, — ja, það ætti nú ekki að vera vandasamara að reikna það en 5X19. Jeg býst við, að allir sjái, að ekki kemur út upphæðin 33700. M. ö. o., laun mannanna verða 28500 kr. Svo gengur háttv. minni hl. út frá biðlaunum þeirra manna, er nú gegna embættunum, 19 þús. kr. á ári handa báðum. Þá verða útgjöldin samtals 47500 kr. Með því að draga frá embættislaun þeirra, er nú gegna embættunum, fær hv. minni hl. svo þessar 33700 kr., er hann telur vera útgjaldaauka. af frv. En hann nefnir ekki aukatekjurnar, lætur eins og þær komi frá einhverjum alt öðrum aðilja. Sú villa sýnist ganga eins og bláþráður gegnum alt álit hv. minni hl. En það verður að líta á, að þegar aukatekjurnar hætta að ganga til þessara embættismanna, þá ganga þær til ríkissjóðs og eru græddur eyrir fyrir hann. M. ö. o., þessi dæmi, sem hv. 3. landsk. hefir sett upp í áliti sínu, eru ekki nema hálfur sannleikur.

Þá telur hv. minni hl. sjálfsagt, að þeir, sem nú gegna embættunum, setjist á biðlaun og líti ekki við þessum nýju embættum. Jeg tel þvert á móti líklegt, að þeir sæki um tvö þeirra, og fái þau að sjálfsögðu. Jeg veit ekki, hvaða ástæðu hv. minni hl. getur haft til að álykta svona. Líklega er hún helst sú, að mismunurinn á laununum sje svo mikill, að þeir sæki alls ekki um embættin. Það getur ekki annað verið. En þetta er miklu meira last um þessa embættismenn en jeg hygg, að þeir eigi skilið. Jeg er þess fullviss, að þeir sitja ekki í embættum peninganna einna vegna. Jeg er jafnframt viss um, að þeir geta lifað sómasamlegu lífi af launum þeim, sem brtt. meiri hl. ætla þeim. Ef þeir sæktu um embættin og fengju þau, yrði vafalaust litið svo á, að þeir ættu þegar í stað að fá hæstu laun. Þar sem báðir þessir embættismenn eru á þeim aldri, að þeir hljóta að hafa bæði þrek og löngun til að starfa, þá er óhugsandi önnur ástæða fyrir því, að þeir færu á biðlaun, heldur en sú, að þeir þættust verða fyrir of mikilli launalækkun. En eins og jeg sagði, vil jeg alls ekki ætla þessum mönnum slíkan hugsunarhátt, og jeg held, að það sje ekki rjett af hv. 3. landsk. að gera það.

Þá er eftir að athuga það, sem í nál. segir, að ekki sje líklegt, að sparnaður fáist með frv., heldur jafnvel hið gagnstæða. Þar er ekki sagt neitt um raunveruleg laun, þ. e. a. s. embættistekjur, þessara manna nú, og get jeg ekki sagt, hver þau eru með neinni vissu. — En annar embættismannanna, sem sæti á í þessari hv. deild, hefir lýst yfir því í deildinni, að embættistekjur sínar hafi ekkert ár farið fram úr 25 þús. kr. Með því er jafnframt sagt, að þær hafi þó einu sinni eða oftar komist upp í þá upphæð. En við skulum hugsa okkur, að það hafi verið honum sjerstakt tekjuár og að nokkru muni hjá honum frá ári til árs. Nú vita menn, að tekjur bæjarfógeta eru svo vaxnar, að árlegur mismunur getur ekki oltið á mörgum þúsundum króna. Ef hámarkið er 25 þús. kr., er áreiðanlega varlega áætlað að setja lágmarkið 20 þús. kr. Þá sýnist mjer, að hjer mætti nota meðaltalsregluna, sem háttv. 3. landsk. notar svo oft, — þótt hann hafi einhverra orsaka vegna ekki þótst þurfa á henni að halda hjer. En hjer virðist mjer hún einmitt eiga sjerlega vel við, og það er þá best, að annar en hv. 3. landsk. taki hana einu sinni upp. Samkvæmt meðaltalsreglunni sýnist mjög varlegt að gera ráð fyrir, að tekjur bæjarfógeta sjeu 22 þús. kr. Er þá fundið það, sem að var leitað um hann, þótt ekki sje með fullkominni nákvæmni.

Um hinn embættismanninn, lögreglustjóra, stendur ver á, því að ekki er til nein yfirlýsing frá honum um þau launakjör, er hann býr við. Þar verður því varla um eins góðar heimildir að ræða. En jeg veit, að ekki þarf að fara langt út fyrir þinghúsið til að finna menn, sem lengi hafa verið búsettir hjer í bæ og þekkja vel til þessa embættismanns og álíta, að sum árin hafi embættistekjur hans komist upp í 80 þús. kr. En við skulum gera ráð fyrir, að almenningsálitinu hafi skakkað þarna og skakkað mikið, um ¼ hluta, svo að tekjurnar hefðu mestar verið 60 þús. kr. Gerum jafnframt ráð fyrir, að aukatekjurnar sjeu mjög mismunandi frá ári til árs og að þetta sje óvenjugott ár, eins og hjá hinum embættismanninum. Jeg vil fara varlega og áætla aukatekjurnar margfalt meira mismunandi hjá þessum embættismanni, svo að skakkað geti helmingi um launahæðina samtals. Hámarkið er þá 60 þús. kr. og lágmarkið 30 þús. Þá skyldi maður ætla, að óhætt væri að nota meðaltalsregluna, en samt vil jeg gera ráð fyrir, að það sje nokkuð varasamt, því að hætt er við, að þau árin sjeu færri, sem launin ná hámarki. Jeg færi mig því neðar, niður í 40 þús. kr. árstekjur að meðaltali. — Þetta er nokkuð erfitt viðfangs, þar sem engar fastar tölur eru á að byggja, en jeg vil hugga hv. þdm. með því, að sennilega verða ekki margir mánuðir liðnir, þegar hægt verður að fá þær tölur. Þá mun reynslan skera úr um það, hve nærri sannleikanum þessi áætlun mín er.

Ef þá er reiknað með því, að laun þessara embættismanna sjeu að meðaltali 62 þús. kr. á ári samtals, og síðan er gert ráð fyrir öllum þeim kostnaði, sem hugsanlegur er fyrir ríkissjóð vegna hinna nýju embætta, þá verður gróðinn samt býsna mikill, að minsta kosti um 15 þús. kr. Og það þyrfti ekki annað en að taka dæmið um bæjarfógeta einan. Það er á allra vitorði, að laun lögreglustjóra eru miklu meiri. En þótt þau væru hin sömu, væri samt sparnaður að frv. Það er því áreiðanlega ekki rjett í nál. hv. minni hl., að breytingin í heild sinni muni verða til kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.

Þá er loks bent til þess í niðurlagi nál., að af breytingunni gæti leitt kostnaðarauka fyrir ríkissjóð í auknu mannahaldi, t. d. við tollgæsluna, því að þá yrði ekki hægt að nota lögreglu Reykjavíkur í því skyni. En þetta er alveg óskylt mál því, sem hjer um ræðir. Það getur komið fyrir hvenær sem er, að Reykjavíkurbær heimti kaup fyrir það, sem lögreglan er notuð í þágu landsins, og það jafnt hvort sem þetta frv. verður samþ. eða ekki. Jeg veit, að Reykjavík þykist verða hart úti, að þurfa ein að kosta lögregluna, og mjer þykir trúlegt, að ekki líði mörg ár þangað til hún sættir sig ekki við það lengur.

Þá hefi jeg, að því er mjer virðist, fært að því nokkur rök, að aðalmótbára hv. minni hl., kostnaðaraukinn, sje ekkert annað en fjarstæða. Geti hv. minni hl. gefið einhverja leiðrjettingu á þeim tölum, sem jeg hefi komið með, þá er það gott. Hann stendur þar að sumu leyti betur að vígi. En jeg hygg, að hann muni eiga erfitt með að hrekja það, sem jeg hefi sagt. (JÞ: O, sussu-nei).

Þá get jeg látið staðar numið að sinni. Býst jeg við að þurfa að svara hv. minni hl., þegar hann hefir talað fyrir sínu máli, og gefst þá kostur á að sjá til fulls, á hverju hann byggir staðhæfingar sínar.