12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4734 í B-deild Alþingistíðinda. (3952)

72. mál, dómsmálastarf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík

Hákon Kristófersson:

* Jeg á eina litla brtt. við þetta frv. Er efni hennar að slá því föstu, að lögin komi ekki til framkvæmdar fyr en hið síðara af núverandi bæjarfógeta- og lögreglustjóraembættum losnar. Jafnframt geri jeg ráð fyrir, að þegar fyrra embættið losnar, verði það veitt með þeim skildaga, að viðkomandi maður verði að sætta sig við skiftinguna á sínum tíma. — Jeg tel það mjög óheppilegt að taka menn úr stöðum sínum, sem þeir hafa fengið á löglegan hátt, ef þeir hafa ekkert það gert fyrir sjer, að þeir verðskuldi, að þeim sje víkið frá.

Háttv. frsm. meiri hl. talaði um tvímælalausan sparnað af því að samþykkja þetta frv., en dró þó heldur úr því í síðari hluta ræðu sinnar. Jeg get mjög vel fallist á, að engin sönnunargögn liggja fyrir um þetta, en jeg er þess fullviss, að sparnaðurinn verður aldrei eins mikill og meðhaldsmenn frv. gera ráð fyrir. Því hefir verið haldið fram, að óeðlilegar tekjur hafi fylgt þessum embættum, og vil jeg á engan hátt neita því. En jeg held, að langeinfaldasta leiðin til að draga úr þeim tekjum sje sú, að ákveða, að meginstofn þeirra renni beint í ríkissjóð. En þar sem nú er orðið áliðið þings, tel jeg vonlaust um að koma slíkri breytingu á frv. fram að sinni, og ber því ekki fram brtt.

Jeg þykist ekki hafa ástæðu til að tala frekar um málið á þessu stigi, en vænti þess, að hv. frsm. minni hl. skýri málið á breiðari grundvelli.

* Ræðuhandr. óyfirlesið.