26.03.1928
Efri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4768 í B-deild Alþingistíðinda. (3971)
100. mál, einkasala á áfengi
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Allshn. hefir orðið ásátt um að leggja til, að frv. þetta verði samþ. með nokkrum breytingum.
Skal jeg ekki fjölyrða um þær breytingar, sem frv. gerir á núgildandi löggjöf. Eru þær aðallega í því fólgnar, að til er ætlast, að forstjóri víneinkasölunnar hafi mun lægri laun en hann nú hefir, og ennfremur að lögin krefjist ekki, að forstjórinn sjálfur hafi lyfsalapróf, heldur sje nægilegt, að aðstoðarmaður hans hafi það, og stýri hann þá lyfjadeildinni.
Um brtt. allshn. er ekki margt að segja 1. brtt., sem er í 3 stafliðum, má nánast skoða sem leiðrjettingu, því að sjálfsagt er, að vitnað sje til þeirra laga, sem nú gilda um meðferð áfengis. 2. brtt. er líka leiðrjetting. En í 3. brtt. er nokkur efnisbreyting, sem liggur í því, að er frv. var samið, hafði sjest yfir breytingu á áfengislögunum frá síðasta þingi. Jeg vil geta þess, að eins og 4. gr. er orðuð samkvæmt 3. brtt. á þskj. 565, fellur niður síðasti málsliður 4. gr. eins og hún er í frv., og getur orkað tvímælis, hvort svo skuli vera, en úr því má þá bæta með brtt. við 3. umr.
Um 4. brtt., við 5. gr., varð dálítill ágreiningur í nefndinni, en þeir nefndarmenn, sem vildu halda niðurlagi 5. gr., vildu þó ekki kljúfa nefndina þess vegna. Varð því samkomulag um, að niðurlag 5. gr. fjelli niður.
Þá er 5. brtt., við 7. gr., um að í staðinn fyrir „50–100“ komi: 25–75%. Um þetta varð einnig nokkur ágreiningur. Var að vísu upplýst í nefndinni, að vínsalan væri ekki bundin við hámarksálagningu, en hinsvegar töldu sumir nefndarmenn varhugavert að breyta þessu eins og farið er fram á í frv., því að slíkt mætti skoða sem heftingu á sölu vínanna. Varð því að samkomulagi, með því að stjórnin væri ekki bundin við þessa tölu, að láta þetta ákvæði standa eins og það er í gildandi lögum.
6. brtt. skýrir sig sjálf. Má telja, að þessi stofnun hafi þegar fengið nægilegt veltufje, og sje því nóg að ákveða um, að nokkur hluti árshagnaðar renni í varasjóð.
Jeg leyfi mjer að vænta þess, þar sem svo sæmilegt samkomulag varð um frv. í allshn., að það nái fram að ganga.
Halldór Steinsson: Eins og tilkynt hefir verið úr forsetastóli, á jeg hjer brtt., sem ekki hefir verið útbýtt ennþá. Vil jeg því beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að málið verði tekið af dagskrá.