12.04.1928
Efri deild: 68. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4779 í B-deild Alþingistíðinda. (4002)

153. mál, Seðlainndráttur Íslandsbanka

Jón Þorláksson:

Hæstv. dómsmrh. hagaði orðum sínum svo, að skilja mátti sem hluthafar Íslandsbanka hefðu farið fram á þessa frestun. Þetta er tæplega rjett. Á næstsíðasta og síðasta þingi var það stjórnin, sem gekk í þetta af kunnugleik sínum á ástandi bankanna, og í þetta sinn komu tilmælin, eins og upplýst hefir verið, frá bankaráðsmönnunum, hæstv. forsætisráðherra, þrem þingkjörnum ráðsmönnum og einum fyrir hönd hluthafanna.