13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4796 í B-deild Alþingistíðinda. (4017)

153. mál, Seðlainndráttur Íslandsbanka

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Þær athugasemdir, sem hv. 1. þm. Skagf. kom með í upphafi ræðu sinnar um afstöðu Íslandsbanka og Landsbankans, hefi jeg ekkert við að athuga. Jeg álít, að það sje rjett, er hv. þm. sagði, og út frá því, að hjer er ekki um annað að ræða en að framlengja það ástand, sem verið hefir í 3–4 ár, þá tel jeg óþarft að fara að ræða það sjerstaklega; en að því er snertir álit hv. þm. á Landsbankanum, þá er það að segja, að mjer er kunnugt um það, og tel jeg, að þær athugasemdir, sem hv. þm. ljet falla, hafi verið í samræmi við það.

Hv. þm. fanst, að ekki þyrfti margt að athuga í sambandi við aðstöðu ríkisins til Íslandsbanka um það, sem fram undan væri. Jeg er ekki samþykkur hv. 1. þm. Skagf. um þetta, þegar svo er komið, að það fje, sem Íslandsbanki starfar með, er að mestu frá Íslendingum sjálfum. Það er þegar búið að skipa seðlaútgáfunni, sem nokkuð er í höndum Íslandsbanka, og þegar það er framundan, að sjerleyfistími Íslandsbanka er útrunninn, þá álít jeg einmitt sjerstaka ástæðu til að taka þetta mál í heild sinni til athugunar, og það er líka svo stór liður í bankamálum þjóðarinnar, að það er bein skylda landsstjórnarinnar að gera það. Það mál liggur að vísu ekki hjer fyrir, en jeg er að þessu leyti mjög ósamþykkur hv. 1. þm. Skagf.