13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4801 í B-deild Alþingistíðinda. (4020)

153. mál, Seðlainndráttur Íslandsbanka

Hjeðinn Valdimarsson:

Jeg vil hjer með nota tækifærið til þess að spyrja hæstv. forsrh., hvernig standi á því, að bankalögunum er ekki framfylgt eins og ætlast er til, því eftir þeim á að leggja fyrir fjhn. Alþingis skýrslu um hag bankans, en sú skýrsla hefir aldrei komið fram, og ekki neitt í þá átt, og hafa þó verið gerðar miklar breytingar á bankalögunum, svo að æskilegt hefði verið fyrir nefndina að hafa við hendina slíkt yfirlit yfir starfsemi bankans. Það er alveg í samræmi við þetta, þegar Alþingi er beðið að láta Íslandsbanka halda rjetti sínum áfram til seðlaútgáfu, án þess að nokkur rök sjeu fyrir því færð, að bankinn þurfi þessa með. Jeg hefi að minsta kosti ekki heyrt nein rök borin fram fyrir því, að bankinn þurfi þessa með eða að það sje æskilegt. Það einasta, sem borið hefir verið fram þessu til stuðnings, er það, að þessi framlenging sje gerð til þess að fá tækifæri til þess að athuga framtíðarskipulag bankans. Eins og nægilegt tækifæri hafi ekki verið til þess undanfarið. Skemtilegt var að heyra, er hv. þm. Dal. var að tala um það eins og einhverja goðgá, ef minst væri á Íslandsbanka hjer í þinginu. Maður hlýtur að undrast þetta, eftir að hafa heyrt hann tala í Landsbankamálinu og hlustað á hann tala um það, að „bankar þjóðarinnar“ ættu að geta blómgast. Hefir hann þá talað um Íslandsbanka í sama dúr og Landsbankans og ekki virst muna eftir húsbændum sínum, dönsku fjesýslumönnunum. Annars verð jeg að segja það, að mjer finst ekki nein ástæða til þess að halda áfram því ástandi, sem nú er, þegar gætt er að mun þeim, sem er á Íslandsbanka og Landsbankanum. Aðalbankann, Landsbankann, á ríkið og ber ábyrgð á honum. Er eðlilegt, að hann hafi alla seðlaútgáfuna, enda er það viðurkent með lögum þeim, sem nú er altaf verið að veita undanþágu frá. En með Íslandsbanka er málið svo vaxið, að hann er að miklu leyti eign erlendra manna, en ríkið íslenska hefir þó lagt honum til mest alt rekstrarfje hans, að undanskildu danska póstláninu, sem þó er komið fyrir milligöngu ríkisins, en allan arðinn fá danskir hluthafar. Þetta er alveg óþolandi ástand, og keyrir úr hófi, að haldið sje sem lengst í seðlaútgáfurjett slíks erlends banka. Fæ jeg ekki sjeð, að nein ástæða sje til þess að framlengja þennan víxil Íslandsbanka með þjóðinni sem ábyrgðarmanni, án þess að greiddar verði samningsbundnar afborganir.