13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4803 í B-deild Alþingistíðinda. (4021)
153. mál, Seðlainndráttur Íslandsbanka
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Hv. 2. þm. Reykv. spurði um það, hvers vegna lögunum um Landsbankann hefði ekki verið framfylgt að því leyti, að skýrsla um hag hans væri lögð fyrir fjhn. Hv. þm. veit nú, að þessari spurningu ber ekki að beina til mín, heldur til hæstv. fjmrh., en hann er nú upptekinn við umr. í Ed. Jeg vil ekki taka fram fyrir hendur hans með því að svara þessu, enda get jeg það ekki svo fullnægjandi geti heitið. En jeg býst við, að þetta stafi af því, að lögin eru svo nýlega orðin til og enn ekki að öllu leyti komin til framkvæmda. Auk þess var ný löggjöf um þetta efni á leiðinni, og býst jeg við, að það hafi og nokkru valdið um þetta. Annars skal jeg koma þessari fyrirspurn til hæstv. fjmrh., sem þá ugglaust mun svara henni.
Hv. þm. sagði síðar í ræðu sinni, að hann liti svo á, sem búið væri að ákveða framtíðarskipulag bankamálanna hjer. Það álít jeg ekki og geri ráð fyrir að leggja fyrir næsta þing mikilvægt frv. í þessum efnum. En þetta alt þarf mikillar rannsóknar við. og því mælist jeg til þess, að engar þær ráðstafanir sjeu gerðar, er hindri það, að sú rannsókn geti farið fram í ró og næði.