19.03.1928
Neðri deild: 51. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4828 í B-deild Alþingistíðinda. (4042)
64. mál, hvalveiðar
Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):
Mjer þykir of snemt að ganga til atkvæða um þetta mál, þegar bekkir eru svo fáskipaðir sem nú, en reyndar gæti jeg látið mjer lynda svör þau, sem hv. flm. hefir beint gegn andmælendum.
Jeg vil þá til viðbótar því, sem hann sagði út af aths. hjá hv. frsm. minni hl. (SÁÓ) um skoðanaskifti mín frá í fyrra, aðeins upplýsa það, að jeg skrifaði undir nefndarálitið í fyrra um hvalveiðar með fyrirvara, vegna þess, að þá var þetta hvalveiðaleyfi bundið við einn einstakan mann, sem jeg hafði ekki traust á. Í öðru lagi bygðist fyrirvari minn á því, að jeg bjóst ekki við, að í höndum þáverandi stjórnar færi æskilega um slíkt leyfi, þó að jeg tæki það kannske ekki beinlínis fram, þegar jeg gerði grein fyrir fyrirvaranum. Annars get jeg látið þetta atriði liggja milli hluta og skírskotað um það til svars flm. (ÁÁ).
Hv. frsm. minni hl. vildi álíta, að ef til hvalvinslu kæmi, mundu innlendir menn aðeins vinna lítilmótlegustu störfin og aðeins verða undirtyllur, en yfirleitt mundu útlendingar að þessu starfa. Út af því vil jeg geta þess, að meðan hvalveiðar voru á Austfjörðum, var langsamlega mestur hluti af verkafólkinu innlendir menn og gegndu þar margháttuðum störfum; meira að segja man jeg eftir íslenskum skotmönnum, og var sá starfi mjög eftirsóttur. Yfirleitt voru Íslendingar við hverskonar vinnu, nema verkstjórn og forsagnir. Fáir þeirra voru við smíðar og vjelgæslu, enda reyndi þar mest á æfingu og kunnugleika. Það er þess vegna óneitanlegt, að atvinnu mundu hvalveiðar veita í stórum stíl, eins þótt verkvanir útlendingar og sjerfróðir tækju þátt í starfinu, — atvinnu, sem jeg hygg, að yrði öllu ábyggilegri en síldaratvinnan hefir verið undanfarið.
Út af því, sem háttv. þm. mintist á um hættuna á því, að síldveiði og önnur fiskveiði spiltist við hvalveiðar, ætla jeg aðeins að nefna það, að síldveiði hefir aldrei verið nándar nærri eins mikil hjer við land eins og síðan hvölum fækkaði. Þetta er ein sú ástæða, sem fremur öllum öðrum ætti að hrekja þá gömlu hjátrú, að hvalir reki síldina að landi.
Hv. frsm. minni hl. sagði, að til þess að nokkuð gæti orðið úr slíkri veiði, yrðu stöðvar að vera stórar og hafa mörg veiðiskip. Nei, það er öðru nær. Það hefir ætíð verið áhugamál þeirra, sem stunda hvalveiðar, að vera sem fjarstir hver öðrum og hafa sem stærst veiðisvæði, enda eru hvalir oftast mjög styggir þar sem umferð er. Jeg veit ekki til þess, að hjer á landi hafi verið nema aðeins ein hvalveiðastöð með marga báta. Þeir komust um tíma upp í 7, aðeins nokkra mánuði; annars voru bátarnir venjulega þrír og fjórir, sumstaðar ekki nema tveir, eins og meiri hl. hefir gert ráð fyrir, að yrði við tilraunastöð hjer.
Um fyrirsjáanlega eyðing hvala, sem minni hl. óttast, skal jeg geta þess til viðbótar því, sem áður var fram tekið, að það er að vísu rjett, að þær tegundir hvala, sem staðbundnar eru, má álíta undirorpnar þessari eyðileggingu, og líklega er ein tegund þessara staðbundnu hvala útdauð, nefnilega íslenski sljettbakurinn, sem svo hefir verið nefndur. En hinar allar tegundirnar fara heimskauta milli um öll höf, og þess vegna verður þeim ekki eytt; því löngu áður en síðasti einstaklingurinn hverfur, er hvalurinn orðinn svo torgætur og veiðin svo erfið og kostnaðarsöm, að hún legst niður af sjálfu sjer. Ennþá er svo mikill fjöldi þessara dýra í suðurhöfum, eins og sjest af því, sem jeg nefndi um veiðifeng í vetur, að það er ekkert farið að nálgast, að kynstofninn hverfi.
Hv. frsm. vildi vjefengja, að færeyskir hvalveiðamenn hefðu sótt hingað, og taldi það til, að of langt væri að draga hvalina hjeðan og til Færeyja. Jeg ætla þá að minna á það, að það eru frá suðurströnd landsins tæpar 60 mílur til Færeyja, og á meðan hvalveiðar voru stundaðar hjeðan frá Vestfjörðum, var a. m. k. um tveggja ára skeið aðallega veitt fyrir austan land og hvalirnir dregnir norður fyrir land og til Vestfjarða, sem er um 70 mílna leið. Svo að það kemur ekki til nokkurra mála, að þeir, sem hvalveiðar stunda frá Færeyjum, gefist upp, þó að þeir þurfi að sækja hvalina í námunda við Ísland. Annars hefir þetta ekki svo mikla þýðingu, því að það verður miklu frekar að ræða um hvalveiði frá Noregi og Bretlandi. Auðvitað mundi þeim þykja þægilegra að sækja hingað norður í höf heldur en að syðra heimskauti. Það er ekki nema tímaspurning — og um stuttan tíma að ræða — þangað til stöðvarnar verða fluttar að sunnan og hingað norður í höf. Það er ekki svo að skilja, að þeir liggi að jafnaði við land í Suðurhöfum; þeir eru oft og tíðum fjarri landi, en flytja sig eftir göngum, en það er ofur eðlilegt, að þeir leiti sjer lands þegar hægt er.
Jeg hirði þá ekki um að taka fleira fram. Öðru hefir hv. flm. frv. svarað, og það rækilega.