16.04.1928
Efri deild: 72. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4855 í B-deild Alþingistíðinda. (4067)

64. mál, hvalveiðar

Jón Baldvinsson:

Jeg ætla aðeins að segja það, að það hefðu orðið mörg mál, sem ekki hefðu orðið afgreidd frá þessu þingi eða fyrri þingum, ef þessi regla hefði gilt.

Jeg vildi að vísu gjarnan, að hún yrði látin gilda í þetta sinn, en hinsvegar er því ekki að leyna, að mörg mál hafa hingað til verið afgreidd þannig, að þau hafa aðeins fengið meiri hl. greiddra atkvæða, án þess að meiri hl. deildarmanna greiddi þeim atkv.

Jeg vil benda á, að það kom fyrir nú á dögunum í Nd., að varðskipalögin voru samþ. þar með minni hl. þeirra manna, sem sátu í deildinni. Það munu hafa setið hjá 3 menn, og þar voru ekki nema 14 atkv. með frv. (JÞ: Vantaði engan í deildina?). Jeg veit það ekki, en hitt er víst, að það hefir hingað til verið talin venja, að frv. sje samþ., ef það fær meiri hl. greiddra atkv., þótt einhverjir neiti að greiða atkv.