27.01.1928
Sameinað þing: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í B-deild Alþingistíðinda. (4080)
Kjörbréf Jóns Auðuns Jónssonar
Sigurður Eggerz:
Í nál. meiri hl., sem jeg hefi ritað undir, tók jeg það fram, að jeg mundi gera nánari grein fyrir afstöðu minni til þessa máls við umræðurnar.
En áður langar mig til að sýna lítillega fram á það, hve sannleikurinn á oft erfitt uppdráttar í stjórnmálunum, jafnvel hjer á hinu. háa Alþingi.
Háttv. sessunautur minn (HjV) talaði um nál. „Íhaldshelmings nefndarinnar“, þ. e. a. s. taldi mig Íhaldsmann. (HjV: Já).
Jeg þarf ekki að taka það fram, öllum mun vera það ljóst, að hjer er vísvitandi farið með rangt mál. Hv. þingheimi og áheyrendum er það fullkunnugt, að jeg er hingað kominn í megnri andstöðu við 2 hina stærri flokka þingsins og jafnaðarmannaflokkinn. Þegar jeg lít hjer í kringum mig, er mjer það fullljóst, að engum get jeg þakkað fyrir að hafa veitt mjer stuðning til að komast hjer inn í hið háa Alþingi. En einmitt þess vegna er jeg svo óbundinn af öllu og á svo ljett með að hlusta á ekkert annað en rödd samviskunnar, er jeg greiði atkvæði.
Þegar jeg undanfarið hefi hlustað hjer á umræður, hefir mjer stundum virst, að Alþingi Íslendinga væri enn ekki komið saman. Hinu hefir mjer fundist bera meira á, að hjer væri flokks- eða flokkaþing.
Til þess að sýna fram á það, að aðdróttun hv. sessunautar míns er algerlega tilhæfulaus, vil jeg benda á það, að þótt frjálslyndi flokkurinn sje minsti flokkurinn, þá hefir hann þó stærstu stefnuskrármálin, og það getur farið svo, að hv. sessunautur minn og fleiri verði að beygja knje fyrir litla flokknum með stóru málin.
Eftir þennan formála vil jeg leyfa mjer að gera grein fyrir afstöðu minni til kosningarinnar, sem hjer er til umr.
Jeg vil taka það fram, að mjer var málið ljóst þegar í meðferð kjörbrjefanefndar og færði rök mín þar strax fram í málinu og var þá þegar reiðubúinn að taka kosninguna gilda.
Í fyrsta lagi vil jeg taka það fram, sem er sjálfsagðast af öllu sjálfsögðu, að sem ítarlegust rannsókn verður að fara fram á því hegningarverða athæfi, sem kann að hafa verið drýgt. Rannsókn hefir nú þegar verið framkvæmd, og auðvitað verða þeir, sem kunna að reynast sekir, dæmdir eftir því, sem lög segja til.
Í sambandi við þetta vil jeg taka það fram, að það er alrangt, sem segir í nál. háttv. 2. þm. Rang. og 1. þm. S.-M., að jeg vilji gera lítið úr þeim misfellum, sem orðið hafa á kosningunni. Þetta hefi jeg aldrei sagt. Hegningarvert athæfi á auðvitað að sæta refsingu samkvæmt hegningarl., en armur hegningarlaganna má aldrei ná lengra en til þeirra seku. Og það væri óskandi, að hæstv. dómsmálaráðherra gæti fallist á það, að sú meginregla eigi að gilda alstaðar, og hann sýni það í verkinu, að hann vilji ekki koma henni fyrir kattarnef. Því þótt kosningasvikum hafi verið beitt við þessa umræddu kosningu, þá má þó ekki hegningin eða afleiðingar af henni lenda á saklausum kjósendum í Norður-Ísafjarðarsýslu.
Af þeim atkvæðum, sem greidd voru utan kjörstaðar, og jeg vil biðja háttv. þingmenn að athuga það vel, að hinni opinberu rjettarrannsókn hefir aðeins verið beint að þessum atkv., átti J. A. J. 57, en Finnur Jónsson 42. Þetta eru alls 99 atkv. Þótt nú öll þau heimagreiddu atkv., sem talin eru J. A. J., sjeu dregin frá honum og bætt við atkvæðatölu F. J., þá hefir J. A. J. þó á annað hundrað atkvæða meiri hluta.
Og nú spyr jeg: Er nokkurt rjettlæti í því, þegar atkvæðamunurinn er svona mikill, að armur hegningarlaganna nái til þeirra saklausu kjósenda í N.-Ísafjarðarsýslu, sem kosið hafa J. A. J. og enginn minsti grunur hefir fallið á, þannig að þeir verði sviftir fulltrúa sínum hjer á Alþingi? Hver er þá vernd laganna, ef á að hegna þessum saklausu mönnum?
Jeg spyr: Hvar er hún?
Það er vafalaust mikið í það varið að hegna þeim, sem hegningu eiga skilið, en það er jafnvafalaust miklu meira virði að forða saklausum frá hegningu eða afleiðingum hennar.
Hæstv. dómsmálaráðherra talaði um það, að óþolinmæði kjörbrjefanefndar hefði verið svo mikil, að ekki hefði unnist tími til þess að ná í gögn til þess að sýna það rjetta í þessu máli; bæði jeg og háttv. 1. þm. Skagf. hefðum viljað hraða málinu svo mjög. Jeg vil í þessu sambandi upplýsa það, að jeg vissi ekki um það fyr en á þessum fundi, að beðið hefði verið um símskeyti frá Englandi og beðið væri eftir svari. Og jeg verð að segja það, að mjer finst það ósanngjarnt af hæstv. dómsmálaráðh. að áfellast mig fyrir að hafa komið í veg fyrir, að upplýsingar væru fengnar, sem jeg vissi ekki um, að verið væri að leita að. Jeg minnist ekki þess, að jeg hafi nokkurntíma heimtað fund í nefndinni; jeg beið þess, að formaður kallaði saman fund. En jeg áleit, eftir því, sem þegar lá fyrir, að það bæri strax að taka afstöðu til þessa máls. Nú sýna skeyti þau, sem hjer hafa verið birt í dag, að það gilda sömu reglur með frændþjóðum vorum, Norðmönnum, Dönum og Svíum, í líkum málum eins og við viljum láta gilda hjer. Jeg held, að það, sem hefir ruglað svo mjög hugi manna í þessu máli, sje, að þeir hafi um of blandað saman hinu hegningarverða athæfi og kosningaatriði málsins.
Jeg skildi hæstv. dómsmálaráðh. svo, ef jeg hefi þá heyrt rjett, að þótt það sje sannað, að kosningasvik hafi verið framin, þá sje það þó ekki, a. m. k. ekki ennþá, sannað, hvaða einstaklingar hafi framið þau svik. Jeg hefi nú að vísu ekki lesið dómsskjölin, því að jeg áleit, að það heyrði ekki undir Alþingi að kveða upp úrskurð í sakamálum, sem þar að auki eru ennþá undir rannsókn.
Og mjer finst, að hver einstaklingur ætti að geta verið viss um það, að hjer á Alþingi yrðu ekki gerðar tilraunir til þess að kasta grun á þá menn, sem engin sekt hefir verið sönnuð á.
Og samkvæmt yfirlýsingu sjálfs rannsóknardómarans hefir ekkert það komið fram í þessu máli, sem bendi á nokkurn hátt á sekt J. A. J. ( HjV: Það hefir heldur enginn bendlað J. A. J. við kosningasvikin). Það mega heldur ekki heyrast raddir hjer á Alþingi, sem bendla hann við þau, þegar sjálfur rannsóknardómarinn lýsir yfir því, að ekkert bendi á sekt hans.
Jeg stend hjer ekki í nafni Íhaldsflokksins, eins og dróttað hefir verið að mjer, eða neins flokks, heldur reyni jeg aðeins að standa hjer í nafni rjettlætisins.
Og fallegri mynd mun það þykja af Alþingi Íslendinga, ef menn í slíku máli sem þessu gleymdu flokknum sínum. Sannarlega hljóta alþingismenn í þessu máli að standa sem dómarar og úrskurða sem dómarar, en ekki sem flokksmenn. Það felst í gildandi lögum, að þeir hljóti að gera það í slíkum málum. Menn mega ekki nota slík mál sem þetta til þess að hefna sín á pólitískum andstæðingum sínum, þótt þeir sjeu svo sterkir í þann svipinn, að þeir geti það.
Og hjer á Alþingi má ekki gera tilraun til þess að varpa grun á þá menn, sem engin sekt hefir verið sönnuð á í undanfarandi rannsókn. Slíkt mundi ekki samboðið sóma Alþingis. Jeg mun ekki roðna, þótt jeg greiði atkvæði með því, að kosning J. A. J. verði tekin gild. Það er í samræmi við þær venjur, sem hingað til hefir verið fylgt á Alþingi. Það er í samræmi við þær reglur, sem fylgt er hjá Norðmönnum, Dönum og Svíum. Það er í samræmi við þá grundvallarreglu hegningarlaganna, að það beri ekki einungis að hindra það, að saklaus sje dæmdur fyrir sekan, heldur að reynt sje að koma í veg fyrir, að afleiðingar glæpanna komi niður á saklausum mönnum.
Þegar um lík mál og þessi hefir áður verið að ræða hjer á Alþingi, hefi jeg stundum greitt atkvæði öðruvísi en flokksmenn mínir. Sýnir það, að pólitískar ástæður hafa ekki ráðið atkvæði mínu. Og svo mun enn.