11.02.1928
Neðri deild: 20. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (409)
6. mál, laun embættismanna
Ólafur Thors:
Jeg vil aðeins benda hv. frsm. á það, að þótt verðlag kunni eitthvað að jafnast, þá kemst það þó aldrei á fastan grundvöll, sem ekki geti raskast.
Jeg vil þakka hv. form. nefndarinnar (HStef) fyrir það, að staðfesta ummæli okkar hv. þm. Dal. um, að fyrirvari okkar hefði fullan rjett á sjer og hefði samþykki nefndarinnar. Þar með er hrakin umsögn hv. frsm. um þetta. — Jeg er nú að vísu ungur, og situr því máske illa á mjer að gefa öðrum ráð. En jeg vil þó ráðleggja hv. frsm. að fara varlega í það að skýra rangt frá niðurstöðum nefnda. Gæti svo farið, að það yrði til að kljúfa nefndirnar og þeir, sem ekki geta unað við rangan málflutning, fengju sjer annan frsm.