27.01.1928
Sameinað þing: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (4092)

Kjörbréf Jóns Auðuns Jónssonar

Jón Þorláksson:

Af því að háttv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) hefir þegar talað tvisvar, vildi jeg með örfáum orðum bera hönd fyrir höfuð honum, sjerstaklega vegna þess, að það hefir verið á hann borið, að hann hafi vísað mönnum úr þjónustu sinni fyrir pólitískar skoðanir þeirra. Jeg hefi nefnilega heyrt, og það með góðum heimildum, að jafnaðarstefnan ætti hvað öruggast fylgi á togurum Kveldúlfsfjelagsins. Jeg held því, að þessi ásökun hv. 2. þm. Reykv. (HjV) á hendur háttv. 2. þm. G-.K. sje með öllu ómakleg.

Þá vil jeg snúa mjer að hæstv. dómsmrh. (JJ). Hann var að skora á mig að færa fram sönnun fyrir því, að hann færi stundum með rangt mál og segði ekki rjett frá. Jeg gæti auðvitað hjer eftir vanið mig á að hafa lista í vasanum yfir nokkur helstu ósannindi hans, til þess að vera altaf reiðubúinn að gefa honum nákvæma skýrslu um þau. En í þetta sinn verð jeg að láta það duga að vísa honum í þessu efni í hin 10 opnu brjef til hans; sem út komu í „Verði“ frá vini hans og velunnara Kristjáni Albertssyni.

Eins og fyrverandi starfsbróðir minn, hv. 1. þm. Skagf., hefir upplýst, var hann ekki heima þegar bæjarfógetinn á Ísafirði beiddist undan að vera rannsóknardómari í Hnífsdalsmálinu, fyrir þá sök, að hann var búinn að binda sig annarstaðar, en þótti hinsvegar leiðinlegt að láta rannsókn dragast, þar sem einn eða fleiri menn biðu í gæsluvarðhaldi. Sneri jeg mjer þá til sýslumannsins í Stykkishólmi, Páls V. Bjarnasonar, og lagði mjög fast að honum að taka rannsókn þessa máls að sjer. Gerði jeg það fyrst og fremst sökum þess, að þar var um að ræða verulega samviskusaman mann og duglegan í embættisfærslu, og í öðru lagi mann, sem ekki hafði svo stórt embætti, að hann hefði ekki þess vegna getað gefið sig við málinu. En hann var með öllu ófáanlegur til þess að taka þetta að sjer. Hjer var því um það sama að ræða og mjer skilst, að hafi komið fyrir núverandi stjórn. Var þá fenginn annar lögfræðingur til þessa. En þegar rannsókn hans var lokið, var komið svo nærri stjórnarskiftum, að ekki gat annað talist rjett en að láta hina nýju stjórn ráða framhaldi málsins. Það er því alveg rangt, að fráfarin stjórn hafi sýnt nokkurt tómlæti um rannsókn þessa máls.

Hæstv. dómsmrh. endurtók nú aftur óbreytt það, sem hann var áður búinn að segja um Íhaldsflokkinn; en það er talsvert annað að bendla heilan stjórnmálaflokk í landinu við sviksamlegt atferli heldur en þó að grunur falli á örfáa menn um að hafa missjeð sig gagnvart kosningalögunum. Og jeg vil benda honum á það, hæstv. dómsmrh., að enginn enskur stjórnmálamaður mundi láta sjer sæma að koma með slíkar aðdróttanir í garð andstæðinga sinna eins og hæstv. ráðh. (JJ) hefir nú leyft sjer að bera fram hvað eftir annað.

Hæstv. dómsmrh. gat ekki afsakað með einu orði þá aðferð meiri hl. þingheims að bægja þegar frá þeim eina kunnuga manni, sem völ var á og svarað gat öllum þeim sögum, að meira eða minna leyti, sem sagðar eru hjer á þingi um viðureign manna þar vestra í máli þessu. Hæstv. ráðherra reyndi að vísu að bera í bætifláka fyrir framkomu meiri hlutans, að Haraldur Guðmundsson hefði ekki fengið að taka þátt í umr. á þingi 1924, þegar rætt var um kosningakæruna úr Ísafjarðarkaupstað. En hann veit það vel, að samkvæmt landslögum var það ómögulegt, að Haraldur Guðmundsson hefði þar málfrelsi, og það af þeirri einföldu ástæðu, að hann hafði ekkert kjörbrjef fengið. En hann mun ekki geta fundið, að andstæðingar H. G. hjer í þessum sal hafi þá notað fjarveru hans til að flytja nokkrar slúðursögur um flokksmenn hans þar vestra.

Annars held jeg, að það sje skoðun manna yfirleitt, þeirra, sem til þekkja, að tæplega verði gert upp á milli stjórnmá]aflokkanna á Ísafirði um kapp þeirra í kosningum.

Þá hafði hæstv. dómsmrh. eftir mjer um vitnin tvö í Bolungarvík, að þetta væri lítilsiglt fólk og kjarklítið, sem ekki þorði að segja sannleikann af hræðslu við það, að rjettvísin á Íslandi mundi nota það til þess að bera hlut Kristjáns Ólafssonar fyrir borð. Það er hræðslan við rjettvísina, sem lokkar ósannindin fram á varir þessara kjarklitlu gamalmenna, og jeg vil þá bæta við, að það er gott, ef handhafi rjettvísinnar í þessu máli hefir ekki með framkomu sinni átt neinn þátt í að koma slíkri hræðslu inn hjá mönnum. Hann sagði líka, hæstv. dómsmrh., að þetta lítilsiglda fólk fyrir vestan væri algerlega á valdi „matadóranna“, eins og hann orðaði það. Þetta hugsa jeg nú kannske að sje ofmælt. En ef fótur er fyrir þessu, þá vildi jeg leyfa mjer að spyrja: Hverjir eru „matadórarnir“ nú? Ætli það sjeu ekki þeir menn, sem standa með lyklana að fangelsinu í höndum sjer og geta stungið mönnum þar inn lengri eða skemri tíma. Þegar svona vitnisburðir koma fram, þá vekur það hjá mjer efasemdir um, hvort auðið sje að leiða sannleikann í ljós í þessu máli með slíkri vitnaleiðslu.

Þá komst hæstv. dómsmrh. inn á ábyrgðarheimildina Landsbankanum til handa, sem hjer var til meðferðar í þinginu í fyrra. Jeg vil nú ekki segja, að ráðherrann hafi sagt þar ósatt, en hann fór rangt með, er hann sagði, að frv. hefði verið laumað inn í háttv. Nd. eftir að mistekist hefði að fá inn í sjálf Landsbankalögin víðtækari heimild handa stjórninni til að ábyrgjast fyrir Landsbankann. En sannleikurinn er sá, að þegar frv. um ábyrgðarheimild ríkissjóðs var borið fram í deildinni, þá var ekki farið að ræða Landsbankafrv.

Að öðru leyti hefir hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) lýsti hvorutveggja rjett, bæði ástæðunni til þessarar ábyrgðarheimildar, svo og útlistun hæstv. ráðherra (JJ) sem blaðamanns um skuldasúpuna, sem borin var á borð í kosningunum síðustu. Og hæstv. dómsmrh. getur ekki varið sig fyrir því, að allmjög skortir á, að blaðamenska hans þá, og enda fyr og síðar, hafi þann blæ, sem kröfur Englendinga heimta um opinbera framkomu stjórnmálamanna.

Jeg held, að það hafi verið hv. 2. þm. Reykv. (HjV), sem eitthvað mintist á kosningaskrifstofustjóra Jóns Auðuns Jónssonar á Ísafirði. Jeg neita því ekki, að mjer kom þetta dálítið undarlega fyrir og átti bágt með að trúa því. Nú hefi jeg spurt Jón Auðun Jónsson, hv ort hann hafi haft nokkra kosningaskrifstofu, en hann neitar því harðlega og segir, að það, sem starfað hafi verið að undirbúningi kosningar hans, hafi verið unnið af honum sjálfum. Hjer mun því hafa verið átt við kosningaskrifstofu og ráðstafanir, sem varðað hafa kosninguna í Ísafjarðarkaupstað, en eins og gefur að skilja, kemur það ekkert við kosninguna í Norður-Ísafjarðarsýslu.

Að lokum eru það aðeins örfá orð til samþm. míns, hv. 5. landsk. (JBald). Hann segir, að síðasta kjörtímabil hafi landinu verið stjórnað á fölsuðum atkv.

En þetta er ósannað mál með öllu, og jafnvel engum þm. sæmandi að kasta slíku fram á hinu háa Alþingi.

Hitt get jeg vel skilið, að hann sem formaður Alþýðuflokksins vilji leiða athyglina frá þeirri óhæfu, sem hann og flokkur hans lifir og hrærist í. Ef okkur væri eins gjarnt að fara út í ádeilur eins og samherjum þessa hv. þm. (JBald), þá mætti spyrja um það, hvað margir þeir sjeu keyptir inn á þing fyrir danskt fje og hvað mikið af þessu danska gulli hafi runnið í þeirra eiginn vasa.