27.01.1928
Sameinað þing: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (4094)

Kjörbréf Jóns Auðuns Jónssonar

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Mjer þótti vænt um, að hæstv. forsrh. (TrÞ) minti mig á eitt atriði, sem mjer gleymdist að minnast á í dag í sambandi við það, sem jeg dró inn í umr. um nauðsynina á, að kenna þyrfti Íslendingum grundvallarreglur Englendinga um „fair play“ í íþróttalífinu, í stjórnmálalífinu og yfir höfuð í öllu opinberu lífi manna. Og þetta dæmi, sem jeg mundi þá ekki eftir í svipinn, er Strandaherferðin í sumar.

Og hvað er það þá, sem gerist í þessari Strandaherferð? Íhaldsflokkurinn fær einn „matadorinn“, skulum við kalla hann, úr íhaldshreiðrinu á Ísafirði til þess að fella ritstjóra „Tímans“, Tryggva Þórhallsson, frá þingmensku í Strandasýslu. En þessi Íhaldsburgeis var ekki upplitsdjarfari en það, að hann gerði tvær kröfur til þeirra, sem öttu honum út í þetta framboð.

Fyrri krafan var sú, að þurfa ekki að mæta hinum frambjóðandanum á þingmálafundum, og í öðru lagi fór hann fram á að fá að standa undir sjerstakri vernd þáverandi forsætisráðherra, þegar fært þætti að hefja yfirreiðina um Strandir.

Nú var vandlega reiknað út alt um ferðir Tryggva Þórhallssonar, enda tekst að vita fyrirfram, hvenær fundarhöldum hans er lokið.

Og svo er lagt upp í þessa frækilegu ferð og ráðist inn á Strandir, þegar kjördæmið er varnarlaust og vitanlegt er, að Tryggvi Þórhallsson getur ekki, vegna veikinda á heimili hans, mætt á fundunum. Þess má þó geta, að sá ráðherrann, sem var betur viti borinn, hv. 3. landsk. (JÞ), losaði sig út úr fylgdarmenskunni. en hinn ráðherrann, sem orðið hefir að fara flestar forsendingarnar, hv. 1. þm. Skagf. (MG), tók að sjer að vera höfuðsmaður þessarar frægu herferðar.

Svo lögðu þeir af stað, og Björn Magnússon með fulla vasana af þessum frægu atkvæðaseðlum, sem höfuðsmanninum, hv. 1. þm. Skagf. (MG), kemur svo illa nú, að minst sje á.

Þetta mundi í Englandi vera kallaður níðingsskapur, að ráðast þannig á kjördæmi, sem þm. er búinn að halda fundi í og öllum er vitanlegt, að ekki getur mætt sjálfur innrásarmönnunum, sem biðu eftir burtför hans. Það er drengskaparleysi að svíkjast þannig aftan að andstæðing sínum, og hvorugur ráðherra fyrv. hæstv. stj. getur á neinn hátt afsakað þessa framkomu. (JÞ: Hjer er í öllum atriðum ranglega frá hermt). Þetta er alt saman satt og auðvelt að sanna, að ½ stundu eftir að Tryggvi Þórhallsson var búinn að láta tilkynna frá Borðeyri um fundaáætlun sína og bjóða B. M. að vera þar með, þá er fest upp önnur auglýsing frá Íhaldsmönnum, sem staðsetja fundi sína eftir að Tryggvi Þórhallsson hlaut að vera kominn til Reykjavíkur.

Nú hefir hv. 1. þm. Skagf. (MG) haldið því fram, að þegar farið sje í fyrirlagða ferð, þá sje ekki siður að auglýsa það landi og lýð löngu fyrir fram, og nefndi í því sambandi ferð, sem Tryggvi Þórhallsson fór fyrir síðustu landskosningar.

En úr því hv. þm. leyfir sjer að bera þessa ferð Tryggva Þórhallssonar saman við Strandaherferðina, þá vil jeg geta þess, að jeg var líka á ferðinni sumar eitt fyrir skömmu og bauð hv. 2. þm. Skagfirðinga á fund að Hólum til að greina frá tildrögum þess, að hann hvarf úr Framsóknarflokknurn yfir til andstæðinga sinna. En þm. kaus að vera heima þennan dag og rýja ær sínar, fremur en að fremja landvörn fyrir sig og íhaldið. Lenti vörnin í það sinn á lækninum á Sauðárkróki, núverandi hv. 6. landsk., sem innvann sjer þá fyrsta lárviðarsveiginn í pólitískri baráttu.

En þessi Strandaherferð er besta lýsingin á því, hvaða brögðum var beitt í undirbúningi kosninganna og hvernig æðstu menn Íhaldsflokksins drógust niður vegna venjunnar. Því jeg vil halda fram, að það var fyrir fjelagsskapinn, að svona fór, að hv. 1. þm. Skagfirðinga kom svo ódrengilega fram af umhyggju fyrir Birni Magnússyni, og mun skapgerð hans hafa ráðið aðgerðum. Og hver varð svo niðurstaðan? (MG: Þetta er víst „fair play“? ). Nei, þetta atferli Íhaldsflokksins hefir verið vítt og kallað þjóðarhneyksli.

Enda fór svo, að bændurnir á Ströndum, þótt ekki sjeu æfðir í fótboltaleik nje þekki reglur hans, skildu, að hjá þessum mönnum gilti ekki drengskapur í leik og neituðu að koma á fundi, sem þannig var boðað til.

Jeg fór um á Borðeyri daginn eftir að fundur íhaldsherforingjanna átti að vera þar, og var mjer sagt, að á hann hefði komið einn maður, svo að ekki þótti þá ráðlegt að setja fundinn. Þetta er lítill kapítuli úr sögu Strandaherferðarinnar, sem sýnir, hvernig Strandamenn dæmdu með fyrirlitningu um framkomu fundarboðenda og hvernig alt er á sömu bókina lært af hálfu Íhaldsins.

Það gladdi mig annars að sjá það um hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh), að þegar honum var sýnt í tvo heima, þá hvarf af honum peningamontið, sem einkennir hann hversdagslega, og á hann kom sá svipur, sem miður innrættir götudrengir hafa fyrst eftir meðtekna ráðningu. Jeg álít, að hann ætti framvegis að hafa á sjer meðvitund viðurkendrar sektar að minsta kosti annanhvern dag, enda munu víst efni nóg til þess.

Jeg tók það fram í dag, er jeg skýrði frá reglum Englendinga um ógildingu kosninga, að ef sannaðist, að frambjóðandinn, skrifstofa hans eða stuðningsmenn hefðu á einhvern hátt haft rangt við í leiknum, þá yrði kosningin dæmd ógild. Og jeg nefndi sem dæmi, að manni hefði verið mútað með 5 punda seðli til þess að kjósa ákveðinn frambjóðanda, og kosning þess manns gerð ógild af þessari einu ástæðu, en mótkandidatinum dæmt þingsætið.

Nú snýr hv. 2. þm. G.-K. út úr orðum mínum og segir, að ef jeg fengi komið á þessari reglu, sem ríkir hjá Englendingum, að þá mundi hún verða ennþá meiri spillingar valdandi. Hann leyfir sjer, þessi fámentaði maður í stjórnmálum, að halda því fram, að aldagamlar venjur Englendinga, sem ekki hafa reynst ver en saga þjóðarinnar og hið mikla veldi ber vitni um, sjeu spillandi, ef líkt er eftir þeim. Hvernig getur maður hugsað sjer meiri fáfræði og ósvífni en lýsti sjer í orðum þessa hv. þm. Í fyrsta lagi reynir hann að falsa mín eigin orð, sem allur þingheimur hlýddi á, og í öðru lagi segir hann, að drengskaparreglur Englendinga, þrautmentuðustu þjóðarinnar í álfunni, yrðu til þess að spilla okkar þjóð, ef uppteknar væru.

Það kemur ekkert þessu máli við, hvort Jón Auðunn Jónsson situr á þingi næsta hálfa mánuðinn eða ekki.

Aðalkjarni málsins — eins og jeg hefi margtekið fram — er sá, að glæpir eins og þeir, sem átt hafa sjer stað þar vestra, haldi ekki áfram að sljóvga drengskaparmeðvitund þjóðarinnar.

Það er þegar upplýst, að þessi kosningasvik og glæpir hafa lifað góðu lífi á Ísafirði að minsta kosti síðan 1919. Og ef ekki tekst að taka fyrir hneykslið, má vera, að þessi skóli haldi áfram og glæpirnir breiðist út.

Jeg hjó eftir því, að form. Íhaldsflokksins, háttv. 3. landsk. (JÞ), var að harma yfir því, að Jón Auðunn mætti ekki tala hjer í þinginu, af því að hann væri svo kunnugur þessum glæpamálssögum fyrir vestan. Má þetta skiljast svo, að Jón Auðunn sje þessum málum ef til vill allra manna kunnugastur?

Í raun og veru er með þessum umræðum og með þeim atburðum, sem orðið hafa við umræðurnar, búið að skera úr þessum þætti Hnífsdalsmálsins. Það er búið að sanna það, að aðstandendur Hnífsdalsmálsjns eru farnir að finna dálítið líkt til og fulltrúarnir í Ögri. Þeir vilja tala sem minst um málið, þeir vilja segja sem svo: Við viljum ekki gera Jóni Auðuni það ómak að láta hann fara heim aftur, lofum honum að fljóta inn á þingið. Það er miskunnsemin, sem þeir vilja treysta á, en ekki á málstaðinn.

Og inn í þetta mál hefir svo hv. 2. þm. G.-K. farið að draga sem móralska ásökun umtal í blöðum frá kosningunum í vor, ummæli um amerísku lántökuna í fyrra. Annarsvegar hafa af mjer og á hina hliðina af mörgum öðrum þm., sem eru í andstöðu við Íhaldsflokkinn, verið rakin lið fyrir lið glæpsamleg dæmi um framkomu þess flokks í kosningunum, og nú skyldu menn halda, að þeir kæmu með gagnsókn, ef þeir ekki treystu sjer til þess að verja Hnífsdalsmálið og afleiðingar þess, kæmu með volduga gagnsókn og sýndu fram á það, að allir þeir menn, sem hjer hafa talað, hefðu margar veikar hliðar. En hvað kemur upp? Eina gagnsóknin hefir verið það, að þeir hafa sagt, að það hefði ekki verið gætilegt að mótmæla amerísku lántökunni. Þeir taka hjer hneykslismál frá sjálfum sjer, þar sem þeir standa illa að vígi gagnvart þjóðinni, og það eina, sem þeir verja sig með, er kvalastuna yfir því, að jeg kom þessu upp.

En má jeg svo minna á aðra lánsheimild; það er sú fyrir enska láninu, sem Bjarni heitinn Jónsson frá Vogi átti þátt í að koma í gegn og sem jeg held, að hv. 1. þm. Skagf. (MG) hafi verið tregur til að koma í framkvæmd. En hvað verður svo úr þeirri heimild? Úr henni varð ókjaralánið, 10 milj. króna, með 7% vöxtum, 100 þúsund krónur til milliliða, lán, sem ekki fæst að borga á tíu árum. Þetta lán, níu milj. króna heimildin, er ekkert öðruvísi í sjálfu sjer en hin heimildin, og um kosningarnar í vor var ekkert hægt að segja fyrir mig, sem aðeins vissi um áfergju Íhaldsmanna í lánið, annað en að víta það, sem þeir hafa gert. En hvers vegna var lánið tekið? Ein milj. króna var tekin strax, en það, sem bjargaði því að ekki var meira að gert, voru alt aðrir atburðir.

Jeg býst nú við, að við förum að ljúka okkar leik í kvöld. En þegar maður hugsar um allar þær beisku staðreyndir, sem hafa verið látnar dynja yfir íhaldsliðið í dag, þá er ekki að undra, þó að foringjarnir hafi reynt að blása í kaun og að liðsmennirnir hafi reynt að tala eins og götudrengir. Vörnin hefir orðið veik. Þeir reyndu fyrst að vera dónalegir og bíta á skjaldarrendurnar, en eftir því sem að þeim er þjappað, mildast lundin, þeir bogna og eru nú að byrja að skjalla mótstöðumennina. Svona stendur nú málið á þessum punkti, þegar klukkan er 12 um miðnætti. (Hlátur í deildinni).

Hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ) hefir vikið nokkuð að þeim gremjuyrðum hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh), sem hann beindi að mjer. Það er meir en lítið traust frá hv. þm., ef rjett er á litið, að hann álítur mig svo mikinn mann, að jeg hefði endilega átt að vera formaður stjórnarinnar. En þetta er meira traust en jeg óska eftir. Jeg vildi einmitt sjálfur, að sá maður yrði forsætisráðherra, sem er það. Stjórnarmynduninni í sumar var að fullu lokið á tveim dögum, en stjórnarmyndunin, sem átti að gera árið 1924, var býsna lengi á leiðinni, margar vikur, og svo varð það á endanum alt annar maður, sem myndaði stjórnina, og það varð ekki annað en dauðinn, sem gat komið hv. 3. landsk. upp í sessinn. Jeg vil ekki fara að hæla mjer, en jeg hygg nú samt, að ef jeg hefði stympast eins mikið í Framsóknarflokknum eins og núv. hv. 3. landsk. þá gerði meðal sinna manna, 1924, þá hefði stjórnin ekki verið mynduð á tveim dögum. En jeg vil ekki sleppa hv. 2. þm. G.-K., því það er búið að draga upp hvíta fánann hjá Íhaldinu og því þarf ekki að vera að stinga í líkið, eins og gert var á Stiklastöðum.

Jeg held, að jeg verði að minna á „Morgunblaðið“ ennþá. Daginn fyrir kosningarnar í sumar steypir það síðustu sprengikúluna, sem átti að verða liði þess til bjargar. Það lýsir því með átakanlegum orðum, hve sorglegt það væri, ef jeg yrði dómsmálaráðherra 1930. Það hefði „Morgunblaðinu“ víst þótt sárast. En það er nú ekki víst, að jeg verði dómsmálaráðherra árið 1930, en drög eru þó lögð til þess af flokksbræðrum mínum. Og hvað liggur í þessu? Það, að mikill meiri hl. þm., stærsti meiri hl., sem verið hefir á Alþingi Íslendinga síðan árið 1909, velur mig til þess að vera vörð laga, siða og rjettar í landinu um óákveðinn tíma Þetta svar gáfu flokksbræður mínir hinu kvíðandi Morgunblaði.

Jeg gæti aðeins sagt eitt um samanburðinn á mjer og fyrirrennurum mínum, og er þó varla rjett að segja það, þegar á það er litið, hve afskaplega dómsmálastjórnin hefir verið ljeleg á undanförnum árum, að hún væri a. m. k. nokkru skárri nú en áður var. hetta er náttúrlega ekkert lof fyrir mig, en verður þó mitt hrós, ef eitthvað verður annars bygt á samanburði við það, sem áður var. Þetta mun nú vera alment viðurkent og það er ekki skemtilegt fyrir þá menn, sem árum saman hafa verið leigðir til þess að ófrægja mig og aldrei hafa getað borið neitt hvassara vopn á mig en að jeg hafi verið á móti enska og ameríska eyðsluláninu.

Jeg sagði í byrjun minnar síðustu ræðu, sem jeg vona að verði í kvöld, að jeg mundi í ræðulokin víkja að því, sem var kjarninn í minni fyrstu ræðu í dag, hvernig þetta mál horfði við í stórum dráttum. Það horfir þannig við, að hjer er verið að kveða upp fyrsta úrskurðinn um það, hvernig menn, að minsta kosti til bráðabirgða, vilja snúa sjer í vissri tegund glæpamála, því að Hnífdalsmálið er tvíhliða. Það er í fyrsta lagi brot á móti landslögum, sem sýslumaður Strandamanna hefir verið að rannsaka undanfarið, og lítur út fyrir, að ný svik falli í hendur hans næstu daga. Hin hliðin er, hvernig Alþingi Íslendinga á að taka í það, þegar verið er að reyna að skapa meiri hluta í þinginu með atkvæðafölsun. Jeg segi, að öll gögn málsins liggja þannig, að það er óefað heppilegra fyrir þjóðina að láta kosninguna verða ógilda og láta þá hina forhertu menn, sem um undanfarin ár hafa sett blett á þjóðina, svara fyrir kosningasvikin á Vesturlandi. En ef þetta verður ekki gert, sem jeg óttast, að Íhaldsliðið og bandamaður þess, hv. þm. Dal. (SE), muni reyna að hindra, og ef svo þar við bætast einhverjir aðrir hv. þm., sem að vísu áfellast algerlega þessa framkomu, en vilja þó ekki senda Jón Auðun heim og gera ráð fyrir, að hann myndi koma aftur, ná kosningu, þá vil jeg, að við beitum allri orku til þess að bæta löggjöfina á þessu sviði.

Þessi kosning Jóns Auðuns er að vísu merkilegt atriði, en þó ekki eins og hin, sem hleypti þessu mikla hugarvíli í hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh). En það, sem ákveða þarf, er aðallega það, hvort við eigum að búa svo um, að svikararnir sjái, að það sje óhagur að hafa svona brögð í frammi. Jeg bíð með meiri áhuga eftir þeirri atkvæðagreiðslu, því að hún á að ákveða um það, hvort okkur á að takast að hreinsa svo að sæmilegt sje þá bletti, sem kosningasvik undanfarinna ára hafa sett á þjóðina.