20.01.1928
Neðri deild: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (41)
Kosning fastanefnda
Ólafur Thors:
Aðalrökin í málinu eru þau, að það er rjettlátt að fresta þessari kosningu; og í rjettlætisins nafni ber jeg fram þessa ósk.
Viðvíkjandi því, sem háttv. 2. þm. Reykv. (HjV) sagði um það, hvaða áhrif á úrslit kosningar það mundi hafa, hvort búið væri að taka gilda kosningu þingmanns Norður-Ísfirðinga, þá er það nú svo, og þarf ekki að fara neitt leynt, að jeg geri ráð fyrir, að hv. þm. Dal. (SE) kjósi með okkur í nefndir. En af því leiðir að sjálfsögðu ekki það, að hann sje í Íhaldsflokknum, — frekar en að kosningasamband Jafnaðarmanna og Framsóknarmanna getur talist sönnun fyrir því, að þeir sjeu eitt. Hitt er annað mál, að þeir kunna að vera það, — og þeir eru líklega einn flokkur að meira eða minna leyti, — en sönnunin liggur ekki í því, að þeir gangi þannig til kosninga.