27.01.1928
Sameinað þing: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í B-deild Alþingistíðinda. (4115)
Kjörbréf Jóns Auðuns Jónssonar
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Sem betur fer eru ræður nú stuttar. Háttv. þm. Snæf. krefst þess í fyrra að mega nota forsetavald sitt til þess að brjóta þingsköp og hefir ekkert samviskubit af því, þar sem hann reynir ekkert til að gera þetta fyrirkomulag löglegt. En svo þykir honum ódæði að sýna honum, hvernig er að vera í minni hluta og að meiri hlutinn notfæri sjer hans stjórnarvenjur. Hann reynir að gleyma, að við gerum þetta í góðum tilgangi við Íhaldið, við viljum láta það sjá sjálft sig í spegli. En við viljum meira, nefnilega bæta lögin, og gerum það í vetur, ef Íhaldið hindrar ekki. Jeg hygg, að hjer sjáist greinilega sá munur á okkur Framsóknarmönnum og þeim, sem lögbrotið gerðu í fyrra.