31.01.1928
Sameinað þing: 3. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í B-deild Alþingistíðinda. (4120)
Kjörbréf Jóns Auðuns Jónssonar
Magnús Jónsson:
Þessi herferð, sem nú hefir hafin verið á hendur mjer fyrir þau orð, er jeg ljet falla við fyrri hluta umræðunnar, sýnist vera miður undirbúin en málefni stóðu til. Jeg hjelt, þegar hv. 1. þm. Árn. (JörB) stóð upp, að nú ætti að fara að leika Einbjörn, Tvíbjörn og Þríbjörn, en sú varð ekki raunin á. — Það er oft siður, þegar sest er að veislu, að fyrst er eitthvert ljettmeti fram borið, áður en gestirnir fá aðalkrásirnar. Í þessari veislu, sem hjer er háð í kveld, var hv. 1. þm. Árn. til þess kjörinn að bera á borð ljettmetið, sem deildinni var ætlað áður en kjötrjetturinn kæmi frá hæstv. dómsmrh. (JJ). Jeg var nú farinn að vona, að þetta yrði höfðingleg veisla, með 4 eða 5 rjettum og góðum eftirmat, sem alt kæmi frá helstu framsóknarmönnum, og verð jeg að segja, að jeg varð fyrir dálitlum vonbrigðum að þurfa að láta mjer nægja tvo rjetti aðeins. Að vísu get jeg ekki kvartað undan því, að rjettir þessir væru mjög smáir að fyrirferð, en það verð jeg að segja, að undirstöðumatur Var það ekki.
„Ber er hver að baki, nema bróður sjer eigi“, mælti Grettir um Illuga. En það var líka sagt öðru sinni, þegar Björn í Mörk stóð að baki Kára. Og það atvik kom mjer til hugar, þegar jeg heyrði til hv. l. þm. Árn. Mjer fanst jeg alveg þekkja setningarnar úr Njálu í ræðu hans: „Hvárt þykir þér undir því mest, at vit sém sem vitrastir?“ „Hvárki frý ek mér skygnleiks né hvatleiks né natkvarrar karlmensku.“ „Er hér raun til, at því leita engir á mik, at engir þora“, o. s. frv.
Það er yfirleitt gaman að heyra þetta rindilslega mont hjá þeim smærri og kraftaminni, ef þeir halda, að þeir standi bak við einhvern, sem þeir álíta stóran og sterkan, og á jeg hjer ekkert frekar við hv. 1. þm. Árn. en hvern annan, er mælir í sama tón.
Þessi hv. þm. var annars ekki sjerlega frumlegur í ræðu sinni. Hann byrjaði á því að líkja mjer við manninn á mótorhjólinu, sem ekki gat stöðvað sig, þegar hann var kominn af stað. — Mikið skelfing hefði jeg nú hlegið að þessari samlíkingu, ef jeg hefði ekki verið búinn að heyra hana oft áður. Jeg hygg, að það hafi verið hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh), sem fyrstur kom með þessa fyndni, og nú eru Íhaldsmenn búnir að hlæja að henni marga daga. En jeg held, að hún sje nú farin að slitna, og hefði ekkert á móti að lána Framsókn hana um tíma. Þaðan gæti hún svo farið til jafnaðarmanna og frá þeim í Spegilinn. Þá ætti að fara að verða trygt, að hún væri fullnotuð. — Annars verð jeg að segja það, að ef jeg hefi komið einhverju mótorhjóli af stað án þess að hafa ætlað mjer það, þá hafi það mótorhjól verið þessi háttv. þm. Jeg ætlaði alls ekki að hleypa honum af stað, en það lítur út fyrir, að jeg hafi óviljandi stutt á eitthvert typpi á honum; svo mikið er víst, að hann rann af stað og út allan Eyjafjörð, þótt botninn yrði eftir suður í Borgarfirði.
Hv. þm. var að tala um, að hann þekti mig að öllu góðu persónulega, og get jeg sagt hið sama um hann. En mjer þykir undarleg þessi skylda, sem hann virðist álíta, að hvíli á sjer til að umhverfast og verða allur annar maður, þegar hann kemur í þingsalinn. Jeg minnist þess t. d., að einn sinni í fyrra, þegar jeg var dauður eða hálfdauður í máli, reis hv. þm. upp og fór á illkvittnislegasta hátt að draga inn í umræðurnar smávægilega ráðstöfun, sem gerð hafði verið af nefnd úti í bæ, sem jeg átti sæti í.
Síðan fór hv. þm. mörgum orðum um dugnað hæstv. stjórnar, þ. e. a. s. hæstv. dómsmrh. Okkur getur áreiðanlega komið saman um það, að hæstv. ráðh. sje mjög duglegur, enda man jeg ekki betur en að mjög mikill hluti minnar stuttu ræðu um daginn fjallaði einmitt um það atriði. En hv. 1. þm. Árn. nefndi einstök dæmi um þennan óhemju dugnað, eins og það hvað gert hefði verið til að halda bannlögunum í heiðri, refsingar á leynivínsölum og smyglurum o. s. frv. Það má nú segja, að þar var dugnaður. á ferðinni, t. d. þegar gefin var út fyrirskipun um að setja ölvaða menn í land af „Esju“. Þar var nú handagangur í öskjunum, því að hver ráðherrann reif frá öðrum, til að vera sem „duglegastur.“ Fyrst átti þetta að heita framkvæmd á bannlögunum og heyra undir dómsmálaráðuneytið, en þegar bent var á, að þessi ráðstöfun væri ekki heimil eftir þeim lögum, þá var látið heita svo, að það væri gert til þess að halda uppi góðri reglu á skipum ríkissjóðs. En þá var málið komið inn á valdsvið atvinnumálaráðherrans, og hafði dómsmrh. því í ofurmætti dugnaðarins vaðið inn á annars manns landareign. — En um herferðina gegn smyglurum og leynivínsölum, sem vitanlega er bæði nauðsynleg og lofsverð, verð jeg að segja, að jeg veit ekki til, að hún hafi hafist með þeirri stjórn, er nú situr. Jeg held, að hún hafi þar ekki gert annað en að halda áfram þeirri stefnu, er fyrv. stjórn hafði tekið, og er það auðvitað þakkarvert, að hún geri það sem víðast.“
Jeg mintist á það, að hv. þm. (JörB) var ekki tiltakanlega frumlegur í ræðu sinni. Jeg er búinn að minnast á manninn á mótorhjólinu. Síðan hnuplaði hann líkingu minni um drenginn með pokann, sem hann raunar breytti í fjósreku, og á það kannske fult eins vel við hjá „bænda“-flokknum. Síðan kom hundapískurinn, sömuleiðis hnuplaður frá mjer; þá það, hvaða aðferð jeg hefði til að upphefja sjálfan mig, — ránsfengur úr dagblaðinu „Vísi“ á laugardag. Svona var ræðan, tíningur hjeðan og þaðan, sem sýnir mikinn fróðleik, elju og vísindamannshæfileika hjá þeim, sem flutti.
Hv. þm. fór skakt með, þegar hann talaði um þau orð mín, að 10 kynslóðir væru milli hæstv. dómsmrh. og „gentlemans“. Bæði háttv. þm. og hæstv. ráðh. þóttust taka þetta svo, sem jeg væri að lesa bölbænir yfir niðjum ráðherrans í 10. lið. En jeg sagði það eitt, að framferði hæstv. ráðherra væri þannig, að 10 kynslóðir sýndust vera milli hans og „gentlemans“. En það er svo margt annað en innræti ráðherrans og hegðun, sem getur orðið til að bæta afkvæmi hans, t. d. getur verið svo mikið gott í hans ko.nu og jafnvel í hans eigin ætt, þótt það komi ekki í ljós hjá honum sjálfum. Og jeg óska, að alt hans kyn blessist og blómgist í þúsund liðu.
Þá kom afarviðkvæmur kafli í ræðu hv. 1. þm. Árn., þegar hann fór að tala um, hve mjög jeg hefði misboðið vinnukonunni á Akureyri. Hann lagði fagurlega út af því, hve gott fólk vinnukonur gætu verið, — þær gætu jafnvel náð lengra á dygðabrautinni en dósentar í guðfræði. Jeg held, að hann hafi verið svo hátíðlegur, þegar hann var að tala um þetta, að fyrri flokksbræður hans, jafnaðarmenn, ættu úr þessu að geta tekið hann í sátt og hætt að kalla hann Efialtes. En það er algerlega rangt með farið, að hjá mjer hafi komið fram nokkur óvirðing við vinnukonur. Það er enginn efi, að þær geta verið svo draumspakar sem hver annar, en jeg var aðeins að benda á þessa dæmalausu natni hæstv. ráðh. við að bera alla skapaða hluti, hverja slúðursögu og hvern þvætting, sem upp kemur úti um land, inn í þingsalinn, þennan þingsal, sem hæstv. ráðh. er að tala um, að eigi að vera svo ákaflega virðulegur, en er þó af honum sjálfum notaður sem útvarpsstöð fyrir frjettaburð og slúður. Þetta draumahjal hans hefði ekki verið vitund betra, þótt hann hefði þótst hafa það frá kaupmannsfrú, — eða jafnvel háskóladósent. En um vinnukonurnar vil jeg aðeins bæta því við, að ef okkur háttv. 1. þm. Árn. auðnast að komast á góðan samastað eftir þetta líf, þá er jeg viss um, að við eigum eftir að sjá þar stóra hópa af vinnukonum í miklu meiri metum en sjálfa okkur, og vona jeg nú, að hv. þm. sje ánægður.
Þegar hv. þm. fór að tala um Jón Gerreksson, hætti mjer alveg að lítast á blikuna. Mjer hafði komið til hugar að heimsækja hann næsta sumar á hinum „hæsta höfuðstað“, Skálholti, en jeg held, að jeg gefist upp við það, ef jeg má eiga von á, að hann setji mig í poka og drekki mjer í Brúará!
Þá þykist jeg hafa gert fyrri rjettinum full skil, og get snúið mjer að sjálfum kjötrjettinum, ræðu hæstv. dómsmrh. Þó að við yrðumst ofurlítið á, vona jeg, að það verði aðeins til að skerpa vináttuna, því að við þurfum að vinna saman í ýmsum nefndum, og verð jeg að segja, að það hefir gengið mjög vel.
Hæstv. ráðh. var leiður yfir því, hve lítið jeg hefði talað um sjálft málið, sem hjer liggur fyrir, og um þau mál, sem hann hefir tekið á sína arma. En þetta mál er svo ofureinfalt og óbrotið, að það hefði orðið þrautrætt á einni klukkustund, þótt alt hefði verið fram dregið, sem nokkuð kom málinu við. Hjer var ekki um annað að ræða heldur en það, hvort fylgja ætti þeirri þingvenju, sem hjer hefir myndast og sendiherra hefir upplýst, að einnig gildir á Norðurlöndum, og hæstv. ráðh. segir að gildi sömuleiðis á Englandi. Kosningin í Norður-Ísafjarðarsýslu stenst allar þessar eldraunir, því að enn hefir enginn leyft sjer að halda því fram, að frambjóðandinn sjálfur eða þeir, sem standa honum nærri, hafi átt þátt í eða vitað um kosningasvikin. Málið sjálft var þannig ákaflega einfalt. En það, sem fjekk mig til að fara af stað í þessu máli, voru hinar löngu ræður hæstv. ráðh., — jeg veit ekki, hvort þær eru heldur 10 eða 20, — þar sem hann bar fram taumlausar órökstuddar árásir á Íhaldsflokkinn. Því að þótt undarlegt kunni að virðast, að stjórnin byrji eldhúsdag á sjálfri sjer, þá var það hæstv. dómsmrh., sem átti upptökin að honum að þessu sinni. En það er svo um þennan mann, að hann sjest ekki fyrir, þegar ofsinn grípur hann; veit ekkert, hvað hann er að gera, frekar en bolinn, sem rótar upp moldarflagi yfir sjálfan sig.
Hæstv. ráðh. eyddi löngum tíma og miklu máli til þess að sýna afstöðu sína til meiðyrðamála. Mjer kemur ekki til hugar að amast við því, þótt hann höfði aldrei meiðyrðamál gegn nokkrum manni. Hann um það. En það, sem gerði að verkum, að hv. Ed. þótti sjer misboðið með framferði hans, var það, að hann vildi ómögulega leyfa öðrum að lifa eftir sömu reglu. Hann vildi láta Alþingi skylda aðra menn til þess að fara í meiðyrðamál, þótt hann gerði það aldrei sjálfur, og það var þessi undraverða afstaða, sem hverjum sanngjörnum manni þótti ganga ósköpum næst. — Hæstv. ráðh. talaði um dómstól almenningsálitsins, og það er alveg rjett, að þeim dómi verðum við allir að hlíta. En dæmin, sem hann bar fram til að sanna, að sá dómstóll hefði dæmt öðruvísi en lagadómur, voru ekki mikils virði. Það eru ekki svo einstök atvik, sem ráða því, hver kemst á þing og hver ekki. Þar kemur fleira til. Það er eins og Napóleon sagði einhverntíma, þegar honum var óskað þess, að hann hefði nú forsjónina með sjer. „Forsjónin er altaf með þeim, sem bestar hefir kanónurnar,“ sagði hann. Eins er um það, hverjir komast á þing. Enda var það t. d. svo um þessa tvo hv. þm., sem hann vildi reka í málaferli, að þeim hefir skilað vel áfram, ekki síður eftir þetta en áður. Annar þeirra var forsætisráðherra alt til dauðadags, og hinn held jeg að hafi unnið glæsilegan kosningasigur nú í sumar, ef hann á við þá menn, sem jeg ætla. Og þó að hvorki Þórarinn á Hjaltabakka nje Magnús Pjetursson sjeu nú á þingi, þá er það tilhæfulaust fleipur, að almenningsálitið hafi dæmt þá seka um nokkurn skapaðan hlut. Vill ekki hæstv. ráðh. fallast á það?
Þá var skemtilegt að heyra til hæstv. dómsmrh., þegar hann fór að tala um það eins og fjarstæðu, að sá saklausi höfðaði mál á móti þeim seka. Hver heldur þessi „vörður laga, siða og rjettlætis“ að sje vanur að höfða málin? Líklega sá seki, til þess að fá sig dæmdan! — „Jeg, — jeg, sem er saklaus eins og dúfa, á jeg að fara að höfða mál á móti þeim seka, sem gerir á hluta minn?“ segir hæstv. ráðh. Hafa menn á æfinni sjeð meiri hugsanagraut á borð borinn? Það á að vera fjarstæða, að sá saklausi höfði mál gegn þeim seka!
Jeg hefi hugsað mjer að vera ekki mjög langorður, a. m. k. stuttorðari en hæstv. ráðh. Enda hefir hann nú haft 3 daga til þess að sjóða saman árásina á mig, þar sem jeg hefi engan tíma til að búa mig undir vörnina. Og það þarf engan að undra, þótt einhver ávöxtur sæist, er slíkur vefari sem ráðherrann hafði setið við í 3 daga. En hæstv. ráðh. vjek nokkrum orðum að mjer persónulega, — mikil dæmalaus æra, að hæstv. dómsmálaráðherra sjálfur skuli tala um mig persónulega. En í sama bili nefndi hann orð, sem bregður ljósi yfir það, sem sumir hafa furðað sig á, sem sagt hvaðan hann hefir hið prúða orðbragð sitt. Nefndi hann Vagnmakaragötu í Kaupmannahöfn, og var auðheyrilega mjög fróður um það, sem þar gerist. Og þar hefir hann sjálfsagt lært munnsöfnuðinn.
Þá byrjaði hæstv. ráðh. að rekja „innri gang“ málsins. (Dómsmrh. JJ: Ytri gang!). Það má vera, að mjer hafi misheyrst þetta, en það stafar þá af því, að jeg hefi átt von á, að hann færi að tala um hinn „innri gang“, sem hann er altaf sá dæmalausasti snillingur að rekja. En sleppum því. — Hæstv. ráðh. talaði í þessu sambandi mikið um sjerstaka mynd í „Speglinum“. Hann hefir áður skrifað mikið um listir, og þetta er aðeins ein sönnunin í viðbót um hina miklu listaþekkingu hans. Jeg man nú ekki vel eftir myndinni, en það er eins og mig minni, að í þessu negralýðveldi gægist hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) út úr einum kofanum og horfi hýrlega til þess, sem verið er að sjóða: núv. hæstv. dómsmrh. í sínum eigin hatti. Þetta hefir því líklega átt að vera hnúta frá hæstv. ráðh. til háttv. 1. þm. S.-M., að hann mintist á þessa mynd. Það hefir átt að minna hann á, að hann væri að lenda í íhaldsnegraríkinu með því að samþykkja þessa kosningu.
Hæstv. ráðh. sagði, að það að samþykkja þessa kosningu væri sama og að fallast á þau svik, sem framin hefðu verið í Hnífsdal. Þetta endurtók hann jafnvel eftir að hæstv. fjmrh. (MK) hafði sagt sína skoðun á málinu, svo að í þessu lá bein aðdróttun til hans. Mjer kemur að vísu lítið við, hvað Framsóknarflokkurinn gerir, en þótt hæstv. dómsmrh. hreyki sjer nú hátt, þykir mjer ósennilegt, að honum haldist lengi uppi að svívirða á þennan hátt sjer eldri og engu blettaðri flokksbræður sína.
Næst lenti hæstv. ráðh. á skeyti, sem Morgunblaðið birti í vetur, — hann er altaf eins og kría á flugi, þessi hæstv. ráðh., og aldrei að vita hvar hann ber niður. — Þetta var skeyti, sem blaðið birti frá Einari Jónassyni fyrrum sýslumanni. Talið um þetta var líkt og stundum áður. Ef Íhaldsmenn þegja um eitthvert mál, áður en þeir hafa fengið upplýsingar um það, þá stafar það af vondri samvisku, og ef þeir segja svo eitthvað, þegar þeir hafa fengið upplýsingarnar, þá eru þeir að gefa skjólstæðingum sínum reisupassa Sölva Helgasonar. Það er vandlifað fyrir Íhaldsmenn í þessu landi.
En þetta var einskonar forleikur, fagurt hugmyndaflug, áður en hæstv. ráðh. fór að tala um mig persónulega. (Dómsmrh. JJ: Pólitískt!). Jæja. Var hann þá pólitískur pjesinn, sem jeg skrifaði um Ameríku?
Á utanríkismálaskrifstofum erlendis og stórurri lögregluskrifstofum eru oft til stórar skrár, þar sem flokkaðar eru upplýsingar um alla mögulega menn. Stundum fylla þessar skrár margar stofur og jafnvel heil hús. Það lítur út fyrir, að hæstv. dómsmrh. hafi einhverja svona skrá. Nú þurfti hann að tala yfir mjer. Þá flettir hann upp. — Jú, þarna er Magnús Jónsson; ráðherrann gengur að veggnum, dregur út skúffuna og les. Fyrst finnur hann, að þessi maður hafi skrifað bók um Ameríku og landa þar. En þótt jeg hafi mikla freistingu til að ræða ögn um þessa bók, þá held jeg, að jeg verði nú að neita mjer um þá ánægju að mestu. Það var svo fjarri því, að jeg í bæklingi þessum svikist að löndum vorum vestra, að í honum var ekkert nema það, sem jeg margsinnis hafði sagt upp í eyru þeirra þar, og meira að segja sagt þeim, að jeg mundi kannske skrifa um síðar.
Annars vakti þessi bæklingur talsverða eftirtekt vestur þar, máske meiri en hæstv. dómsmrh. grunar. Var meðal annars haldin um hann opinber kappræða í Winnipeg; annar varði, en hinn sótti, og var fjölsótt. Má af því marka, að ekki hafi þótt markleysa ein. Og hæstv. ráðh. (JJ) hefir gert mjer æru með því að draga þetta fram í dagsins ljós. Hann öfundar mig kannske, því líklega hafa aldrei farið fram opinberar kappræður um pjesa hans. Eftir heimkomu mína skrifaðist jeg á við ýmsa kunningja mína vestra, og viðurkendu sumir þeirra fullkomlega rjettmæti lýsinga minna. Það kann að hafa sviðið sárt í bili sumstaðar. Það eru til hjegómlegir menn vestur þar, ekki síður en hjer. En jeg veit annars ekki betur en að vinarhugur milli Vestur- og AusturÍslendinga hafi sjaldan eða aldrei verið meiri nje traustari en einmitt síðan. Jeg þori að vísu ekki að eigna þessum bæklingi mínum neitt. En þó, hver veit nema hann hafi opnað augu landa vestra fyrir sumu, sem miður fór í afstöðu þeirra til gamla landsins og þjóðarinnar, sem þar býr.
Þá mintist hæstv. dómsmrh. næst á það, að jeg hefði gert mig sekan í því óttalega ódæði, að mjer skildist, að sækja um og taka þátt í samkepni um kennaraembætti hjer við háskólann og vinna sigur í þeirri samkepni. Hann taldi þessi ósköp einna skýrasta sönnun þess, að helvítisstefnan, sem dr. Helgi Pjeturss talar um, sje nú fyrir alvöru farin að sigra á jörð vorri. Jeg veit ekki, hvort þeir eru um þetta sammála hæstv. forsrh. (TrÞ) og hæstv. dómsmrh. (JJ). Er hæstv. forsrh. þó málið skyldara og hefði hann átt að taka það sárara, hver úrslit urðu þessarar samkepni, þar eð hann átti hlut að máli. En svo mikið er víst, að skömmu eftir að þau úrslit urðu kunn, mætti jeg núv. hæstv. forsrh. (TrÞ) á götu, og enginn tók hlýlegar í hönd mjer og óskaði mjer hjartanlegar til hamingju en einmitt hann. Og mjer er ljúft að lýsa því yfir, að þann mann hefi jeg yfirleitt ekki reynt nema að drengskap í minn garð. Hefði jeg haldið, að sú iðja hæstv. dómsmrh. væri dálítið meira í ætt við vítisstefnuna, að vera að reyna að spilla milli þeirra, sem ekki er illa hvorum við annan.
Þá kom þingmenskuferill minn. Þar bjóst jeg nú við, að kæmi syndalisti. En minna varð úr en við var búist. Aðalsökin sú, að jeg hefði fyrst verið andstæðingur Jóns heitins Magnússonar. Því til sönnunar greip hæstv. dómsmrh. til þeirrar ódýrustu vöru, sem hjer er hægt að hafa á boðstólum, sem er það að lesa hitt og þetta gamansamt upp úr gömlum Alþingistíðindum. Af hverju fylgdi jeg ekki skilyrðislaust Jóni Magnússyni? Einmitt af því, að mjer þótti hann oft um of hafa stuðst við þann flokk, sem nú styður hæstv. dómsmrh. Ætti hann því sjálfs sín vegna síst að geipa um þetta, þótt jeg ekki meti persónur svo mikils, að jeg fylgi þeim á þeim brautum, er mjer virðast rangar. Hitt hefi jeg gert og mun gera, að fylgja þeim fúslega eftir, er mjer þykir rjett stefna.
Þá komst hæstv. ráðh. (JJ) út í lýsingu, sem háttv. 3. landsk. (JÞ) gaf eitt sinn af mælsku minni. ( Dómsmrh. JJ: Hún er nú góð). Hann hafði hótað mjer því áður að bauna henni á mig við gott tækifæri. En svo illa vildi til, að háttv. 1. þm. Árn. (JörB) hafði því sem næst stolið frá honum tækifærinu með því að minnast á þetta í ræðu sinni, þótt ekki kæmist svo langt, að hann læsi upp þessi merkilegu ummæli. Enda veit jeg ekki, hvernig farið hefði fyrir hæstv. dómsmrh., ef hann hefði verið sviftur þessu vopni. En eftir því sem orð mín síðast virðast hafa komið ónotalega við kaun hæstv. dómsmrh., þá er svo að sjá, sem mjer hafi farið mikið fram síðan jeg fjekk vitnisburðinn. (JÞ: Já, mjög mikið). Þá var hæstv. dómsmrh. heldur ekki kominn á þing, því að þá hefði háttv. 3. landsk. áreiðanlega ekki talið mig lakastan þingmanna að munnsöfnuði. Þá hefði hann vissulega sagt: að undanteknum amtmanninum.
Ein ásökun hæstv. dómsmrh. á hendur mjer var sú, að jeg kæmi á fundi hjer í Reykjavík og annarsstaðar þar sem stjórnmál væru rædd. Líkti hann mjer við áhald, sem notað væri til sóðalegra verka. Hver þau verk eru, nefndi hann ekki. Ef það telst til skítverka að ræða stjórnmál, þá er það ekki annað en það, sem hæstv. dómsmrh. lætur sjer sama að gera á fundum. Það hefir ekki þurft á mjer að halda til þess að vinna sóðaverk. Þau eru yfirleitt ekki unnin í mínum flokki. En hæstv. dómsmrh. fer ekki til annara, ef hann þarf að láta vinna sóðaverk í sínum flokki. Hann vinnur þau sjálfur.
Til þess að sýna enn einu sinni og sanna, hversu sjer væri lagið að halda þræðinum, komst hæstv. dómsmrh. inn á fyrirspurnir þær, er jeg hefi borið upp í Nd., aðra um gagnfræðaskólann á Akureyri og hina um aukastörf ráðherranna. Jeg fæ nú ekki sjeð, hvað þessar fyrirspurnir koma þessu máli við eða þeim hnippingum, sem okkar í milli hafa farið. Og jeg verð að segja það, enda þótt hæstv. forseti hafi sýnt það umburðarlyndi við hæstv. ráðh. (JJ) að leyfa honum að vaða svo út fyrir efnið, þá vil jeg ekki reyna svo þolinmæði hæstv. forseta, að jeg fari að rökræða þessar fyrirspurnir nú. Enda mæla þingsköp svo fyrir, að fyrirspurnir skuli einungis ræðast í þeirri deild, sem þær eru bornar upp í. Það er því hreinn barnaskapur að fara að ræða þær í Sþ.
Jeg læt mjer í ljettu rúmi liggja, hvort hæstv. dómsmrh. svarar þessum fyrirspurnum eða ekki. Það munu gefast nóg tækifæri, þar sem hann verður að svara þeim samt. Hitt þykir mjer verra, að hann virðist hafa misskilið fyrirspurn mína um aukastörf ráðherranna og fer að tala um aukatekjur í sambandi við hana, og mig sem nokkurskonar methafa í þeirri grein. Jeg skal ekki neita því, að jeg hefi gegnt trúnaðarstörfum fyrir Alþingi og þegið laun fyrir, og þó ekki fleiri nje hærra launuð en tugir þingmanna fyr og síðar. Mun jeg aldrei skammast mín fyrir það, því að jeg hefi reynt að leysa þessi aukastörf mín af hendi svo samviskusamlega sem mjer hefir verið unt. En um aukastörf ráðherra er það að segja, að mörg trúnaðarstörf eru svo vaxin, að óhæfa er, að ráðherra hafi þau á hendi, alveg án tillits til þess, hvort hann tekur peninga fyrir eða ekki.
Hin langa ræða hæstv. dómsmrh. gaf mjer ekki tilefni til eins skörulegrar ræðu og jeg hefði kosið. Vesall andstæðingur dregur hvern mann niður, sem við hann fæst.
Hann lýsti því, hæstv. ráðh. (JJ), hvað sjer hefði dottið í hug við að kynnast mjer. Jeg hefi nú um nokkurt skeið átt kost á að kynnast honum. Og það er fjarri því, að það sje að öllu illu. En einmitt þess vegna vil jeg víta það, sem vítavert er í fari hans, að mjer er meinlaust við hann persónulega. Hann taldi upp ýmislegt, sem jeg hefði til að bera, sem myndi gera mig ágætan liðsmann illra leiðtoga og misindismanna. Jeg skildi þetta sem nokkurskonar tilboð af hendi ráðherrans um að gerast hans maður. En hafi svo verið, þá verð jeg að gefa honum fullkomið afsvar.
Mjer dettur í hug saga. Einu sinni var maður, sem hafði látið skoða sig til lífsábyrgðar. Þegar hann kom frá þeirri skoðun, var hann mjög glaður í bragði og hressari en hann átti að sjer að vera. Jeg furðaði mig á þessu og spurði, hvað gleddi hann svo. Hann svaraði, að læknirinn hefði skoðað sig allan í krók og kring og lýst því svo yfir að þeirri skoðun lokinni, að hann væri alheilbrigður. En svo var mál með vexti, að þessi maður hafði haft leynilegan grun um, að hann gengi með einhvern sjúkdóm, en aldrei komið sjer að því að leita álits læknis. Nú hafði hann fengið fullvissu um, að ekkert gengi að sjer. Það gerði hann svona glaðan.
Það — er eitthvað svipuð tilfinning, sem hreyfir sjer hjá mjer. Jeg veit að sjálfsögðu á mjer ýmsa snögga bletti og er kannske ekki altaf fullkomlega ánægður með breytni mína. En að láta svo slíkan lækni sem hæstv. dómsmrh., svo fundvísan á veilur í fari manna og með 3 daga frest til undirbúnings rannsókninni, að láta slíkan lækni skoða sig, segi jeg, og fá hjá honum annað eins heilbrigðisvottorð og hann hefir gefið mjer, það vekur hjá mjer óblandinn fögnuð og ánægju.
Annars þótti mjer hæstv. dómsmrh. fara að gera sig nokkuð breiðan, er hann kom fram sem nokkurskonar jarl Krists á jörðinni og fór að leggja niður fyrir sjer, hvað Kristur myndi segja, ef hann kæmi inn í guðfræðideild háskólans og hlustaði á mig kenna prestsefnum kirkjusögu. Jeg veit ekki, hvort jeg á að fara að kenna hæstv. ráðh. (JJ) dálítið í kirkjusögu. Jeg held helst ekki. En mjer dettur í hug dómur sögunnar um einn kirkjuhöfðingja liðinna alda.
Bonifacius er páfi nefndur, hinn 8. með því nafni. Hann var duglegur mjög og athafnasamur, mesti þjarkur, ef svo mætti að orði kveða, en lítt vandur að virðingu sinni og hikaði ekki við að nota miður heppileg meðul til þess að hrinda fram kappsmálum sínum. Yfirleitt er hann talinn einhver sá versti páfi, er uppi hefir verið. Hann komst í deilur við voldugari þjóðhöfðingja samtíðar sinnar, Filippus fríða Frakkakonung. Áttu þeir brjefaskifti saman um ágreiningsefni sín. Hóf Filippus eitt brjef sitt til páfa á þessa leið: „Sciat tua magna fatuitas“. Það þýðir frítt útlagt eitthvað þvílíkt sem skikkanlegur borgari segði við annan: þú ert ærulaus lygari og rógberi. Orðin þýða raunar ekki þetta, en þegar haft er í huga, að það er konungur, sem er að ávarpa æðsta mann kirkjunnar, þá er það áþekt „compliment“ því, er jeg tiltók. Um þennan mann sagði einn heilagur maður samtíðarinnar: Hann kemur til valda sem refur, ríkir eins og ljón og deyr eins og hundur. Þessi dómur hefir oft rætst um andleg skyldmenni hans, þótt minni sjeu fyrir sjer en hann, og veit jeg, að svo mun enn verða.
Að svo mæltu legg jeg mig nú til hinstu hvíldar í þessu máli, með því að jeg mun nú dauður vera og mun ekki rumska í gröf minni, þótt hv. 1. þm. Árn. (JörB) eða aðrir kunni að vilja leggjast á náinn.