14.02.1928
Neðri deild: 22. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1386 í B-deild Alþingistíðinda. (417)
6. mál, laun embættismanna
Halldór Stefánsson:
Brtt. hæstv. forsrh. er svo einfalt mál, að jeg sje enga ástæðu til að tefja málið með því að taka það nú út af dagskrá og vísa því til nefndar. Það væri líka tafsöm afgreiðsla mála, ef það væri gert að venju að taka þau út af dagskrá einungis vegna þess, að brtt., sem fram koma, hefðu ekki verið athugaðar í nefnd.
Hvað brtt. sjálfa snertir vil jeg taka undir það með hv. þm. Dal., að það sje ekki ástæða til að breyta þessu atriði launalaganna fremur en öðrum, þegar lagt er til, að þau verði látin haldast óbreytt til bráðabirgða, enda gæti það leitt af sjer kröfur til fleiri breytinga.