20.01.1928
Neðri deild: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í B-deild Alþingistíðinda. (45)
Kosning fastanefnda
Magnús Jónsson:
Ef hjer hefði verið um að ræða einhverja misfellu á kosningunni fyrir vestan, sem komið hefði upp alt í einu, hefði jeg getað skilið, að stjórnarflokkurinn vildi fá frest til ákvörðunar. En trúi því hver sem vill, að flokkurinn muni skifta nokkuð um skoðun eða að nokkurt nýtt ljós muni renna upp í þessu máli á þessum tveimur eða þremur dögum? Stjórnarblaðið er líka búið að fella dóm í málinu, hvað þá heldur að mynda sjer skoðun.
En viðvíkjandi því, hvort hæstv. forsrh. (TrÞ) finst þetta ósæmileg aðdróttun, þá er það, sem aðdróttunin felur í sjer, á allra vitorði. En jeg get samt ekki verið að taka það illa upp fyrir honum, þótt hann taki tækifærið til þess að mótmæla þessu úr forsætisráðherrastóli. Það er laglegra áferðar, þó að allir viti hið sanna.