27.02.1928
Neðri deild: 33. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (473)
11. mál, fræðslumálanefndir
Magnús Jónsson:
Jeg get tekið undir það með hæstv. dómsmrh., að frv. þetta stefnir í rjetta átt. Að vísu má segja, að hjer sje ekki um stórt atriði að ræða og að fela mætti fræðslumálastjóra þetta verk, sem nefndinni er ætlað að hafa með höndum. En það er annar aðalkostur við frv., og hann er sá, að það hvetur kennarastjettina til umhugsunar og metnaðar, þegar ráðin eru að nokkru lögð þeim í hendur. Það liggur uppörvun til þeirra í því, að ekki komi skipun til þeirra um alt ofan að, heldur eigi þeir sjálfir að vera með í ráðum. Ef til vill væri gott, að fleiri stjettir þjóðfjelagsins væru þannig hafðar með í ráðum um vinnubrögð sín. Jeg er sammála hæstv. dómsmrh. um það, að það er hættulegt að kenna börnum of fljótt námsgreinar, sem fjalla um hreint hugrænt efni, sem er ofvaxið skilningi þeirra. Jeg get tekið sem dæmi barn, sem átti að segja, hverjir tugirnir væru. Það taldi tugina þannig: 10, 20, 30 o. s. frv., 80, 90 og króna. Það miðaði tugina eða tölurnar við búðarverðið.. En það hafði auðsjáanlega ekki tileinkað sjer „matematiskan“ skilning á þeim.
Jeg tel það rjetta stefnu, að kennararnir fái hlutdeild um þessi mál. En jeg tel engu ver sjeð fyrir því í brtt. minni. Eftir henni á stjórn kennarafjelags Íslands að velja einn mann í nefndina. Það er rjett, sem háttv. frsm. (ÁÁ) sagði, að ef nefndin væri ósammála, þá gæti ráðherra úrskurðað án tillits til meiri eða minni hluta. En þá fæ jeg heldur ekki sjeð, að það sje betra, að það sjeu 7 menn heldur en 1 í nefndinni af hálfu kennarafjelagsins, þegar þeir hvort sem er ráða ekki meiru fyrir því. En kennarastjettinni er sýndur óvenjulegur sómi, sem á, að jeg hygg, við fá fordæmi að styðjast, þótt þeir hafi ekki nema einn mann. Að vísu geta kennararnir sífelt komið fram vilja sínum í nefndinni sakir fjölmennis samkv. frv. En þeir hafa þó ekki úrskurðarvaldið, sem er hjá stjórninni. Jeg held því, að ef mín brtt. verður samþ., þá verði það meiri hvöt fyrir þann kennara, er verður í nefndinni, að berjast vel fyrir sínum áhugamálum og reyna að vinna hina nefndarmennina til fylgis við sig. Jeg get tekið undir það með hv. frsm., að ekki muni vera neitt hættulegt að skipa þessa nefnd eins og ætlast er til í frv., en þó gæti þessi tilhögun, sem er nokkuð óeðlileg, valdið óánægju innan nefndarinnar. En jeg tek það þó fram, að það er þykkjulaust frá minni hálfu, hvort brtt. mín verður samþykt eða ekki. Jeg get hugsað, að það geri máske ekki svo mikið til í raunveruleikanum.