24.01.1928
Neðri deild: 5. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í B-deild Alþingistíðinda. (48)

1. mál, fjárlög 1929

Fjmrh. (Magnús Kristjánsson):

Mjer er ljóst, að það er dálítið þreytandi að sitja undir löngum fjármálaræðum og talnaupplestri. Jeg mun því fara svo fljótt yfir sögu, sem frekast er unt. Vænti því þess, að háttv. þdm. veiti fulla athygli því stutta erindi, sem jeg nú mun flytja.

Jafnframt því, að þetta frv. til fjárlaga fyrir næstkomandi ár er lagt fyrir þingið, mun rjettast að fylgja þeirri venju að skýra frá því, eftir því sem föng eru á, hvernig afkoma liðna ársins hefir orðið. Oft hefir verið kvartað um, að erfitt væri að gefa slíkt yfirlit svo að ábyggilegt sje, jafnvel þótt þing hafi komið saman á venjulegum tíma, í miðjum febrúar. Það liggur því í augum uppi, hversu miklu erfiðara það er nú, þar sem undirbúningstími hefir að þessu sinni verið nærfelt mánuði styttri en venjulega, og er því illkleift að afla í tæka tíð allra þeirra gagna víðsvegar að af landinu, sem nauðsynleg eru.

Jeg skal geta þess, áður en jeg sný mjer að aðalefninu, að jeg mun ekki fara nákvæmar út í þetta en svo, að þar sem um stóra liði er að ræða, mun jeg aðeins nefna þúsundin. Hitt skiftir minna um smærri tölur. Auðvitað getur átt sjer stað, að tölur verði nánar tilgreindar, látnar standa á hundruðum.

Eftir þeim upplýsingum, sem fengnar eru, verður þá yfirlitið á þessa leið:

Tekjur:

Umfram

Undir

Áætlun

Reikningur

áætlun

áætlun

kr.

kr.

kr.

kr.

2. gr.

1. Fasteignaskattur . . . . . . . . . .

225000

253628

28628

2. Tekju- og eignarskattur . . . . .

950000

794917

55083

3. Lestagjald af skipum . . . . . . .

35000

44729

9729

4. Aukatekjur . . . . . . . . . . . . .

375000

464273

89273

Umfram

Undir

Fjlgr.

Áætlun

Reikningur

áætlun

áætlun

kr.

kr.

kr. kr.

5. Erfðafjárskattur . . . . . . . . . . .

40000

39777

223

6. Vitagjald . . . . . . . . . . . . . . .

300000

363159

63159

7. Leyfisbrjefagjöld . . . . . . . . . .

10000

12170

2170

8. Stimpilgjöld . . . . . . . . . . . . .

325000

356634

31634

9. Skólagjöld . . . . . . . . . . . . . .

15000

15000

10. Bifreiðaskattur . . . . . . . . . . .

25000

37388

12388

11. Útflutningsgjald . . . . . . . . . .

1000000

1162214

162214

12. Áfengistollur . . . . . . . . . . . .

650000

420495

229505

13. Tóbakstollur . . . . . . . . . . . .

775000

898203

123203

14. Kaffi- og sykurtollur . . . . . . .

1000000

1116671

116671

15. Annað aðflutningsgjald . . . . .

150000

189562

39562

16. Vörutollur . . . . . . . . . . . . . .

1375000

1127431

247569

17. Verðtollur . . . . . . . . . . . . . .

850000

926530

76530

18. Gjald af sætindagerð . . . . . . .

20000

51335

31335

19. Pósttekjur . . . . . . . . . . . . . .

400000

483400

83400

20. Símatekjur . . . . . . . . . . . . . .

1300000

1448000

148000

21. Víneinkasalan . . . . . . . . . . . .

500000

300000

200000

3. gr.

1. Eftirgjald eftir jarðeignir . . . . .

30000

30000

2. Tekjur af kirkjum . . . . . . . . .

100

100

3. Tekjur af silfurbergi . . . . . . .

5000

5000

4. gr.

1. Tekjur af bönkum . . . . . . . . .

50000

7500

42500

2. Vextir af bankavaxtabrjefum . .

29000

27324

1676

3. Útdregin vaxtabrjef . . . . . . . .

25000

38200

13200

4. Vextir af innstæðum í bönkum

6000

9891

3891

5. Vextir af viðlagasjóði . . . . . .

75000

55000

20000

6. Aðrir vextir . . . . . . . . . . . . .

140000

98080

41920

5. gr.

1. Óvissar tekjur . . . . . . . . . . .

50000

43797

6203

2.Endurgreiddar fyrirframgreiðslur

2000

16000

14000

3. Endurgreidd lán og andvirði

seldra eigna . . . . . . . . . . . . .

102034

84486

17548

4. Greiðslur samkvæmt lögum . . .

35000

35000

10834134

10950894

Gjöld:

7. gr.

1. Vextir af innlendum lánum . . .

186831

Vextir af dönskum lánum . . . .

255501

Vextir af enska láninu 1921 . .

190386

632718

574256

58462

2. Afborgun af lánum . . . . . . . .

907259

783311

123948

3. Framlag til Landsbankans . . . .

100000

100000

Áætlun

Reikningur

Umfram

Undir

Fjlgr.

áætlun

áætlun

kr.

kr.

kr.

kr.

8. gr.

Borðfje H. H. konungsins . . . . . .

60000

60000

9. gr.

Til alþingiskostnaðar . . . . . . . . .

195000

Til yfirskoðunar landsreikninga . .

4800

199800

235816

36016

10. gr.

Ríkisstjórnin, hagstofan og utanríkismál …….

322500

346812

24312

11. gr.

Dómgæsla og lögreglustjórn og embættiskostnaður . . . . . . . . . .

877178

841779

35399

12. gr.

Til heilbrigðismála . . . . . . . . . .

945639

1000636

54997

13. gr.

A. Póstmál . . . . . . . . . . . . . . .

436967

452041

15074

B. Vegamál . . . . . . . . . . . . . .

921620

967199

45579

C. Samgöngur á sjó . . . . . . . . .

330200

373858

43658

D. Símskeyta- og talsímasamband

1261300

1002246

259054

E. Vitamál . . . . . . . . . . . . . . .

307910

332183

24273

14. gr.

A. Andlega stjettin . . . . . . . . . .

363656

375838

12182

B. Kenslumál . . . . . . . . . . . . .

1241894

1218912

22982

15. gr.

Til vísinda, bókmenta og lista . . .

284245

278626

5619

16. gr.

Til verklegra fyrirtækja . . . . . . .

962610

1021073

58463

17. gr.

Til almennrar styrktarstarfsemi. .

664700

752246

87546

18. gr.

Eftirlaun og styrktarfje . . . . . . .

185450

169073

16377

19. gr.

Til óvissra útgjalda . . . . . . . . .

100000

147456

47456

20. gr.

Til lögboðinnar fyrirframgreiðslu.

4000

25947

21947

23. gr.

Til Eimskipafjelags Íslands . . . . .

60000

60000

26. gr.

Greiðslur samkvæmt lögum og fjáraukalögum . . . . . .

642861

Mismunur á gengisreikningi . . . .

20000

11169646

11782169

Þá er nú þessum tölulestri lokið í bili.

Samkvæmt yfirlitinu hjer að framan hafa tekjurnar orðið 116760 kr. umfram áætlun, og gjöldin sömuleiðis 672523 kr. umfram. Þessi niðurstaða er allólík reynslu tveggja undanfarinna ára, því að þá hafa tekjurnar verið áætlaðar svo, að þær hafa ríflega getað staðið straum af útgjaldahækkun þeirri, sem orðið hefir umfram áætlun, bæði á fjárl. og eins samkvæmt sjerstökum lögum, t. d. reyndust tekjurnar 1925 hjer um bil helmingi hærri en gert var ráð fyrir, og þrátt fyrir það, þó að gjöldin reyndust hátt á þriðju miljón umfram áætlun, þá varð samt tekjuafgangurinn rúmar 5 miljónir.

Árið 1926 urðu tekjurnar nálægt 2½ miljón, en gjöldin rúmlega 2 milj. hærri en áætlað var.

Af þessu verður augljóst, að það er árferðið, sem mestu ræður um afkomuna, þótt afleiðingar þess komi venjulega ekki fullkomlega í ljós þegar í stað. Þess vegna virðist svo, sem erfiðleikar atvinnuveganna 1926 hafi aðallega komið í ljós á síðastl. ári. Með þeim tekjuaukafrv., sem samþ. voru á þingi 1924, var nokkurnveginn sjeð fyrir því, að tekjur og gjöld gætu haldist í viðunandi hlutföllum, en sú hefir ekki orðið raunin á nú, vegna þess, að þing og stjórn ljetu of snemma undan síga fyrir kvörtunum, er komu fram úr ýmsum áttum um óhæfilegar skattaálögur.

Það er ekki að undra, þó þess gæti nokkuð nú þegar, og muni koma enn frekar í ljós síðar, að tollur á ýmsum þungavörutegundúm, svo sem kolum, salti og kornvöru, var lækkaður til muna. Ennfremur að verðtollurinn var skertur mjög og gengisviðaukinn afnuminn að nokkru leyti.

Þessar breytingar munu valda árlegri tekjurýrnun, sem nemur nokkuð á aðra miljón króna. Að öllu þessu athuguðu mun stjórnin telja sig knúða til að hlutast til um, að annaðhvort verði framangreindir tollar, sem niður fjellu, teknir upp aftur, eða aðrir nýir lögleiddir, ef það þykir hagkvæmara.

Þörfin á auknum tekjum verður því brýnni, sem fyrirsjáanlegt er, að næstu árin, 1929 og 1930, muni hafa óvenjuleg útgjöld í för með sjer.

Þá kemur skýrsla um skuldir ríkissjóðs 31. des. 1927, er sundurliðast þannig:

Kr.

1. Lán frá 1920 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

. . . . . . . . .

2000000,00

2. Háskólalánið 1919 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

. . . . . . . . .

1000000,00

3. Íslandsbankalán 1918 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

. . . . . . . . .

100000,00

4. Silfurbergsnámulán . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

. . . . . . . . .

28000,00

5. Staðarfellslán . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

. . . . . . . . .

7269,17

Kr.

6. Landhelgisjóðslán . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

504622,03

Þar frá dregst: Framl. sjóðsins til rekstrarkostn. 1927

135000,00

-

369622,03

7. Landsbankalán, til ritsíma, tekið 1916 til 25 ára með bankavöxtum . .

56000,00

Sama 1918 . . . . . . . .

51000,00

Sama (Hlaupareikningur 1039) .

589652,62

-

696652,62

Dönsk lán:

1. Tekið hjá dönskum bönkum 1909 til 30 ára, til að kaupa 3. fl. bankavaxtabrjef, með 4½% vöxtum.

D.Kr. 575000,00

2. Lán tekið hjá lífsábyrgðarstofnuninni í Kaupmannahöfn 1912 til 30 ára, til að kaupa 3. fl. bankavaxta brjef, með 4½% vöxtum . . . . . . . . . . . . .

129166,60

3. Lán hjá Norræna ritsímafjelaginu til símalagninga, með 4% vöxtum, tekið til 30 ára 1913 . . . . . .

340185,62

Kr. 4. Lán hjá Norræna ritsímafjelaginu, tekið 1917 til 30 ára, með 5% vöxtum . . . . . . . . . .

400056.04

5. Lán hjá Handelsbanken, tekið 1917 til 10 ára, og viðbótarlán 1923, vextir 1/2% hærri en forvextir þjóðbankans danska . .

180000,00

6. Lán hjá dönskum bönkum, tekið 1. júlí 1919, með5% vöxtum, til 20 ára . . .

2700000,00

7. Lán tekið í Bicuben til heilsuhælisins á Vífilsstöðum

128474,24

4452882,50á1/2=5343459,00

Enska lánið 1921 . . . . . . . …………….. £ 121679-5-0 22/–=2676943,50

Ísl. kr. 12221946,32

Það er í rauninni ekki ástæðulaust að nema staðar við þennan kafla og athuga hann nánar.

Þegar litið er á skýrsluna hjer að framan, kann ýmsum að virðast, að aðalupphæðin, rúmar 12 miljónir, sje ægilega há; en það er mitt álit, að hún sje það ekki svo mjög, þegar þess er gætt, til hvers fjenu hefir verið varið. Það er í mínum augum aðalatriðið, hvers eðlis lánin eru, hvort þau eru eyðslulán eða notuð til kaupa á nytsamlegum eignum og til arðberandi fyrirtækja.

Það vill nú svo vel til, að nokkur hluti þessara lána er með mjög hagkvæmum vaxtakjörum og þau hafa verið notuð að nokkru leyti til kaupa á bankavaxtabrjefum, sem gefa fulla vexti og hafa verið keypt í hví skyni að afla fjár, sem hægt væri að lána almenningi til brýnustu þarfa með vægum vaxtakjörum. Nokkur hluti þessara lána var að vísu á sínum tíma notaður til skipakaupa, á stríðstímunum, og munu ekki skiftar skoðanir um, að þau kaup hafi verið vel ráðin eins og þá var ástatt.

Þegar svo litið er á hitt, að eftir síðustu skýrslu eru eignir ríkissjóðs taldar um 18 miljónir umfram skuldir, hvað sem annars má um það mat segja, þá sje jeg ekki, að niðurstaðan geti talist svo mjög óhagstæð.

Þó að nú skuldaupphæðin sje ekki hærri en þetta, þá verða menn að gera sjer það ljóst, að enn eru allflest verkefni óunnin á sviði verklegra framkvæmda. Þess vegna er það, að ef ekki á að verða kyrstaða í þessum efnum, getur það verið skoðanamál, hvort ekki skuli hugsað fyrir nýjum lánum. Ennfremur má gera ráð fyrir ýmsum aukagreiðslum í náinni framtíð, sem ekki verður undan komist. Vil jeg þar til nefna 3 milj. stofnfje til Landsbankans, ef þeim lögum verður ekki breytt, og þó að ekki þyki, ef til vill, ástæða til að nefna Titan í þessu sambandi, þá er það nú svo, eins og það mál liggur fyrir nú, að búast má við alt að 2 milj. króna framlagi til þess.

Það er vitanlega fleira, sem ástæða væri til að nefna í þessu sambandi, en það er verkefni fjhn. að athuga þetta, og skal jeg ekki fara langt út í það, en þó hygg jeg, að allir sjeu sammála um það, að nauðsynlegt sje að leggja meira fje til ræktunarframkvæmda en gert hefir verið. Það er kunnugt, að ræktunarsjóðurinn hefir ekki haft nægilegt fje til þess að hann gæti náð tilgangi sínum. Þá er það og mín persónulega skoðun, að nauðsynlegt sje að verja svo sem 1 miljón króna til þess að bæta og tryggja síldarútveginn, svo að nokkurt vit sje í að fást við hann.

Þetta eru aðeins lauslegar athuganir, til þess að skýra það, svo að mönnum sje það ljóst, að hjer er ekki nema um tvent að ræða, annaðhvort kyrstöðu á sviði verklegra framkvæmda, eða hitt, að taka enn ný lán. En auðvitað verður að tryggja það, að þau geti skilað vöxtum og afborgunum. Þó að þetta sjeu nú hugleiðingar út í loftið, þá geri jeg ráð fyrir, að þær komi niður á jörðina áður en langur tími líður. Eins og áður er sagt, eru núverandi lán flest með mjög hagkvæmum vaxtakjörum og hafa verið notuð til verðbrjefakaupa og skipakaupa, og hygg jeg, að ekki verði deilt um, að hvorttveggja hafi verið nauðsynlegt á þeim tíma. Því miður verður því ekki neitað, að nokkur hluti þessara lána hefir orðið eyðslueyrir, vegna erfiðleika stríðsáranna, en slíkt verður vandlega að varast, að fara inn á þá braut, þó til nýrrar lántöku komi. Að svo komnu er ekki enn hægt að segja um árangur af starfsemi ýmsra stofnana, sem nákomnar eru ríkissjóði, svo sem banka, ræktunarsjóðs, ríkisverslana, landssímans, póstflutninga, skipa, útgerðar o. fl., vegna þess að reikningsskilum þeirra er enn ekki svo langt komið. Hinsvegar mun væntanlega gefast tækifæri meðan þing situr til að fá allar nauðsynlegar upplýsingar um þessi efni.

Jafnvel þó það sje afar mikilsvert, að fjárhagur ríkissjóðs sje ætíð svo öruggur, að tekjurnar sjeu jafnan nægar til að mæta útgjöldunum, eða ríflega það, þá er þó engu síður mikilsvert, að atvinnuvegirnir geti blómgast; en því miður hefir orðið á hví nokkur misbrestur síðustu árin.

Það geta naumast verið skiftar skoðanir um það, að atvinnuvegirnir hafi verið reknir með tekjuhalla síðustu árin, þrátt fyrir hagstæða veðráttu og mikla framleiðslu til lands og sjávar. Hin mikla gengishækkun árið 1925 hefir að margra áliti átt mikinn þátt í erfiðleikum atvinnuveganna.

Orsakirnar til hinnar óhagstæðu afkomu hljóta meðal annars að vera þær, að hagnýting afurðanna hafi ekki verið í samræmi við kröfur tímans og eftirspurnin á heimsmarkaðinum þess vegna minni og verðið lægra en þurfti að vera, til þess að atvinnureksturinn gæti borið sig eða gefið sæmilegan arð.

Það er nú svo komið, að mönnum er farið að verða það ljóst, að brýna nauðsyn beri til að breyta verkunaraðferðum og sölufyrirkomulagi til þess að komast út úr ógöngunum. Þess vegna er nú allmikil hreyfing hafin um alt land til þess að bæta kjötmarkaðinn, með því að flytja kjötið fryst og kælt til útlanda, eftir því sem við á, til þess að ljetta á saltkjötsmarkaðinum, en aðalskilyrðið fyrir því er talið að fjölga til muna frystihúsum frá því, sem nú er.

Önnur hreyfing, sem menn gera sjer miklar vonir um árangur af, miðar að því að koma upp nýtísku mjólkurbúum, þar sem þau eiga við, til þess, jafnframt því sem jarðrækt fer vaxandi og framleiðslan eykst, að geta komið afurðunum á útlendan markað jafnóðum og þær eru framleiddar.

Til þess að framkvæma þessar hugmyndir þarf meira fje til stofnkostnaðar og rekstrar en einstaklingarnir eru færir um að leggja fram í byrjun af eigin ramleik. Það hlýtur hví að verða hlutverk þings og stjórnar að finna ráð til að afla þess fjár, sem nauðsynlegt er til þess að þessar framkvæmdir komist á. Nú er það sjáanlegt, að fjárframlög til nefndra fyrirtækja geta ekki í nánustu framtíð greiðst af fjárlagatekjum. Það er því ekki nema um tvent að velja, annaðhvort að ríkið taki lán til styrktar þessum fyrirtækjum, eða ábyrgist lán fyrir þau fjelög, sem stofnuð yrðu á svo traustum grundvelli, að örugt þætti, að þau gætu sjálf staðið straum af greiðslu vaxta og afborgana.

Þá eru einnig mikil verkefni fyrir hendi, sem þarf að vinna sjávarútveginum til viðreisnar, svo sem það að bæta skipulag afurðasölunnar og ljetta á saltsíldarmarkaðinum með stofnun bræðslustöðva. Bæri þing og stjórn gæfu til að hrinda þessum málum í framkvæmd á skömmum tíma, mætti segja, að mikið og gott verk væri unnið í þarfir þjóðfjelagsins.

Um frv. sjálft þarf ekki að fjölyrða umfram það, sem tekið er fram í athugasemdum þeim, er því fylgja.

Tilefni til frekari skýringa kann að gefast, þegar hv. þm. hafa haft tækifæri til að kynna sjer frv. og málið kemur síðar til umr. Það virðist þegar orðið augljóst, að rótt frv. sýni lítilsháttar tekjuafgang eins og það nú liggur fyrir, muni verða nauðsynlegt að gera ráðstafanir til tekjuauka, því ef að vanda lætur, má búast við, að sumir gjaldaliðir kunni að hækka eitthvað og einhverjir nýir að bætast við, áður en málið verður afgreitt til fullnustu. Eins og öllum er kunnugt, er yfirgnæfandi hluti gjaldaliðanna fyrirfram lögboðinn og aðrir þannig, að erfitt er að draga úr þeim svo nokkru nemi.

Það yrðu þá einungis framlögin til verklegra framkvæmda, sem einhverju mætti um poka. En slíkt verður að teljast neyðarúrræði, og það því fremur, sem þau þegar hafa verið skert nokkuð frá því, sem áður var, og til muna frá því, sem forstöðumenn hinna ýmsu ríkisstofnana hafa lagt til.

Það virðist ekki ástæða til að fjölyrða frekar um fjárhagsástandið að svo komnu, en hinsvegar verður leitast við að gefa upplýsingar um sjerstök atriði, sem kynnu að þurfa frekari skýringar við.

Að endingu skal þeim tilmælum beint til háttv. fjvn., að hún taki til athugunar, hvort ekki muni hægt að breyta starfstilhögun nefndarinnar þannig, að fjárl. gætu orðið afgreidd á skemri tíma en átt hefir sjer stað að undanförnu.

Að svo mæltu læt jeg staðar numið, en skal hinsvegar fúslega gefa allar upplýsingar, sem hægt er, ef fyrirspurnir koma fram nú þegar.