20.02.1928
Neðri deild: 27. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (523)
27. mál, bændaskóli
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg vil aðeins segja örfá orð út af þessari rökstuddu dagskrá hv. þm. Borgf., sem leggur til, að þessu máli verði algerlega frestað með tilliti til þess, að milliþinganefndin, sem nú starfar að landbúnaðarmálum, hefir ekki lokið tillögum sínum um þetta mál, en leggur þær væntanlega fyrir næsta þing. En í því sambandi vil jeg minna á það, að tveir af þremur mönnum, sem eiga sæti í þessari nefnd, eiga einnig sæti í hv. landbúnaðarnefnd þessarar deildar, sem hefir fjallað um þetta mál. Ætti þeim hv. þm. því að vera ljóst, hvað hentar best í bili í þessu máli, með tilliti til væntanlegra breytinga.
Þótt nú vafasamt teljist, hvernig máli þessu verður skipað í framtíðinni, þá er það þó ekki vafasamt, hygg jeg, að verklega námið verður aukið. Ennfremur vil jeg minna á það, að þessar breytingar eru gerðar í samráði við tvo menn úr milliþinganefndinni. Og í þriðja lagi, að nú stendur svo á, að á þessu vori þarf væntanlega að ráðstafa Hólaskóla, bæði skólastjórn og búi. Hv. 1. þm. Skagf. hjelt því fram, að bíða mætti með skipun skólastjóra og setja hann í bili. En hv. þm. mun sjá, að það er ekki neitt skemtilegt að eiga að gera það, ef ekkert er hægt að segja um fyrirkomulagið í framtíðinni. Jeg held nú, að þar sem till. þessi er fram komin frá meiri hl. landbn. og eftir ósk frá stjórn Búnaðarfjelags Íslands, þá muni vera óhætt að samþykkja hana, með það fyrir augum, að hún komi ekki í bága við síðari tíma ráðstafanir. Hitt get jeg sagt, að mjer er óljúft að stofna til opinbers búrekstrar á Hólum og mun ekki gera það, nema þá eftir eindreginni ósk frá Búnaðarfjelagi Íslands. Jeg vil því benda hv. þm. Borgf. á það, að það gæti verið fær vegur að bíða með ákvörðun um, hvernig búið á Hólum verði rekið framvegis, þangað til milliþinganefndin hefir lokið störfum sínum. Jeg gæti vel fallist á að gera það, sem hægt er, í því efni, en sje hinsvegar, að vandræði geta leitt af því, ef rökstudda dagskráin verður samþykt.