24.01.1928
Neðri deild: 5. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (53)
1. mál, fjárlög 1929
Magnús Jónsson:
Jeg þarf ekki að svara hæstv. forsrh. (TrÞ) öðru en því, að embættisbróðir hans, hæstv. fjmrh. (MK), bauð að gefa þm. þær upplýsingar, er þeir kynnu að óska í tilefni af ræðu hans. Það var því beinlínis samkvæmt tilefni frá honum, að jeg gerði fyrirspurnir mínar. — Annars gæti jeg sagt ótalmargt við stjórnina að þessu sinni, en jeg hefi hugsað mjer að geyma það til framhalds umræðunnar.