20.02.1928
Neðri deild: 27. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1465 í B-deild Alþingistíðinda. (532)

27. mál, bændaskóli

Jörundur Brynjólfsson:

Þótt hv. frsm. nefndarinnar hafi tekið fram flest þau atriði, sem eru í nál., vil jeg leyfa mjer að bæta hjer við nokkrum orðum.

Nefndin gekk út frá því, að hjer væri aðeins um bráðabirgðaráðstöfun að ræða og að stjórnin vildi fá heimild til þess að breyta skólanum. Okkur nefndarmönnum var kunnugt um, hvað skólinn hefir verið fámennur og lítið sóttur, og hjeldum við, að fyrirkomulag skólans kynni að valda þar nokkru um. Hinsvegar er heimildin bundin því skilyrði, að ef önnur breyting yrði gerð á skólanum, þá verði það ríkissjóði að kostnaðarlausu. Við bárum ekki fram brtt. þess efnis, en þótti nóg að taka það fram, að stj. gerði ekki bindandi samninga nema til þess tíma, er kæmi ný skipun á skólann. Við höfum skoðað þetta sem heimild fyrir stjórnina, ef ekki er hægt að ráðstafa skólanum á viðunandi hátt eftir þeim reglum, er nú gilda.

Jeg get að sjálfsögðu ekki sagt neitt um álit milliþinganefndarinnar í þessu máli; við erum aðeins tveir hjer í bænum, og þótt við kunnum að hafa borið okkur saman, höfum við ekki náð til þriðja mannsins, og er því ekki hægt að láta neitt uppi um það. Jeg býst við, að við gerum þær tillögur, sem við álítum rjettastar í þessu máli, hvað sem samþ. þessa þings líður. Jeg álít því rjett að samþ. þetta frv., þar sem í því felst ekki annað en heimild til bráðabirgðaskipulags.

Að lokum vil jeg víkja stuttlega að því, er hv. 1. þm. Skagf. sagði um 4. lið frv., hvort nefndin vildi ekki fella hann allan. Við höfum aðeins felt niður nokkur orð úr þeim lið, en sjáum ekki ástæðu til að fella hann allan.

Við treystum okkur ekki til að dæma um það, hvort nauðsynlegt sje að breyta kenslukröftum skólans, enda þótt skólanum verði ekki breytt, en það er með þetta eins og annað, að hjer er aðeins um heimild til bráðabirgðaráðstafana að ræða, sem ekki verður tekið til nema þörf skólans krefji.