22.02.1928
Neðri deild: 29. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1467 í B-deild Alþingistíðinda. (535)

27. mál, bændaskóli

Jón Sigurðsson:

Jeg sje, að hv. meðflm. minn og 1. flm.brtt. 267 er ekki viðstaddur, og jeg ætla því að segja nokkur orð um þessa brtt. okkar.

Það, sem fyrir okkur vakir með þessari brtt., er það, að gera kröfurnar um verklegt nám nokkuð ákveðnari en er í frv. því, sem hjer liggur fyrir. Því hefir verið lýst yfir af

hæstv. stjórn, að það, sem þetta frv. fer fram á, eigi að vera nokkurskonar tilraun um það, hvaða leið muni líklegust til að fara í þessum efnum í framtíðinni. En úr því að þessi tilraun er gerð, þá óskum við flm. brtt. á þskj. 267, að hún verði gerð þannig, að eitthvað verulegt verði á því að græða. Eins og frv. nú er orðað, er engin skylda til þess, að þeir piltar, sem skólana sækja, stundi verklegt nám. Það er því alveg undir hælinn lagt, hvort skólarnir láta í tje þá verklegu kenslu, sem þyrfti og æskilegt væri. Því er það, að við flm. brtt. 267 viljum binda það fastar, að piltar skuli stunda verklegt jarðyrkjunám í 8 vikur, til þess að fá upptöku í eldri deild skólans.

Eins og tekið var fram við 1. umr. málsins, hefir verklega námið fram að þessu verið hreinasta kák, og það er sorglegt til þess að vita, að sá afturkippur í áhuga fyrir búnaðarfræðslu, sem hefir farið í vöxt ár frá ári, er í raun og veru mikið að kenna þessari vöntun á verklegu námi við búnaðarskólana. Ef þessi tilraun með ákveðið jarðyrkjunám leiðir það í ljós, að ekkert er að óttast í þessu efni, þá er um leið hrundið þeim mótbárum, sem fram hafa verið færðar gegn verklegu námi, bæði því, að fólk fáist ekki til að sinna því, og að ekki fáist hentug kensla fyrir pilta, því að reynslan mun sýna, að svo er ekki.

Við leggjum til, að það verði gert að skilyrði fyrir upptöku í eldri deild skólans, að piltar hafi lokið 8 vikna jarðyrkjunámi. Við höfum ekki sjeð ástæðu til að fara nánar út í þetta, en um leið og við stingum upp á því, að þetta verði framkvæmt við Hólaskóla, leggjum við til, að landsstjórninni heimilist að gera tilraunina einnig á Hvanneyri. Ef þess er þörf við annan skólann, þá ætti líka að vera vert að gera tilraunina við hinn.