22.02.1928
Neðri deild: 29. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1476 í B-deild Alþingistíðinda. (543)
27. mál, bændaskóli
Jón Sigurðsson:
Hæstv. forsrh. hefir komið með brtt. í þá átt, að þeir nemendur sætu fyrir með inngöngu í efri deild skólans, sem lokið hefðu 8 vikna jarðyrkjunámi, og taldi, að það gæti hamlað skólanum, að ekki fengjust nógu margir menn, ef till. okkar væri samþ., og sín till. væri miðlunartill.; en það er fullkominn misskilningur. Yfirleitt fara ekki aðrir í efri deild en þeir, sem útskrifast hafa úr neðri deild, svo að till. er gersamlega þýðingarlaus og setur alt í sama farið og nú er. Hún getur þess vegna fallið niður. (Forsrh. TrÞ: Menn koma þó beint í efri deildina). Já, kannske einn á sex árum eða eitthvað svoleiðis, svo að þetta hefir enga „praktiska“ þýðingu. Það er því auðsýnt, að brtt. hæstv. forsrh. færir málið í sama horf og það var, enda virðist mjer till. sýna það eitt, að hæstv. ráðh. vill ekki láta leggja meiri rækt við verklega námið en nú er gert. Hann var að tala um, að það ætti að gera tilraunir. Með hvað á að gera tilraunir, þegar verklega námið verður sama kákið sem nú er það? Háttv. 3. þm. Reykv. (JÓl) sagði, að það væri þýðingarlaust að taka þetta upp, þar sem aðeins eitt ár væri til stefnu, og að það mundi ýta undir milliþinganefndina og flýta brtt. hennar á skólalögunum, ef þetta yrði ekki gert. En þá er líka fallin burt sú ástæða, sem þessi hv. þm. og hæstv. atvmrh. voru að tala um, að væri aðaltilgangurinn með frv., að afla sjer reynslu áður en fullnaðarlöggjöf væri sett um þessi efni. — Ef litið er á frv. og till. nefndarinnar, sjest, að. 1. liður frv., um unglingaskólana, á að falla burtu. — Um 2. liðinn, verklega námið, stendur það að vísu, að auka eigi verklegt nám. Og þetta fer vel á pappírnum. En þegar ekki má setja nein föst skilyrði um námið, verður þetta aðeins, að piltum er heimilt að stunda það, en ekki skylt, eins og nú er. Það er því engin breyting frá núverandi ástandi. Í 3. lið frv. stendur líka, að reka eigi skólabúin fyrir opinberan reikning. Hæstv. forsrh. hefir nú lýst yfir því, að hann sje því andvígur, og jeg býst heldur ekki við, að það nái fram að ganga. Þá er eftir síðasti liður frv., um breytingarnar á kennaraliði skólans, með öðrum orðum heimild til að reka eitthvað af kennurunum; þessi liður er þá það eina, sem eftir er af þessu frv. stj. En jeg tel, að ástæðulaust sje að samþ. slíkt og frv. eigi hví ekkert erindi lengra. Jeg vil að lokum lýsa yfir því, að verði brtt. feld og þar með auðsýnt, að hv. deild vill aðeins taka vetlingatökum á málinu, þá mun jeg greiða atkvæði á móti frv. Fyrir mjer er jarðyrkjunámið aðalatriðið. Hæstv. forsrh. sagði það í lok ræðu sinnar, að fyrir dyrum stæðu breytingar á skólunum og að úr yrði að skera um það, hvort bóklegt eða verklegt nám eigi að skipa höfuðsessinn. Jeg er á sama máli. En hvað sker hjer úr? Frv. gerir það ekki, og hæstv. forsrh. stuðlar manna best að því, að svo verði. En brtt. mín og hv. þm. Mýr. gerir það, og verði hún feld, virðist mjer sem því sje slegið föstu, að bóklegt nám skuli framvegis vera ríkjandi í skólunum, eins og verið hefir.