25.02.1928
Neðri deild: 32. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1480 í B-deild Alþingistíðinda. (547)
27. mál, bændaskóli
Pjetur Ottesen:
Jeg hafði kvatt mjer hljóðs, er umr. var frestað síðast. Jeg þurfti aðeins að svara hæstv. atvmrh. nokkrum orðum. En jeg sje, að hann er ekki viðstaddur; hann er ef til vill bundinn við umr. í Ed.
Það, sem jeg vildi segja, var út af því að hæstv. ráðh. fanst það ósanngjarnt af mjer og hv. 1. þm. Skagf., að við kröfðumst ákveðins svars af honum um það, hvort hann ætlaði að láta reka skólabúið á Hólum fyrir ríkisreikning, ef frv. yrði samþykt. Hann var búinn að lofa að gefa svör við þessu við þessa umr. Fyrst hæstv. ráðh. lítur svo á, að það sje ósanngjörn krafa, að hann standi við loforð sitt um að gefa ákveðið svar um þetta efni, þá verður auðvitað við það að sitja.
Hæstv. atvmrh. hafði það á móti dagskrártill. þeirri, er jeg bar hjer fram, að ef málinu yrði vísað frá, eins og tilætlunin væri með henni, þá yrði ekki sjeð, hver stefna þingsins væri gagnvart verklega náminu við bændaskólana.
Jeg hefi áður bent á, að þetta er allsendis rangt. Það sjest fullkomlega af umr. hjer, hver stefna þingsins er. Hún er sú, að auka beri verklega námið. Því að hjer hafa heyrst margar raddir með því, en engin andmæli. Það þarf ekki að samþykkja þetta bráðabirgðafrv. til þess að hæstv. stj. og milliþinganefndin í landbúnaðarmálum geti fyllilega sjeð, hvern hug þingið ber til þessa máls.
Jeg hefi svo ekki fleira að segja um þetta mál, en vil leyfa mjer að afhenda hæstv. forseta þá rökst. dagskrá, sem jeg bar hjer fram áður, en tók aftur af þeim ástæðum, sem jeg gerði þá grein fyrir.