24.01.1928
Neðri deild: 5. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (55)

1. mál, fjárlög 1929

Pjetur Ottesen:

Hæstv. forsh. ljet sjer sæma að bera íhaldsmönnum í þessari deild það á brýn, að þeir hefðu gert tvær tilraunir til að lengja þingtímann, einkum með því að leggja til, að frestað yrði kosningu fjvn. til mánudags. En jeg veit, að allir hv. fjvn.-menn taka undir það mjer, að þetta hefði ekki þurft að hafa í för með sjer neina lengingu á þingtímanum. Nefndin hefði getað tekið nákvæmlega jafnsnemma til starfa fyrir því. — En þegar hæstv. ráðh. stendur nú upp til að álasa Íhaldsflokknum út af þessu máli, þá er það sæmilega augljóst, að hann gerir jafnframt árásir á sinn eiginn flokk, sem mestallur sá sóma sinn í því að fylgja till. hv. 2. þm. G.-K. um þetta. En það er nú eins og stundum áður, þegar árásaræðið grípur hæstv. ráðh. (TrÞ), að „ekki sjer hann sína menn, svo hann ber þá líka.“