25.02.1928
Neðri deild: 32. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1483 í B-deild Alþingistíðinda. (550)

27. mál, bændaskóli

Bjarni Ásgeirsson:

Það er aðeins örstutt aths., því að málið er þegar þrautrætt. Jeg vildi aðeins svara hv. frsm., hv. 3. þm. Reykv. (JÓl), nokkrum orðum. Hann sagði, að þetta mál hefði þegar beðið svo lengi, að það gæti beðið enn nokkurn tíma. Jeg álít, að þetta mál hafi þegar beðið svo lengi, að það megi ómögulega bíða lengur.

Þá get jeg svarað því, hvers vegna jeg hefi ekki borið það fram fyr. Það er vegna þess, að jeg hefi ekki haft tækifæri til þess fyr. Jeg álít þetta svo mikið nauðsynjamál, að það sje sjálfsagt að láta ekkert tækifæri ónotað til þess að koma því fram. Og fyrst lögunum er á annað borð breytt allverulega, þá sje jeg enga ástæðu til þess að geyma þessa breytingu, sem ætti að mínu áliti að vera komin á fyrir löngu, og þótt hún komist ef til vill ekki í framkvæmd í ár, þá mun hún þó áreiðanlega koma að ári. En það er gömul regla að geyma ekki til morguns það, sem gera ber í dag, og jeg mun halda fast við brtt. mína, þar til yfir lýkur. Því að jeg sje engin vandkvæði á því að fella brtt. okkar inn í frv. án þess að nokkur bagi sje að. Þeir piltar, sem nú útskrifast úr neðri deild, hafa vor og haust fyrir sjer. En því fyrr sem þetta verður gert, því fyrr kemst breyting á til batnaðar. Og þess vegna legg jeg áherslu á, að brtt. verði samþykt.