06.03.1928
Efri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1495 í B-deild Alþingistíðinda. (564)

27. mál, bændaskóli

Dómsmrh. (Jónas Jónason):

Jeg hefi flutt litla brtt. við frv. þetta, og ætla jeg að mæla fyrir henni með fáeinum orðum. Er þar farið fram á, að í bráðabirgðaskipulagi því, sem nú á að koma á Hólaskóla, megi setja eins missiris undirbúningsdeild í þjóðlegum fræðum, ef húsrúm leyfir. skólinn er nú fásóttur. stafar það að vísu að nokkru leyti af húsnæðisvandræðum og byggingaraski, en þó eru lítil líkindi til, að aðsókn aukist mjög á næstu árum. straumurinn er snúinn frá skólanum í bráð. Jeg hefi nýlega átt tal við þrjá merka hjeraðsmenn, og töldu þeir skólann mundu þurfa nokkur ár til að komast aftur til forns vegs. Er jafnvel ekki ósennilegt, að menn þurfi nokkurn tíma til að átta sig á meirri góðu umbót, sem nú á að gera á skólanum. En breytingin verður, eins og hv. þdm. er kunnugt, í því fólgir, að færa kensluna nær lífinu, taka upp verklegt nám eitt sumar og telja ekki aðra fullkomna búfræðinga en þá, sem numið hafa algengustu búnaðarstörf, svo sem skepnuhirðingu, með því að vinna sjálfir að þeim. Þó er vonandi, að ekki líði á löngu, þar til hin nýja tegund náms verði svo vinsæl, að 50–60 rúm í skólanum fyllist. En mjer þykir ólíklegt, að það verði þegar í stað. Þess vegna hefi jeg lagt til, að stjórninni sje veitt heimild til að setja þar undirbúningsdeild, ef húsrúm leyfir, svo að hin ágætu húsakynni skólans standi ekki ónotuð, meðan ekki þarf að nota þau öll til búnaðarnámsins sjálfs.

Með þjóðlegum fræðum á jeg aðallega við móðurmálið og sögu landsins. Halldór skólastjóri á Hvanneyri hefir oft kvartað undan því, hve bókleg kensla væri erfið, er nemendur kæmu illa undirbúnir í skólann. Er það sýnilega óheppilegt að þurfa að fara að kenna mönnum undirstöðuatriði reiknings og málfræði í bændaskólum.

Jeg vona, að hv. þdm. sjái ekki ástæðu til að leggjast á móti þessari till., þó að þeir sjeu með verklegum skóla. Undirbúningsdeildin verður einungis höfð svo lengi sem húsrúm leyfir. Þegar skólinn fyllist af þeim, sem ætla að stunda búnaðarnám eingöngu, fellur hún niður.