13.02.1928
Neðri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (591)
12. mál, betrunarhús og vinnuhæli
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Út af ræðu hv. 2. þm. Árn. vildi jeg taka það fram, að jeg geri ráð fyrir, ef úr því verður, að sjúkrahúsið verði notað, þá eigi ríkið eingöngu við núverandi eiganda þess, Landsbankann. Það kemur ríkinu í sjálfu sjer ekkert við, hvað á undan er gengið í sjálfu húsbyggingarmálinu. Jeg geri auk þess ráð fyrir, að nógu margir annmarkar muni þykja á því að nota þetta hús, þótt ekki verði það keypt dýrara verði en eigandinn setur upp.
Jeg viðurkenni fyllilega, að það væri mjög heppilegt að byggja lítið sjúkraskýli á Eyrarbakka, og jeg býst við, að landið hjálpi til þess á sínum tíma. En jeg vil jafnframt taka það fram, að fyrir Eyrarbakka er það sjálfsagt mjög gott, að ríkið taki sjúkrahúsið að sjer. Það er nú sjeð, að hvorki Eyrarbakki nje heldur hjeraðið getur risið undir þessu, því með þeirri ráðstöfun, sem hjer er um að ræða, er sjeð fyrir því, að þetta hús geti orðið Eyrarbakka að nokkru gagni. Þykist jeg vita, að hv. þm. (MT) viðurkenni það, þótt hann vildi auðvitað miklu heldur, að það hefði verið keypt til að nota það sem sjúkraskýli.
Jeg heyrði ekki, hvort það var nokkuð sjerstakt, sem hv. 1. þm. Skagf. beindi til mín, af því að jeg brá mjer frá til þess að vera við umr. í Ed. Vil jeg því biðja þann hv. þm. að endurtaka það, ef eitthvað hefir verið. (MG: Jeg spurði um, hvort vitað væri, að Landsbankinn ljeti húsið fyrir þetta verð, því að mjer væri ekki ljóst, hvort hann hefði fengið sína kröfu að fullu goldna með húsinu). Það hefir náttúrlega ekki verið samið við Landsbankann ennþá, en jeg geng út frá því sem gefnu, að húsið fáist fyrir það, sem Landsbankinn hefir keypt það fyrir. Jeg mundi heldur ekki samþykkja að kaupa það, ef það fengist ekki fyrir sama verð.