07.03.1928
Neðri deild: 41. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1552 í B-deild Alþingistíðinda. (603)
12. mál, betrunarhús og vinnuhæli
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Af því að svo vel vill til, að hv. þm. Dal. á sæti hjer í deildinni, vil jeg beina til hans að svara spurningu hv. 2. þm. Árn. (MT), hvernig stóð á því, að teknar voru 50 þús. kr. úr landssjóði og lagðar í Íslandsbanka, því að þetta mun hafa verið gert í hans stjórnartíð. Jeg er þessu ókunnugur, en býst við, að hv. þm. Dal. geti svarað því. (MT: Ríkið verður að borga fyrir axarsköft ráðherranna!). Jeg vildi helst, að ráðherrarnir borguðu það sjálfir, og jeg vil því beina því til hv. þm. Dal., hvort hann geti borgað þetta. Þegar landsspítalinn er kominn upp, þá er jeg þess fullviss, að 8 rúma spítali muni duga á Eyrarbakka. Stykkishólmur er t. d. að undirbúa að koma sjer upp spítala með styrk úr landssjóði. Tel jeg víst, að slíkri styrkbeiðni til sjúkrahúss Árnesinga yrði vel svarað, en það mundi komið undir þáverandi þingi og stjórn, hvort hún ljeti náð ganga fyrir rjetti og vildi bæta þeim það tjón, er þeir urðu fyrir í þessu efni vegna forgöngu manna, sem að byggingunni hafa staðið. En ekki beini jeg þessum orðum til núverandi þm. Árn.