07.03.1928
Neðri deild: 41. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1554 í B-deild Alþingistíðinda. (605)

12. mál, betrunarhús og vinnuhæli

Magnús Torfason:

Jeg skal ekki taka til þess, þótt háttv. þm. Dal. öfundi hæstv. dómsmrh. af liðsfjölda þeim, sem hann hefir á þingi. (SE: Ekki nema af sumu liðinu). En það er um þessar 50 þús. kr. að segja, að þeir menn, sem voru í spítalanefndinni, höfðu sjerstakan áhuga á að borga Íslandsbanka, sökum þess að þeir voru í ábyrgð fyrir þessu fje. Þessu var mótmælt af mjer sem sýslunefndaroddvita, en það er víst, að Íslandsbanka var ekki ókunnugt um þetta fje, því að hann lagði mikla áherslu á að fá þetta goldið. Hitt nær engri átt, að Íslandsbanki hafi ekki átt að fá sitt, en jeg hefði álitið rjett að ljúka við að byggja spítalann fyrst, og borga síðan Íslandsbanka. En þetta varð alveg öfugt. Jeg veit ekki, hvort hv. þm. Dal. hefir gefið ávísunina á þetta fje; mig minnir, að hann hafi verið fjarverandi, þegar ávísunin var gefin út, svo að jeg vík þessu ekki sjerstaklega að honum.