07.03.1928
Neðri deild: 41. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1555 í B-deild Alþingistíðinda. (606)

12. mál, betrunarhús og vinnuhæli

Frsm. minni hl. (Magnús Guðmundsson):

Það er að sönnu alveg rjett, sem hæstv. dómsmrh. sagði, að það er mikil þörf á að byggja nýtt betrunarhús, en það er ekki þar með sagt, að það eigi að gera að órannsökuðu máli. Það er nú svo, að margt þarf að gera, og þá þarf að vita, á hverju er mest nauðsyn. Álít jeg, að margt annað ætti að sitja fyrir, að minsta kosti ætti ekki að tala um letigarð. Hitt er það, að þótt menn, sem dæmdir eru, komist ekki að í hegningarhúsinu, þá nær það ekki nokkurri átt, að þeir heimti það af því opinbera að fá að taka út hegningu á ákveðnum tíma. (Dómsmrh. JJ: Mennirnir þurfa þó að komast að). Já, en þeir geta ekki heimtað það eftir sínum geðþótta að komast að svo þeir geti verið lausir um hábjargræðistímann.

Þá mintist hæstv. dómsmrh. á, að það væri siður erlendis að hafa vissa fanga saman. Hafa t. d. hættulega fanga saman, kvenfólk í öðru lagi og slæpingja alla saman og loks sjúklinga sjer. Þetta er að vissu leyti rjett, en það er dálítið annað fyrir margra miljóna þjóðir en okkur, sem aðeins erum um 100 þús. Við gætum ekki haft svo margar tegundir fangelsa, sem þá þyrfti með fyrir alla þessa flokka. (Dómsmrh. JJ: Ef fangarnir vinna allir fyrir sjer). Ef þeir vinna fyrir sjer, segir hæstv. dómsmrh. Heldur hann, að t. d. sjúklingar vinni fyrir sjer? Jeg get sagt hæstv. dómsmrh., að ef ætti að hafa svo mörg smá betrunarhús, þá mundu þær stofnanir aldrei geta borið sig, hversu mikið sem fangarnir ynnu, enda bera hegningarhús sig hvergi í víðri veröld.

Þá eru veiku fangarnir. Hvað á að gera við sjúklingana? Það er hinn veiki punktur hjá öllum þjóðum. Þar er ekkert annað úrræði en að setja þá í sjúkrahús eða gefa þeim upp sakir, því að engin þjóð getur látið sjer sæma að láta þessa menn í betrunarhús, þar sem gera má ráð fyrir, að þeir missi alveg heilsuna. Alveg eins mundi fara, þótt reist yrði nýtt betrunarhús; þessir sjúku menn yrðu aldrei látnir þangað, sem þeir gætu beðið enn meira tjón á heilsu sinni.

Alla glæpamenn má skoða skuldunauta þjóðfjelagsins, vegna þess, að þeir hafa brotið lög þess. skuld sína við þjóðfjelagið eiga þeir að greiða með fangelsisvist eða betrunarhúsvist. Ef þessir menn eru veikir, eru þeir eins og aðrir, sem ekki geta greitt skuldir sínar. Skuldin verður að falla niður eða getur ekki greiðst í bili. Við þessu er ekkert að gera. Það verður svo að vera.

Letigarð er heimska að reisa einmitt vegna þess, að við erum að gera á þessu þingi slæpingsskapinn að sjerstakri tegund glæpa, og þá eiga slæpingjar heima með öðrum föngum, er vinnuskylda hvílir á.