09.03.1928
Neðri deild: 43. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1557 í B-deild Alþingistíðinda. (609)

12. mál, betrunarhús og vinnuhæli

Ásgeir Ásgeirsson:

Brtt. mín er þess efnis að breyta heitinu á vinnustofnun þeirri, sem ráðgert er að koma upp í sambandi við væntanlegt betrunarhús, þannig, að í staðinn fyrir „letigarður“ komi: vinnuhæli. Rjettara er, að stofnunin sje kend við tilgang sinn, sem er vinnan, heldur en að henni sje gefið óvirðulegt nafn, sem vekur eingöngu umhugsun um illa fortíð og minnir ekki á góðan tilgang. Orðið „letigarður“ er „stúdentaslang“ frá Höfn og ætti ekki að komast inn í íslenska löggjöf. Hinsvegar er auðvitað ekkert hægt að gera við því, hvort orðið almenningur vill heldur nota. En Alþingi ætti að stuðla að því að útrýma þessu leiðinlega orði úr málinu og festa annað, sem minnir á uppeldishlið stofnunarinnar.